Breytt heimsmynd

Lýðræðið hafði sigrað ger­ræðið, vís­indi og vel­megun veittu öfl­uga vörn gegn far­öldrum og öfl­ugir, stórir og skil­virkir fjár­mála­mark­aðir rík­ustu landa heims áttu að geta staðið af sér hvaða efna­hags­á­föll sem er. Þar til annað kom í ljós.

Breytt heimsmynd

Þótt 20. öldin hafi skilað lang­mestu efna­hags­legu fram­förum mann­kyns­sög­unnar og ger­breytt lífs­kjörum millj­arða manna þá var hún líka öld mik­illa hörm­unga, að mestu af manna­völdum. Tvær mann­skæð­ustu styrj­aldir sög­unnar voru háðar, kjarn­orku­vopn þróuð og notuð á borgir, millj­ónir féllu úr hungri vegna ógn­ar­stjórnar í nafni komm­ún­isma í Kína, Úkraínu og víðar, þjóð­ar­morð voru framin, kreppan mikla skall á og vita­skuld far­sóttir, þar á meðal spænska veikin.

Undir lok síð­ustu aldar, með nýja í sjón­máli, var þó hægt að fyll­ast bjart­sýni. Hrun sov­ét­kerf­is­ins virt­ist marka enda­lok kalda stríðs­ins og gera þriðju heims­styrj­öld­ina nán­ast óhugs­andi. Lýðræðið hafði sigrað ger­ræðið, vís­indi og vel­megun veittu öfl­uga vörn gegn far­öldrum og öfl­ugir, stórir og skil­virkir fjár­mála­mark­aðir rík­ustu landa heims áttu að geta staðið af sér hvaða efna­hags­á­föll sem er. Við blasti friður, lýð­ræði og vel­megun í sífellt fleiri löndum. Þótt enn væru margir jarð­ar­búar sára­fá­tækir þá fækk­aði þeim í sífellu eftir því sem fleiri ríki náðu tökum á sínum efna­hags­málum.

Hryggjar­stykkið í Sov­ét­ríkj­unum, Rússland, sleppti hend­inni af nýlendu­veldi sínu, henti komm­ún­istum út, leyfði frjálsa fjöl­miðlun, hélt kosn­ingar og einka­væddi. Slíkt Rússland virt­ist ætla að verða hættu­lítið fyrir heims­frið­inn, þótt það fengi þús­undir kjarna­vopna í vöggu­gjöf frá for­ver­anum. Vissu­lega bjuggu ekki nándar nærri allir jarð­ar­búar við lýð­ræði. Fjöl­menn­asta ríki heims, Kína, var stjórnað af flokk­sklíku en jafn­vel þar virt­ist áherslan fyrst og fremst vera á við­skipti og aukna vel­megun. Lífskjör þar eystra snar­bötn­uðu eftir margra ára­tuga hörm­ungar og Kína varð stærsta iðn­ríki heims.

21. öldin hófst var hins vegar varla hafin þegar þessi fagra fram­tíð­ar­sýn föln­aði. Stríð og hryðju­verka­árásir voru ekki liðin tíð. Írak, Sýrland, Afganistan og mörg fleiri ríki voru hart leikin. Tví­bura­t­urn­arnir hrundu. Frið­ur­inn var úti.

Plágur 20. ald­ar­innar sneru síðan aftur hver á fætur annarri. Fjár­málakrísa skall á 2008. Alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu og fjöl­mörgum gal­tómum rík­is­kössum var bjargað með miklum harm­kvælum. For­dæma­laus pen­inga­myndun helstu seðla­banka bjarg­aði rík­is­sjóð­unum, hélt öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum á floti og kýldi upp eigna­verð sem ella hefði verið í frjálsu falli.

Rétt þegar menn náðu and­anum aftur eftir fjár­málakrís­una kom svo Covid. Þótt mann­tjónið yrði ekki nándar nærri jafn­mikið og í verstu heims­f­ar­öldrum sög­unnar þá var efna­hags­á­fallið gríð­ar­legt og auð­vitað öll sú röskun á mann­líf­inu sem af far­aldr­inum leiddi. Við­brögðin við efna­hags­á­fall­inu af hálfu hins opin­bera voru um margt furðu­lík þeim sem gripið hafði verið til rúmum ára­tug áður. Prent­vélar helstu seðla­banka voru ræstar á ný, með enn meiri afköstum en í fjár­málakrís­unni. Þegar mest gekk á, vorið 2020, bjó seðla­banki Banda­ríkj­anna til 1.000 millj­arða Banda­ríkja­dala á mán­uði, miklu meira en haustið 2008.

Covid var auð­vitað ekki búið, þótt það virt­ist glitta í ljósið við ganga­munn­ann, þegar þriðja stór­á­fallið skók heims­byggð­ina. Mestu styrj­ald­ar­á­tök í Evrópu frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar vegna árásar Rúss­lands á Úkraínu. Vit­firr­ings­leg til­raun Pútíns Rúss­lands­for­seta til að end­ur­reisa sov­éska nýlendu­veldið hefur valdið dauða þús­unda, sprengt stóra hluta Úkraínu í tætlur og valdið raun­veru­legri hættu á þriðju heims­styrj­öld­inni, milli Nató og Rúss­lands. Jafnvel gætu Kín­verjar dreg­ist inn í átökin við hlið Rússa. Beitingu kjarn­orku­vopna er hótað. Millj­ónir eru á örvænt­ing­ar­fullum flótta.

Þegar þetta er ritað liggur ekki fyrir hvernig og hvenær stríð­inu í Úkraínu lýkur. Það er því vart annað hægt en að skoða sviðs­myndir, sem liggja svona nokkurn veg­inn á róf­inu frá kjarn­orku­stríði stór­veld­anna og yfir í stríðs­lok og frið­ar­samn­inga ein­hvern tíma á næst­unni. Besta sviðs­myndin er lík­lega að Rússar sparki blóð­þyrsta ein­ræð­is­herr­anum í Moskvu út í hafs­auga og landið verði frið­sælt lýð­ræð­is­ríki, í sátt og sam­lyndi við nágranna sína. Það hljómar sem óhóf­leg bjart­sýni nú en höfum í huga að þetta tókst í flestum öðrum hlutum sov­ét­veld­is­ins fyrr­ver­andi fyrir rúmum 30 árum.

„Besta sviðs­myndin er lík­lega að Rússar sparki blóð­þyrsta ein­ræð­is­herr­anum í Moskvu út í hafs­auga“

Pútín hefur valdið sinni eigin þjóð skelfi­legu tjóni með þessu feigð­ar­flani sínu, þús­undir her­manna hafa fallið, her­gögn tap­ast, landið er ein­angrað með orðstír í rúst og sætir hörð­ustu efna­hags­þving­unum sem um getur. Jafnvel þótt stríð­inu ljúki og samið verði um afnám þving­ana þá mun Rússland ekki ná aftur sömu efna­hags­legu stöðu í ljósi þess að lönd Vestur-Evrópu munu leggja allt kapp á að verða ekki í fram­tíð­inni háð Rúss­landi í orku­málum. Það er líka kald­hæðni örlag­anna fyrir Pútín að bröltið í honum hefur ekki bara sam­einað Úkra­ínu­menn heldur gefið Nató skýrt hlut­verk og til­gang og stór­aukið stuðn­ing við það, meðal ann­ars í Svíþjóð og Finn­landi. Norð­ur­löndin tvö gætu jafn­vel gengið í banda­lagið þrátt fyrir hót­anir Pútíns um að það hefði slæmar afleið­ingar.

Raun­ger­ist bjartasta sviðs­myndin, friður kemst á í Úkraínu og lýð­ræði í Rúss­landi (og Hvíta-Rúss­landi) þá verður tjónið vegna stríðs­ins í Úkraínu vissu­lega veru­legt og mann­fallið skelfi­legt en efna­hags­á­fallið verður ekki var­an­legt. Skemmd­irnar eru þegar orðnar miklar en í hinu stóra sam­hengi hlut­anna vel við­ráð­an­legar. Einhvers konar Marshall-aðstoð frá nágranna­lönd­unum í vestri gæti gert Úkraínu kleift að byggja hratt upp aftur heim­ili, inn­viði, verk­smiðjur og annað sem hefur eyði­lagst í stríð­inu. Fram­tíð­ar­horfur fyrir efna­hags­lífið væru bjartar í gjöf­ulu landi með nán­ari sam­þætt­ingu við löndin í vestri og lík­lega inn­göngu í ESB. Úkraína hefði alla burði til að bjóða íbúum sínum svipuð lífs­kjör og til dæmis í Póllandi eða Eystra­salts­ríkj­unum eftir til­tölu­lega stuttan tíma.

Aðrar sviðs­myndir eru miklu dekkri. Langvar­andi stríðs­á­tök, lepp­stjórn, skipt­ing lands­ins í austur og vestur og jafn­vel átök sem blossa upp hvað eftir annað – Rússar hafa ráð­ist þrisvar inn í Úkraínu frá árinu 2014 og gætu hæg­lega gert það oftar. Jafnvel kalt stríð yrði óhemju dýrt. Lönd Vestur-Evrópu hafa nú hvert á fætur öðru til­kynnt um stór­auknar fjár­veit­ingar til varn­ar­mála, oft miðað við 2% af vergri lands­fram­leiðslu. Það er sár­græti­legt að verja slíku fé í her­menn og stríðstól, jafn­vel þótt stríðstólin standi ónotuð. Í köldu stríði með Úkraínu sem mið­punkt myndu Úkra­ínu­menn sjálfir þurfa að verja óhemju fé í varn­ar­mál, mun meira en 2% af lands­fram­leiðslu, og vita­skuld Rússar líka.

Slíkt kalt stríð myndi bæt­ast við aðrar áskor­anir sem Evr­ópu­lönd og raunar heim­ur­inn allur stendur frammi fyrir. Sér­stak­lega skiptir hnatt­ræn hlýnun máli en einnig lýð­fræði­leg þróun því að Evr­ópu­búar eru að eld­ast hratt, upp­gangur and­lýð­ræð­is­legra afla í ýmsum Evr­ópu­löndum og Banda­ríkj­unum er ískyggi­legur og margt fleira. Það er líka alveg óleyst vanda­mál hvernig og hvort á að vinda ofan af öllum þeim aðgerðum sem gripið var til af helstu seðla­bönkum heims, fyrst vegna fjár­málakrís­unnar og svo vegna Covid.

Þróunin í Kína er líka veru­legt áhyggju­efni. Stjórn­völd í Peking hafa ekki beitt her sínum svo að heitið getur utan landamær­anna ára­tugum saman en veitt óhemju fé í að byggja hann upp og beita mik­illi hörku inn­an­lands þegar þeim þykir sér ógnað. Minni­hluta­hópar, eins og Uighurar, sæta ofsóknum, stjórnin í Peking sveik gefin lof­orð um að varð­veita sér­stöðu Hong Kong og er með sífellt meira ógn­andi til­burði vegna Taívan.

Kína er miklu öfl­ugra ríki hern­að­ar­lega og efna­hags­lega en Rússland og öll átök milli lands­ins og vest­ur­velda, jafn­vel þótt ekki brjót­ist út stríð, gætu valdið miklu tjóni. Það virð­ist enn ólík­legra að Kína breyti um stefnu og þró­ist í lýð­ræð­isátt en að Rússland geri það. Kverka­tak komm­ún­ista­flokks­ins er of sterkt. Meðan flokk­ur­inn getur skilað bættum lífs­kjörum, stýrt fjöl­miðlun og raunar öllu aðgengi að upp­lýs­ingum og mis­kunn­ar­laust bælt niður andóf þá missir hann ekki auð­veld­lega stjórn­ar­tökin. Staðan er allt önnur í Rúss­landi þar sem Pútín er með allt niður um sig, lífs­kjör fara hratt versn­andi, stjórn­kerfið er ger­spillt, landið ein­angrað og jafn­vel helsta stoltið, her­inn, er að bíða nið­ur­lægj­andi ósigur. Það gæti sópað Pútín út af svið­inu en það er auð­vitað engin trygg­ing fyrir að ekki komi annar svip­aður í stað­inn, jafn­vel verri. Það er engin lýð­ræð­is­hefð í Rúss­landi.

„Það er auð­vitað engin trygg­ing fyrir að ekki komi annar svip­aður í stað­inn, jafn­vel verri“

Við á Íslandi leikum ekki stórt hlut­verk á heims­svið­inu en þurfum að takast á við það sem að okkur snýr. Í varn­ar­málum er staðan fyrir Ísland til­tölu­lega ein­föld, við erum og verðum her­laus þjóð í Nató. Ekkert annað er í sjón­máli. Getum búist við meiri umsvifum Nató hér­lendis en það hefur vart telj­andi áhrif á mann­líf eða efna­hags­líf. Hryðju­verkaógn eða hætta á netárásum kalla kannski á við­búnað inn­lendra aðila en það ætti að vera vel leys­an­legt við­fangs­efni.

Í efna­hags­málum er líka ekk­ert annað í sjón­máli en að halda okkar striki, þétt upp að nágranna­lönd­unum og sam­stíga þeim, meðal ann­ars þegar kemur að efna­hags­legum refsi­að­gerðum. EES-samn­ing­ur­inn með sínum kostum og göllum mun áfram móta umgjörð íslensks efna­hags­lífs. Sam­skiptin við Rússland gætu orðið góð eftir Pútín en það fer þó auð­vitað eftir því hver þró­unin verður þar. Ólýð­ræð­is­legt Rússland með for­ystu sem dreymir um end­ur­reisn hrun­ins nýlendu­kerfis verður ekki góður félagi í við­skiptum eða öðrum sam­skiptum. Íslandi tókst þó furðu­vel að eiga við­skipti við Sov­ét­ríkin á sínum tíma, meðal ann­ars umfangs­mikil vöru­skipti.

Stríðið í Úkraínu hefur ein­hver efna­hags­á­hrif hér­lendis til skamms tíma en varla veru­leg ef átökin breið­ast ekki út. Við­skipti við Rússland, Hvíta-Rússland og Úkraínu vega ekki það þungt í íslensku efna­hags­lífi. Hækkun á olíu og ýmsu öðru sem við flytjum inn skiptir máli en það er vel við­ráð­an­legt. Áhrifin á ferða­þjón­ustu gætu orðið ein­hver en erfitt að leggja mat á það nú.

Það verður erf­ið­ara að móta stefnu gagn­vart Kína. Raunar veru­leg áskorun. Íslend­ingum stendur engin aug­ljós hern­að­arógn af Kín­verjum og við­skipti milli land­anna hafa verið líf­leg, meðal ann­ars á grund­velli frí­versl­un­ar­samn­ings. Hve langt við viljum ganga til að tengj­ast Kín­verjum er engu að síður veru­legt álita­mál. Samúð Íslend­inga liggur hjá hinum und­ir­ok­uðu og við styðjum lýð­ræði, mann­rétt­indi og tján­ing­ar­frelsi. Kunnum, sem betur fer, ekki að þegja og viljum það ekki. Það getur hæg­lega leitt til árekstra við komm­ún­ista­stjórn­ina í Peking. Smáríki sem strjúka Kína­stjórn öfugt eiga ekki von á góðu. Litháar fundu fyrir því í fyrra þegar þeir settu vit­laust (frá sjón­ar­hóli Peking) skilti á sendi­skrif­stofu Taívana í Vilníus. Þá froðu­felldu orðum hlaðnir komm­ún­ista­leið­tog­arnir. Norðmenn fengu svip­aðar send­ingar þegar þeir veittu vit­lausum (frá sjón­ar­hóli Peking) manni frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2010, and­ófs­mann­inum Liu Xiaobo. Það kall­aði yfir Norðmenn refsi­að­gerðir Kínverja í sex ár. Litáar geta átt von á ein­hverju svip­uðu.

Við aðstæður sem þessar er ekki hægt annað en að fagna því að hafa fæðst og búa í frið­sælu lýð­ræð­is­ríki með afar góð lífs­kjör. Vonandi munu miklu fleiri jarð­ar­búar ná þeirri stöðu á 21. öld­inni, þótt öldin hafi nú ekki byrjað sér­stak­lega gæfu­lega. Við sem búum við þessi for­rétt­indi hljótum að gera hvað við getum til að reyna að stuðla að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár