Konur í Bandaríkjunum hafa verið sviptar réttinum til þungunarrofs

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna snéri við fyrri nið­ur­stöðu sem tryggðu rétt kvenna til að láta rjúfa með­göngu. Rétt­ur­inn var tryggður fyrir fimm­tíu árum síðan í máli Roe gegn Wade en nú hefur dóm­stóll­inn ákveðið að stjórn­ar­skrá lands­ins tryggi ekki sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna. Fóst­ur­eyð­ingar urðu sjálf­krafa bann­aðar í fjölda fylkja við upp­kvaðn­ingu dóms­ins.

Konur í Bandaríkjunum hafa verið sviptar réttinum til þungunarrofs

Frá árinu 1973 hafa banda­rískar konur talist hafa stjórn­ar­skrár­bund­inn rétt til að þess að enda þungun sína, en frá og með deg­inum í dag þurfa þær að treysta á að kjörnir full­trúar í ríkjum þar sem þær búa styðji rétt þeirra til þess. Svo er þó ekki í mörgum til­fellum. Konur í um helm­ingi ríkja Banda­ríkj­anna munu því búa við þá stöðu að mega ekki fara í þung­un­ar­rof, nema í algerum und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Aðeins nokkrir dagar eru þar til þau lög koma til fram­kvæmda. Óvissa ríkir um stöðu kvenna í fjölda ann­arra ríkja. 

„Þung­un­ar­rof kallar fram djúp­stæða sið­ferð­is­lega spurn­ingu. Stjórn­ar­skráin bannar ekki borg­urum hvers ríkis að setja reglur um eða bann við þung­un­ar­rofi,“ segir í dómi Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna frá því í dag. Rétt­ur­inn seg­ist „skila vald­inu til fólks­ins og kjör­inna full­trúa“. „Stjórn­ar­skráin vísar aldrei til þung­un­ar­rofs,“ segir þar enn fremur.

Dómurinn í dag veldur straum­hvörfum í sögu Banda­ríkj­anna. Hann er afleið­ing …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár