682. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði fyrir þau sem þekkja ákveðna kvikmynd

682. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði fyrir þau sem þekkja ákveðna kvikmynd

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða hetja þurfti að passa sér­stak­lega upp á hæl­inn á sér?

2.  Í hvaða borg hefur enska fót­boltaliðið Arsenal aðsetur?

3.  Hvað hét skip Ahabs skip­stjóra?

4.  Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er borg­ar­full­trúi í Reykja­vík. Fyrir hvaða flokk?

5.  Í hvaða landi er borgin Gdynia?

6.  N'Sync var amer­ísk „drengja­hljóm­sveit“ sem var starf­andi 1995-2002. Meðlimir hennar hafa látið að sér kveða eftir að hljóm­sveitin hætti en einn þeirra er þó fræg­ari en allir hinir til sam­ans. Hvað heitir hann?

7.  Hvað er rosmhvalur?

8.  Rosmhvala­nes eru víst á fleiri en einum stað á Íslandi en það þekktasta gengur út úr öðru mun stærra nesi sem er ...?

9.  Sandra Day O'Connor heitir kona sem á víst pláss í sögu þjóðar sinnar. Hvers vegna?

10.  „I've seen things you people wouldn't beli­eve... Attack ships on fire off the shoulder of Orion... I watched C-beams glitter in the dark near the Tann­häuser Gate. All those moments will be lost in time, like tears in rain ... Time ... to die.“ Úr hvaða kvik­mynd er þessi texti? Og lár­við­ar­stig er í boði fyrir þau sem vita hvað per­sónan heitir sem mælti þessi orð. Persónan, ekki leik­ar­inn. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan með þennan fína hatt?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Akkiles.

2.  London.

3.  Pequod.

4.  Viðreisn.

5.  Póllandi.

6.  Justin Tim­berlake.

7.  Rost­ungur.

8.  Reykja­nesi.

9.  Hún er fyrsta konan sem varð Hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum.

10.  Blade Runner heitir kvik­myndin. Og per­sónan heitir Roy Batty — en ann­að­hvort nafnið dugar fyrir lár­við­ar­stig­inu!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er dans­mærin Mata Hari.

Á neðri mynd­inni er keis­ara­ynjan Alex­andra í Rúss­landi. Til hliðar er eig­in­maður hennar, Nikulás II keis­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Laumupúkinn hér... Rosmhvalanes gengur reyndar norður úr Reykjanesskaga. Skaginn er jú eins og stígvél þar sem Rosmhvalanes er táin og Reykjanes er hællinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár