Brjálað að bræðraþjóðir berjist

Eftir að allt fór í hund og kött í Úkraínu flýr fólk með hunda sína og ketti úr landi undan sókn Rússa. Fólk er flutt unn­vörpum frá landamæra­stöðvum og inn í önnur Evr­ópu­lönd þar sem straum­ur­inn klofnar, fólk ýmist leitar húsa­skjóls eða leggur í lengri ferða­lög.

„Maðurinn minn getur ekki einu sinni drepið flugu. Nú er hann kom­inn með byssu, til að drepa Rússa. Hann var und­an­skilin her­skyldu, var í háskóla­námi, en er nú orðin her­maður,“ sagði hin úkra­ínska Anna við ljós­mynd­ara þar sem hún hélt á skjálf­andi læðu á lest­ar­stöð­inn í Kosice í Slóvakíu á leið til Þýska­lands. „Ég hef ekki heyrt í honum í viku, og... hann er hálfur Rússi. Við erum bræðra­þjóðir, vina­þjóðir, það gerir þetta stríð svo brjálað.“

Anna sagð­ist vera hepp­inn, þau væru barn­laus, svo það væri lítið mál að taka heim­il­is­kött­inn með sem skyldi ekk­ert í hvað væri að ger­ast, væri mjög hrædd, enda innikisa. „En það eru fjöl­skyldur, sem ég þekki sem höfðu ekki mögu­leika að taka hund­inn eða kött­inn með á flótta, það var bara eitt í stöð­unni... þú getur ekki ímyndað þér hve sárt það var, sér­stak­lega fyrir börnin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár