Skotárás í neðanjarðarlest í New York

Lög­reglu­yf­ir­völd í New York leita manns með gas­grímu. Talið er að 16 manns séu slas­aðir.

Skotárás í neðanjarðarlest í New York

Skotárás var um klukkan 8:30 á stað­ar­tíma í neðj­anjarð­ar­lest í Brooklyn hverf­inu í New York. Lestin stöðv­aði á lestartöð á 36 stræti þar sem fólk flúði úr henni. Lög­reglu­yf­ir­völd í borg­inni segja að 29 manns hafi leituð aðhlynn­ingar á sjúkra­húsum, þar af tíu með skotsár. Yfirvöld í borg­inni til­kynntu að eng­inn af þeim sem slös­uð­ust eru taldir í lífs­hættu.

Leit er nú haf­inn af skot­mann­inum en hann er sagður vera með gas­grímu og klæð­ast app­el­sínu­gulu vesti. Lög­reglan leitar nú að 62 ára gömlum karl­manni, þar sem lyklar af sendi­bíl hans fund­ust á staðnum. Yfirvöld segja að 33 skotum hafi verið skotið um borð í neðj­anjarð­ar­lest­inni.

Fyrstu fréttir af mál­inu sögðu að lög­reglan hafi fundið sprengjur á lest­ar­stöð­inni. Lög­reglan hefur nú stað­fest að engar sprengjur hafi verið á lest­ar­stöð­inni eða lest­inni sjálfri.

Mikill reykur var inn á lest­ar­stöð­inni eftir skotárás­ina og segir lög­reglan að skot­mað­ur­inn hafi notað reyk­sprengjur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár