683. spurningaþraut: Hvaðan gerir Samherji út?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er þetta mann­virki er að ofan sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða bæ er menn­ing­ar­húsið Hof?

2.  Í hvaða stöðu sett­ist Svein Harald Øygard árið 2009?

3.  Hver lék aðal­karl­rull­una í bíó­mynd­inni Titanic fyrir ein­hverjum árum síðan?

4.  Hvaða fyr­ir­tæki stofn­aði Bill Gates við annan mann árið 1975?

5.  Hver skrif­aði bók­ina Da Vinci-lyk­ill­inn?

6.  Hvaða hljóm­sveit flutti lagið Let It Be fyrir all­löngu síðan?

7.  Samkvæmt heima­síðu útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja gerir það nú út átta skip frá Íslandi, flest frá Akureyri. Tog­ar­arnir Björg­úlfur og Björgvin eru þó skráðir og gerðir út frá ... hvaða stað?

8.  Álfur Birkir Bjarna­son var fyrir fáeinum dögum kjör­inn for­maður í sam­tökum nokkrum. Hvaða sam­tök eru það?

9.  Hvaða evr­ópska nýlendu­veldi réði á sínum tíma því svæði sem nú heitir Indónesía?

10.  Indónesía sam­anstendur af fjölda eyja eins og allir vita. Þar af eru fimm risa­stórar, allar stærri en Ísland. Nefnið þrjár af þessum eyjum?

 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er íþrótta­kona ein. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Akureyri.

2.  Hann varð Seðla­banka­stjóri á Íslandi.

3.  Leonardo DiCaprio.

4.  Microsoft.

5.  Dan Brown.

6.  Bítl­arnir.

7.  Dalvík.

8.  Samtökin 78.

9.  Hollands.

10.  Nýja Gínea, Borneó, Súmatra, Súlavesí og Java heita eyj­arnar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kirkjan á efri mynd­inni (Notre Dame) er í París.

Fót­bolta­konan á neðri mynd­inni heitir Sveindís Jane.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár