684. spurningaþraut: Hve langt er milli Parísar og London?

684. spurningaþraut: Hve langt er milli Parísar og London?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í Svarta­skógi í Þýska­landi renna saman tvær litlar ár sem heita Brigach og Breg. Hvað heitir áin sem þá verður til?

2.  Í hvaða landi er Lukashenka for­seti?

3.  Hljóð­færi eitt alkunn­ugt dregur nafn sitt af ítölsku orði sem þýðir „hljóð­lega“ eða eitt­hvað í þá átt­ina. Hvaða hljóð­færi er það?

4.  Ingólfur Arnarson er sagður hafa bælt niður upp­reisn írskra þræla á Íslandi rétt eftir að land­nám hans hófst. Hvar réði hann nið­ur­lögum þræl­anna?

5.  Hver af eft­ir­töldum hefur EKKI verið for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands: — James Callaghan — William Cavendish-Bentinck — Ulysses Simpson Grant — Andrew Bonar Law — David Lloyd George — John Major? 

6.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Tajikistan?

7.  Anna Boleyn hét kona sem átti fræga dóttur. Hvað hét dóttirin?

8.  Insúlín er notað við hvaða sjúk­dómi?

9.  Hvað vann Nostradamus sér til frægðar?

10.  Hversu langt ætli sé milli Parísar og London í beinni loft­línu? Eru það 340 kíló­metrar — 540 kíló­metrar — 740 kíló­metrar — 940 kíló­metrar eða 1.140 kíló­metrar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Dóná.

2.  Belarús eða Hvíta-Rússland.

3.  Píanó.

4.  Í Vest­manna­eyjum.

5.  Grant var for­seti Banda­ríkj­anna.

6.  Asíu.

7.  Elísabet Eng­lands­drottn­ing.

8.  Syk­ur­sýki.

9.  Hann setti fram fræga spá­dóma.

10.  340 kíló­metrar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin á Suð­ur­pólnum þegar menn mættu þar fyrst til leiks árið 1912.

Á neðri mynd­inni er þing­mað­ur­inn Björn Leví Gunn­ars­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Það er sem sagt styttra milli Akureyrar og Reykjavíkur en milli Lundúna og Parísarborgar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár