758. spurningaþraut: Hvar endaði Andrómeda? Og hver er hún?

758. spurningaþraut: Hvar endaði Andrómeda? Og hver er hún?

Fyrri aukaspurning:

Skoðið myndina hér fyrir ofan. Hver er besti vinur hans? (Vísbending: Það er EKKI fiðrildið.)

***

Aðalspurningar:

1.  Andrómeda var konungsdóttir frá Eþíópíu, að sagt er. En sagnir um ævi hennar er þó að finna í hugmyndaheimi annars lands. Hvaða lands?

2.  Núorðið er önnur Andrómeda öllu þekktari en þessi gamla. Hver er sú Andrómeda?

3.  Margt er á huldu um þróun hesta. Þó er talið nokkuð víst að forfeður og -mæður hinna fyrstu eiginlegu hesta hafi þróast í einni ákveðnni heimsálfu. Hver er sú?

4.  Löngu seinna voru hestar komnir á aðrar slóðir og yfirleitt er talið að forfeður og -mæður taminna hesta hafi þróast á ákveðnu svæði, sem er ... hvað?

5.  Flest innri líffæri mannsins eru einstæð í sinni röð. Við höfum til dæmis aðeins eitt hjarta. En tvö af hinum stóru líffærum eru þó í tvíriti, ef svo má segja. Hver eru þau?

6.  Hvaða ríki tilheyrir Baffinsland?

7.  Í hvaða borg í Evrópu þjónaði Vladimir Pútin sem njósnari KGB?

8.  Við hvað starfaði Naomi Campbell og gerir jafnvel enn þegar vel liggur á henni?

9.  Ingvar Helgason heitir íslenskur hugvits- og athafnamaður sem starfar að vísu fyrst og fremst í útlöndum, en þar eru hann og fyrirtæki hans Vitrolabs í fararbroddi við þróun og framleiðslu á ... hverju?

10.  Eldri bróðir Ingvars er þekktur fjölmiðlamaður á Íslandi. Hvað heitir hann?

***

Seinni aukaspurning:

Hvaða fyrirtæki, stofnun, ríki eða samtök nota lógóið hér að neðan?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Grikklands.

2.  Stjörnuþoka.

3.  Norður-Ameríka.

4.  Mongólía.

5.  Lungu og nýru.

6.  Kanada.

7.  Dresden.

8.  Fyrirsætustörf.

9.  Leðri. Um er að ræða leður úr stofnfrumum. Að segja „gervileður“ er í rauninni ekki rétt, en ég ætla þó að gefa stig fyrir ef einhver slysast til að segja það.

10.  Egill.

***

Svör við aukaspurningum:

Besti vinur Tígra er Bangsímon.

Merkið notar UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár