Ólýsanlegt ástand á brautarstöðinni í Varsjá

Endalaus straumur flótta­manna liggur út úr Úkraínu og yfir til Póllands. Börn og gam­al­menni liggja á gólfum hvar sem pláss finnst. Þó geta ekki allir flúið stríðið. „Amma kemst ekk­ert, nema til guðs,“ sagði hin úkra­ínska Natasha Páli Stef­áns­syni ljós­mynd­ara á aðal­braut­ar­stöð­inni í Varsjá.

„Maður sem þekkir mann, sem þekkir mann, sem þekkir mann, gaf okkur síma­númer hjá úkra­ínskum strák í Prag. Við erum á leið­inni þangað með rútu. Hann ætlar að skjóta skjóls­húsi yfir okkur,“ segir Natasha, list­nemi frá Kharkiv, sem var ásamt nöfnu sinni og ljós­mynda­nema á yfir­fullri rútu­stöð Var­sjár­borgar í gær. Það var enda­laus umferð hóp­ferða­bíla að koma austan frá Úkraínu, fullra af konum og börnum, sem halda síðan áfram um alla álf­una. 

Örtroð og kaosFólk bíður í röðum eftir því að kom­ast í lestir á aðal­braut­ar­stöð­inni.

Það var skipu­lagt kaos á rútu­stöð­inni. Á aðal­braut­ar­stöð­inni í Varsjá var ástandið ólýs­an­legt. Alltof margt fólk, börn og gam­al­menni sof­andi á gólf­inu hvar sem var pláss. Aðrir að reyna tryggja sér miða, langt í burtu frá þessu stríði. Óformleg könnun sem ljós­mynd­ari gerði leiddi í ljós að straum­ur­inn liggur að tölu­verðu leyti til Þýska­lands, Þjóð­verjar bjóða fólki fría lestar­ferð þangað frá Póllandi. Nokkrum lang­aði til Bret­lands, en það land virð­ist lokað flótta­fólki frá Úkraínu eins og er. Flestir voru þó að færa sig til innan Póllands, því þegar Pól­verjar hafa flutt burt, til dæmis til Íslands, hafa Úkra­ínu­menn mannað þau störf sem þarf að manna.

Reynt að hafa ofan af fyrir börn­unumLítil stúlka horfir á teikni­myndir í síma móður sinnar á meðan beðið er þess sem framundan er.

En það eru ekki allir á leið­inni í burt segir Natasha þegar við horfum á enn eina rút­una leggja fyrir utan rútu­stöð­ina. „Mamma varð eftir, hún gat ekki hugsað sér að fara frá hreyfi­haml­aðri móður sinni. Amma kemst ekk­ert, nema til guðs, svo fóta­fúin er hún. En hún man vel eftir seinni heim­styrj­öld­inni, hungr­inu, kuld­anum og grimmd­inni. Þegar ég heyrði í mömmu í fyrra­dag var ekk­ert raf­magn og þær mat­ar­lausar, húsið dimmt og ískalt. Er sagan að end­ur­taka sig?“

Fylgst með fréttumFólk reynir að átta sig á stöð­unni heima fyrir í Úkraínu með því að skoða sam­fé­lags­miðla og frétta­síður.
Á leið til Þýska­landsÞessi full­orðnu skötu­hjú biðu eftir rútu til Þýska­lands.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár