Ungbarnagráturinn í flóttamannabúðunum sker í hjartað

Páll Stef­áns­son er kom­inn til Uzhorod í Úkraínu, við landa­mærin að Slóvakíu. Þar eru flótta­menn og aftur flótta­menn frá Úkraínu sem bíða í óvissu um hvað verði um þá.

„Við erum búnir að vera strand hér í fjóra daga, það er eins og Slóvak­arnir viti ekki hvað eigi að gera við okkur,“ segir Mohamed, sem til­tekur að hann sé „ekki Salah“. Mohamed er íraskur lyfja­fræði­nemi sem var í námi í Kharkiv, annarri stærstu borg Úkraínu, sem liggur nærri rúss­nesku landa­mær­unum. Nokkur þús­und nem­endur frá löndum utan Evrópu stund­uðu háskóla­nám í Úkraínu, og flestir fara að landa­mærum Slóvakíu. „Okkur var ráð­lagt að fara hingað yfir, þó það væri lengra, okkur var sagt að Slóvak­arnir taki betur á móti fólki eins og okkur, sem erum ekki frá Evrópu, en Pól­verjarnir.“

Ástandið verra en í ÍrakÞrátt fyrir að vera upp­al­inn við stríðs­á­stand í heima­land­inu, Írak, segir Mohamed að ástandið í Úkraínu sé verra. „Rúss­arnir eru svo grimmir.“

Hann og félagi hans, lækna­nemi sem er líka frá Írak, voru fjóra daga í yfir­fullri lest til Slóvakíu. „Þó ég sé upp­al­inn við stríðs­á­stand heima í Írak þá er þetta miklu verra, Rúss­arnir eru svo grimmir. Morg­un­inn sem við fórum, þá skutu þeir á rútu með almennum borg­urum, á leið út úr Kharkiv. Svo við ákváðum að taka lest, það er örugg­ara.“ Mohamed segir að hann eigi ekki aura til að kom­ast heim, hann viti ekki hvort honum verði hjálpað, eða verði fastur í flótta­manna­búðum í lengri tíma. „Það versta við að vera hér í þessum litlu tjald­búðum er smá­barna­grát­ur­inn alla nótt­ina í næsta tjaldi. Það sker í hjartað, heldur fyrir manni vöku.“ 

Þúsundir flótta­fólksÞúsundir flótta­fólks streyma að landa­mærum Úkraínu og Slóvakíu og búa þar við nauman kost. Hér má sjá tóma súpu­skál.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár