Íslenskur Moskvubúi endurómar sjónarmið Pútíns um Úkraínu: „Mælirinn var fullur“

Jónas Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóri sem býr í Moskvu og stýrir lyfja­fyr­ir­tæki, seg­ist skilja af hverju Rússar réð­ust inn í Úkraínu. Jónas lærði í Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu og hefur búið í Rúss­landi um ára­bil. Hann segir að hann telji að ein­ungis tíma­spurs­mál sé hvenær Rússland leggi undir sig Úkraínu með her­valdi en vonar að Úkra­ínu­menn leggi niður vopn til að koma í veg fyrir mann­fall.

Íslenskur Moskvubúi endurómar sjónarmið Pútíns um Úkraínu: „Mælirinn var fullur“
Segir að staðan í Rúss­landi hafi aldrei verið betri Jónas Tryggva­son, sem er íslenskur fram­kvæmda­stjóri sem búsettur er í Moskvu, segir að ástandið í Rúss­landi hafi aldrei verið betra en núna, það er að segja fyrir inn­rás­ina í Úkraínu. Hann er á þeirri skoðun að Rússland hafi þurft á Pútín að halda þrátt fyrir að hann telji að landið sé ekki lýð­ræð­is­ríki.

Jónas Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóri sem býr í Moskvu og sem hefur ára­tuga­löng tengsl við Rússland og Sov­ét­ríkin sál­ugu, seg­ist skilja af hverju Rússland réðst inn í Úkraínu. Hans skoðun er að Úkraína hafi gengið alltof langt í því að „pikka“ í rúss­neska björn­inn, eins og hann orðar það, í landamæra­hér­uð­unum Donetsk og Lúgansk. Hann segir, í við­tali við Stundina, að „mælir­inn“ hafi ein­fald­lega verið orð­inn fullur.  

Tekið skal fram og það und­ir­strikað að ýmis­legt af því sem Jónas segir í við­tal­inu á ekki við rök að styðj­ast út frá öðrum heim­ildum og gögnum sem liggja fyrir opin­ber­lega. Sýn Jónasar svipar hins vegar vænt­an­lega til þeirra skoð­ana sem margir stuðn­ings­menn Pútíns í Rúss­landi hafa mögu­lega á stríð­inu í Úkraínu og veitir hún því inn­sýn í hug­ar­heim þeirra. Jónas er einn af fáum Íslend­ingum sem stigið hefur fram opin­ber­lega og tjáð slíkar skoð­anir og er hann vel með­vit­aður um það að slíkar skoð­anir heyr­ist ekki oft hér á landi. 

Jónas, sem stýrir lyfja­fyr­ir­tæki í Moskvu, telur að Rússland hafi ekki lengur getað látið bjóða sér að rík­is­stjórnin í Kænu­garði kúg­aði rúss­nesku­mæl­andi íbúa í þessum hér­uðum: „Ég held að ég verð að segja þetta svona, það kannski hljómar svo­lítið gróft, en þeir gátu ekki lengur lokað aug­unum fyrir því sem var í gangi. Þeir gátu ekki lengur látið níð­ast á 4 millj­ónum sinna bræðra, með­bræðra, sem voru búnir að vera í her­kví þennan tíma. Gátu það bara ekki lengur. Það varð eitt­hvað að gera,“ segir Jónas en í aðdrag­anda inn­rás­ar­innar í Úkraínu við­ur­kenndi Rússland sjálf­stæði þess­ara tveggja hér­aða sem verið hafa hluti af Úkraínu síð­ast­liðna ára­tugi. 

Engar heimildir um þjóðarmorð

Jónas vill meina, rétt eins og rík­is­stjórn Rúss­lands í Moskvu, að stjórn Úkraínu hafi verið að fremja þjóð­ar­morð á rúss­nesku­mæl­andi fólki í Donetsk og Lúgansk: „Úkraína er búin  að ætla að taka þessi lýð­veldi til baka með her­valdi. Og það hefði orðið meira „genocide“, eða þjóð­ar­morð, því það er búið að vera að murka úr þessu fólki lífið í 7 ár.“

Engar heim­ildir fyrir þjóð­ar­morðiEngar heim­ildir eru fyrir því að rík­is­stjórn Zelenskys Úkra­ínu­for­seta hafi stundað þjóð­ar­morð á rúss­nesku­mæl­andi fólki í Úkraínu, líkt og Vladimír Pútín og Jónas Tryggva­son halda fram.

Jónas gefur ekki mikið fyrir fréttir þess efnis að Rússland hafi verið að kynda undir ófriði í hér­uð­unum tveimur síð­ast­liðin ár, meðal ann­ars með því að senda þangað her­menn. Hann segir að það sem er í gangi sé að stór­veldin, Banda­ríkin og banda­menn þeirra séu að „leika sér“ í Úkraínu:  „Það eru búnir að vera evr­ópskir og banda­rískir hern­að­ar­sér­fræð­ingar að aðstoða Úkra­ínu­her við árás­irnar á þessi lýð­veldi, ekki gleyma því. [...] Rússar voru já, þú ert að vitna í her­menn, þeir hafa alltaf neitað því að að hafa sent her­menn, en hins vegar sendu þeira alltaf hern­að­ar­sér­fræð­inga til að þjálfa þetta fólk. Það hefur alltaf verið opin­bera skýr­ingin en það getur verið að það hafi verið her­menn líka.“

Fjöl­margir aðilar, meðal ann­ars banda­rísk stjórn­völd, hafa sagt að sú full­yrð­ing að Úkra­ínu­menn fremji þjóð­ar­morð á rúss­nesku­mæl­andi íbúum Úkraínu sé röng og sé hluti af upp­lýs­inga­stríði stjórn­valda í Moskvu: „Það eru engar trú­verð­ugar heim­ildir um að Rússar eða rúss­nesku­mæl­andi fólki sé ógnað af úkra­ínsku rík­is­stjórn­inni,“ segir meðal ann­ars á heima­síðu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem einnig kemur fram að stað­hæf­ingin sé liður í áróðri rúss­neskra stjórn­valda. 

Þá hefur sér­fræð­ingur um mál­efni Austur-Evrópu, Nina Jankowicz, sagt við banda­ríska fjöl­miðla að engar sann­anir séu fyrir slíku þjóð­ar­morði: „Við höfum engar sann­anir fyrir ára­sum Úkra­ínu­manna, eða eins og Pútín orð­aði það í ræðu sinni um dag­inn „þjóð­ar­morði“ sem Úkra­ínu­her ber ábyrgð á.“

„Nei, það er ekki alveg gróft.“
Jónas Tryggva­son um stað­hæf­ing­una um nas­ista­væð­ingu Úkraínu

Endurómar sýn Vladimírs Pútín

Sú sýn og þær skoð­anir á Rúss­landi og inn­rásinni í Úkraínu sem Jónas lýsir í við­tali við Stundina eru að  flestu leyti hlið­hollar Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Túlkanir Jónasar end­ur­óma að mörgu leyti þær skýr­ingar sem stjórn Pútíns hefur gefið fyrir inn­rásinni, meðal ann­ars þá að for­seti Úkraínu, Volodí­mír Selenskí, sé leppur úkra­ínskra auð­manna og að nýnas­istar séu orðnir valda­miklir í vest­ur­hluta lands­ins og að það þurfi að afnas­ista­væða landið.

Aðspurður um hvort þessi skýr­ing Pútíns á inn­rásinni sé ekki nokkuð gróf segir Jónas: „Nei, það er ekki alveg gróft. Það er svo­lítið mikið til í þessu. Vegna þess að það er mik­ill nýnas­ismi að koma upp aftur, sér­stak­lega á vest­ur­svæð­inum þar sem eru her­sveitir sem eru nas­istar. Þær eru gegn sam­kyn­hneigðum, trans­fólki, fólki sem trúir á Íslam. Þeir fara alla leið, eru svona algerir nas­istar, þetta eru her­flokkar. Þeir eru fjár­magn­aðir af rík­is­mönn­unum, ólígörk­unum í Úkraínu. Þetta er svona einka­her að vissu leyti. En Zelensky hefur þeirra stuðn­ing. Þetta eru svona varð­hund­arnir hans. Sem er mjög líka trist því hann er af gyð­inga­ættum.“

Stað­hæf­ing­arnar um nas­ista­væð­ingu Úkraínu ríma heldur ekki við veru­leik­ann. Eitt dæmi sem hefur verið tekið um þetta er að í síð­ustu þing­kosn­ingum í Úkraínu, árið 2019, fékk öfga­sinn­aði þjóð­ern­is­flokkur lands­ins, Svoboda ein­ungis 2,25 pró­sent atkvæða í land­inu og kom engum manni á þing. Stuðn­ingur við Svoboda í Úkraínu hefur í raun minnkað mjög á síð­asta ára­tug þar sem flokk­ur­inn fékk rúm 10 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum árið 2012. 

Sjálfur hefur Zelensky sagt um þessa stað­hæf­ingu Pútíns að hún sé ósönn. Hann er lýð­ræð­is­lega kjör­inn for­seti Úkraínu - fékk 73 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum árið 2019 - og er ekki yfir­lýstur nas­isti:  „Ykkur er sagt að við séum nas­istar. En hvernig getur þjóð sem missti 8 millj­ónir manna í stríð­inu við nas­ista stutt nas­isma? Hvernig get ég verið nas­isti?“ Kosn­inga­sigur Zelensky átti sér stað sama ár og öfga­þjóð­ern­is­sinna­flokkur lands­ins beið afhroð í þing­kosn­ingum. 

Þetta tvennt, hið meinta þjóð­ar­morð á rúss­nesku­mæl­andi fólki í hér­uð­unum tveimur sem nú hafa lýst yfir sjálf­stæði, og svo hin meinta nas­ista­væð­ing Úkraínu, stemma ekki við raun­veru­leik­ann sam­kvæmt þeim heim­ildum sem liggja fyrir. 

Miðað við fyr­ir­liggj­andi heim­ildir þarf því að leita annað eftir skýr­ingum á inn­rás Pútíns í Úkraínu. 

Eru ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum

Annað sem Jónas segir sem stemmir ekki við aðrar heim­ildir er sú rétt­læt­ing Rússa fyrir inn­rásinni að Úkra­ínu­menn séu að koma sér upp kjarn­orku­vopnum. Jónas segir um þetta að þetta hafi verið síð­asta kornið sem fyllti mæl­inn hjá Rússum: „Nú lýsir Úkraína því yfir á München-ráð­stefn­unni um öryggi Evrópu að þeir ætli að koma sér upp kjarna­vopnum. Þetta var held ég síð­asta kornið. Þá sagði Pútín hingað en ekki lengra.“ Eftir kalda stríðið og fall Sov­ét­ríkj­anna afhentu Úkra­ínu­menn kjarn­orku­vopn sín til Rúss­lands og hefur ekki ráðið yfir slíkum vopnum síðan. 

Þessi stað­hæf­ing er sam­bæri­leg við það sem rúss­nesk yfir­völd hafa sagt en utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, Sergei Lavrov,  hélt þessu meðal ann­ars fram fyrr í vik­unni.

Samkvæmt Alþjóð­legu kjarn­orku­mála­stofn­un­inni (IAEA) eru Úkra­ínu­menn hins vegar ekki að reyna að koma sér upp kjarn­orku­vopnum.  Samkvæmt yfir­manni stofn­un­ar­innar, Rafael Grossi, er til­gangur kjarn­orku­á­ætl­unar Úkraínu „full­kom­lega frið­samur“, eins og það er orðað í frétt Wall Street Journal. 

 

„Ég get alveg sagt þér það að hann hefur rosa­lega mik­inn stuðn­ing í Rúss­landi og í kerf­inu.“
Jónas Tryggva­son

Segir Rússa standa með Pútín

Eitt af því sem Jónas segir, aðspurður um hvort að Rússar muni rísa upp og and­mæla inn­rásinni í Úkraínu til að reyna að binda enda á hana, er að þeir muni þvert á móti fylkja sér á bak við hana. Þar af leið­andi muni þessi inn­rás ekki heldur leiða til þess að Pútín missi völdin í land­inu. „Ég held að það sé alveg klárt. Rúss­arnir eru rosa­lega mikið þannig að þeir standa saman, sér­stak­lega þegar illa gengur eða erfitt er ástand þá standa þeir rosa­lega vel saman.“

Hann telur hins vegar að gagn­rýni á Pútín kunni að koma fram eftir að inn­rásinni er lokið: „Þá kemur krítíkin upp en hún ger­ist ekki meðan að stríðs­á­standið er. Það er mjög djúpt í þeim. Það myndi vera talið land­ráð, það er mjög djúpt í þeim að ekki gagn­rýna stjórn­völd, ekki gagn­rýna her­inn þegar það eru hern­að­ar­á­tök. Það er hægt að gagn­rýna eftir á en ekki á meðan,“ segir Jónas. 

Hann segir einnig að alltof mikið sé fjallað um stjórn­ar­and­stæð­inga eins og Alexei Navalny í vest­rænum fjöl­miðlum og að slíkir ein­stak­lingar séu í algjörum minni­hluta í land­inu og end­ur­spegli ekki vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar. Navalny situr nú í fang­elsi í Rúss­landi vegna stjórn­mála­þátt­töku sinnar. Eitrað var fyrir honum árið 2020 og var hann lengi á sjúkra­húsi vegna þessa. Óljóst er hver eitr­aði fyrir honum en Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa sagt að  rúss­nesk stjórn­völd beri ábyrgð á til­ræð­inu.  „Þessi minni­hluti er svo ofboðs­lega lít­ill. Það er alltaf verið að reyna að blása hann upp hérna á Vest­ur­löndum. Maður sér það stundum eins og með Navalny og ein­hverja svona náunga. Þetta er til­búið fólk, það er búið að fabrikera það svo­lítið. Það hefur ekki vægi. Það eru gagn­rýnar útvarps­stöðvar, þú getur líka horft á BBC og CNN og allt það í Rúss­landi en það er hins vegar, og það er ekki stór hópur sem er þarna. Þannig að það verður ekki upp­reisn,“ segir Jónas um við­brögð almenn­ings við inn­rásinni í Úkraínu en sagðar hafa verið frétttir um fjölda­mót­mæli gegn stríðs­rekstr­inum og hand­tökum vegna þeirra. 

 Fréttir hafa einnig verið sagðar um óein­ingu og gagn­rýni á Pútín innan úr rúss­neska stjórn­kerf­inu og að ekki sé endi­lega allir næst­ráð­endur fylgj­andi aðgerðum hans í Úkraínu. Jónas segir hins vegar að stuðn­ingur við Pútín sé mjög mik­ill í kerf­inu í Rúss­landi: „Ég get alveg sagt þér það að hann hefur rosa­lega mik­inn stuðn­ing í Rúss­landi og í kerf­inu. Það verða ekki nein upp­hlaup þar.“

Hvorki rúss­neska fólkið né rúss­neskir ráða­menn munu verða til þess að binda endi á inn­rás­ina í Úkraínu að mati Jónasar. 

Samkvæmt fjöl­mörgum fréttum er stuðn­ingur Rússa við Pútín og stríðs­rekst­ur­inn í Úkraínu hins vegar ekki alveg eins blindur og Jónas segir að hann sé. 

Hver ber ábyrgð á dauða Polit­kovskayu?Anna Polit­kovskaya var skotin fyrir utan heim­ili sitt í Moskvu árið 2006. Enn þann dag í dag liggur ekki fyrir hver ber ábyrgð á dauða hennar.

Jónas: Stríðið markar ekki endalok Pútíns

Aðspurður um hvort hann telji að stríðið við Úkraínu muni því ekki marka enda­lok Pútíns, eins og ýmsir fræði­menn og grein­endur hafa sagt, segir Jónas að hann sé ekki á því að það verði bana­biti Pútíns á valda­stóli.  „Ég er ekki sam­mála því. Það er ekki þetta sem á eftir að gera úts­lagið. Pútin er nátt­úru­lega búinn að vera lengi við völd. Það eru komin 22 eða 23 ár síðan hann kemur til valda. [...] Rúss­arnir vita ekki hvað ger­ist, hver kemur í stað­inn fyrir hann. Þeir eru ekki alveg til­búnir að sleppa honum. Það má ekki gleyma því að Pútín hefur gert rosa­lega margt fyrir Rússland. Rússland, þegar hann tekur við 1999, var ónýtt Rússland. Nið­ur­brotið, skemmt, vargöld, þjófn­aður, spill­ing, glæpir, mjög dap­urt ástand. Á árunum 1995-1999 er ömur­leg­asta ástandið í Rúss­landi. Fylli­byttan Boris Jeltsín var for­seti, engin stjórn á málum. En Pútín er búinn að byggja upp Rússland í þessi tutt­ugu ár, mjög mark­visst. Og Rússland í dag, fyrir inn­rás­ina, eins og ég upp­lifi í landið í byrjun febr­úar á þessu ári, er það besta Rússland sem hefur verið í mann­kyns­sög­unni, í sögu Rúss­lands. Það hefur aldrei verið betra ástand. Lífs­af­koma fólks er góð og fátækra­stig er mjög lágt. Innkoma, öryggi, fjár­fest­ingar, upp­bygg­ing, menntun, heil­brigð­is­kerfi. Covid dæmið, þeir tóku mjög þétt á því. Þetta er þjóð­fé­lag sem getur, þetta er þjóð­fé­lag sem kann, þetta er þjóð­fé­lag sem er búið að byggja upp til að vera sjálf­bært,“ segir hann.

„Og þeir segja þetta sjálfir: Rússland þarf harða hendi.“
Jónas Tryggva­son

Kaupir ekki sögur um aðkomu Pútíns að morðum

Jónas telur því að Rússland hafi þurft á Pútín að halda á sínum tíma vegna þess að upp­lausn og glund­roði ríkti í land­inu eftir fall Sov­ét­ríkj­anna og valda­tíð Boris Jeltsín. Hann segir að það Rússland sem Pútín hafi byggt upp síð­ast­liðin rúm 20 ár sé „besta Rússland“ sög­unnar þrátt fyrir að hann telji jafn­framt aðspurður að landið sé ekki lýð­ræð­is­ríki í vest­rænum skiln­ingi. Jónas telur að Rússland sé, á þessum tíma­punkti, ekki til­búið til þess að verða lýð­ræð­is­ríki eins og það er þekkt á Vest­ur­löndum. „Við skulum segja að Rúss­landi í dag sé eins nálægt því að vera lýð­ræð­is­ríki eins og það hefur nokkuð tím­ann verið.“

Hann tekur ekki undir ýmis konar gagn­rýni sem komið hefur fram á Pútín í gegnum árin. Til dæmis efast hann um að hann eigi þátt í morðum á fólki sem hefur gagn­rýnt stjórn­ar­hætti hans. Meðal þessa fólks sem fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum er til dæmis fyrr­ver­andi njósn­ar­inn Alex­ander Lit­vinenko, blaða­konan Anna Polit­kovskaya og lög­mað­ur­inn Sergey Magnit­sky. 

Þetta fólk var allt gagn­rýnið á Vladimír Pútín og öll voru þau myrt án þess að það hafi nokkru sinni verið upp­lýst hver bar end­an­lega ábyrgð á dauða þeirra. „Ég ætla ekki alveg að kaupa þær sögur,“ segir Jónas þegar hann er spurður að því hvort frjálsir fjöl­miðlar og frjáls gagn­rýni á vald­hafa sé ekki eitt af ein­kennum lýð­ræð­is­sam­fé­laga og hvort Pútín stjórni ekki land­inu með harðri hendi og hafi verið sagður bera ábyrgð á þessum morðum. 

Hörð hendi en árang­urs­ríkJónas segir að Rússland hafi þurft á Pútín að halda og þurfi enn því land­inu þurfi að vera stjórnað með harðri hendi.

Segir Rússland þurfa harða hendi

Að mati Jónasar þá þarf Rússland harðan leið­toga sem hefur stjórn á land­inu. Veikir leið­togar hafi aldrei gert Rúss­landi gott líkt og hinn harði Pútín hafi gert síð­ast­liðna tvo ára­tugi.  „En hann hefur hins vegar stjórnað með harðri hendi. Það er rétt. Þeir hafa alltaf sagt líka Rúss­arnir að Rússland þarf harða hendi. Rússland hefur aldrei kom­ist á neinn skrið nema þegar hefur verið harður og vold­ugur stjórn­andi. Pétur mikli, Katrín mikla. Síðan koma hinir keis­ar­arnir á eftir, Alex­ander og Nikolai og þeir eru slakir, þeir eru svona bóhemar og missa þetta alveg í algjört klúður og þá verður bylt­ingin. Svo kemur aftur hörð hendi, Lenín var bara í stuttan tíma en þá kemur Stalín og það var hörð hendi í langan tíma. Þá voru Sov­ét­ríkin eða Rússland eða Sov­ét­ríkin í heild­ina mjög sterk, þau byggðu upp úr ves­öld og fáfræði og bænda­sam­fé­lagi upp í að vera mjög öfl­ugt iðn­að­ar­sam­fé­lag. Síðan kemur aftur slök hendi í lok Sov­ét­tím­ans og Gor­bat­sjov - margir Rússar fyr­ir­líta Gor­bat­sjov enn þann dag í dag, enda þótt hann hafi verið gerðar hetja hér fyrir vestan - þá fyr­ir­líta þeir hann fyrir að hafa klúðrað Sov­ét­ríkj­unum, fyrir að hafa eyði­lagt það sem var. [...] Aftur harða hendin og slaka hendin. Síðan kemur aftur slaka hendin, Jeltsín og allt þetta rugl og síðan kemur aftur þessi harða hendi sem er Pútín. Og þeir segja þetta sjálfir: Rússland þarf harða hendi.“

Tétsenía og Úkraína: Hvað gerist?

Samtalið við Jónas berst að stríð­inu í Tétseníu sem lauk fyrir þrettán árum.  Það hófst þegar Tétsenía lýsti yfir sjálf­stæði frá Rúss­landi og börð­ust þar­lendir aðskiln­að­ar­sinnar við rúss­neska her­inn. Þetta stríð var­aði nærri ára­tug og lauk árið 2009 með því að Rússland hafði betur og tók þar­lendur land­stjóri, Ramzan Kadyrov, við völdum í land­inu. Tétsenía er í dag sam­bands­lýð­veldi sem er hluti af Rúss­landi ásamt öðrum smá­ríkjum í Kákásus-fjöll­unum eins og Dagestan og Ingustíu. 

Kadyrov er dyggur stuðn­ings- og sam­verka­maður Vla­dimírs Pútíns og stýrir land­inu í skjóli hans. Ramzan Kadyrov hefur í gegnum árin verið sagður bera ábyrgð á ýmsum voða­verkum, eins og morðum í heima­land­inu, sem og aftök­unni á blaða­kon­unni Önnu Polit­kovskayu.  Kadyrov hefur sent her­menn til Úkraínu til að berj­ast með rúss­neska hernum. 

Þegar stríðið í Tétseníu stóð yfir lagði rúss­neski her­inn höf­uð­borg­ina Grosní í rúst. Stríðið í land­inu var hið fyrsta sem Vladimír Pútín stýrði sem nýr for­seti Rúss­lands árið 1999.  Samkvæmt Jónasi þá hefur sam­starf Pútíns og Kadyrov verið til góða fyrir Tétseníu og hann er ekki sam­mála þeirri sögu­skoðun blaða­manns að Kadyrov hafi verið settur yfir landið sem leppur Pútíns. „Ég er ekki alveg sam­mála þess­ari sögu­skoðun. [...] Téténía er í dag eitt af fram­sækn­ustu hér­uðum Rúss­lands. Þeir eru búnir að byggja Grosní upp alveg frá grunni. [...] Innan Téténíu hafa alltaf verið svona klan, svona hópar og Kadyrov kemur úr einum af þessum hóp og þeir voru studdir af Rússunum en þau voru að berj­ast við aðra hópa. [...] Þetta er búið að vera árhund­raða stríð  í gangi á milli þessa flokka. En nú er friður á milli þeirra,“ segir Jónas.

Munurinn á Úkraínu og Tétseníu er auð­vitað stór þar sem fyrr­nefnda landið er sjálf­stætt lýð­ræð­is­ríki sem Rússland réðst inn í á for­sendum „þjóð­ar­morðs“ og „nas­ista­væð­ingar“, sem ekki virð­ast stand­ast skoðun, á meðan Tétsenía var hluti af Rúss­landi en þar sem ein­hverjir hópar vildu sjálf­stæði. En hvað telur Jónas að ger­ist í Úkraínu? Heldur hann að Pútín vilji her­taka landið allt og búa til ein­hvers konar lepp­ríki úr því þar sem æðsti stjórn­and­inn verður ein­hver eins og Kadyrov sem er trúr honum? Geta Rússar rústað Kænu­garði eins og Grosní þar til þeir ná mark­miðum sínum? 

Um þetta segir Jónas: „Ég held ekki. Ég held að leik­ur­inn sé, eins og þeir segja, að afvopna­væða Úkraínu, dem­ilita­sera, og afnas­ista­væða Úkraínu. Það er planið og verja svo Lúgansk og Donetsk að þau verði alger­lega sjálf­stæð, þau brotna ekki frá, þau fara ekki inn í Úkraínu aftur. Þetta verður gert á ein­hvern þann hátt að það verða kosn­ingar. Þær verða skipu­lagðar, þær verða með eft­ir­liti, þær verða gerðar þannig að þær verði lög­legar og það verður ein­hver nið­ur­staða.  [...] En svo verður Úkraína látin í friði eftir það ef hún afvopna­væð­ist, ef hún lýsir yfir hlut­leysi og það verði ekki neinir erlendir herir í land­inu.“

Miðað við það sem Jónas telur þá ætlar Pútín ekki að gera Úkraínu að lepp­ríki heldur að stuðla að því að landið verði hlut­laust hern­að­ar­lega. Jónas telur hins vegar að Selenskí verði ekki for­seti lands­ins áfram undir nokkrum kring­um­stæðum þrátt fyrir að hann sé lýð­ræð­is­lega kjör­inn leið­togi lands­ins. 

„Þú getur ekki sagt við rúss­neska björn­inn: Hættu.“
Jónas Tryggva­son

Jónas: Björninn hættir ekki

Jónas seg­ist aðspurður auð­vitað von­ast til þess að stríðið í Úkraínu klárist sem fyrst þar sem þessar tvær þjóðir séu „bræðra­þjóðir“. Hann seg­ist jafn­framt að ljóst sé að ein­ungis tvær leiðir séu mögu­legar í þeim efnum: Annað hvort leggi Úkra­ínu­menn niður vopn eða þá að Rússland leggi landið undir sig með her­valdi. Seinni mögu­leik­inn sé ein­göngu spurn­ing um tíma því að á end­anum þá sigri rúss­neski her­inn því hann sé ein­fald­lega það sterkur. „Ég er að von­ast til, og ég er alltaf bjart­sýn­is­maður, en ég er mikið að von­ast til að það verði samið um frið helst sem fyrst. [...] Ég er að von­ast til að það verði samið um að þeir leggi niður vopn, lýsi sig sigr­aða. Það verður bara haldið áfram, það heldur áfram blóð­baðið. Þess vegna er ég virki­lega að von­ast til að þetta verði stoppað sem fyrst. Þú getur ekki sagt við rúss­neska björn­inn: Hættu. Það gengur ekki, þeir munu ekki hætta fyrr en þetta er búið.  Úkraína gæti ýtt á takk­ann í dag, og sagt: Við gef­umst upp...“ segir Jónas sem var á heim­leið til Rúss­lands og Moskvu í dag eftir að hafa stoppað í viku­tíma á Íslandi. 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (17)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SBG
    Sigurður Bragi Guðmundsson skrifaði
    Sérlega ófagleg "fréttamennska". "Fréttamaðurinn" ekki hæfur til að dylja sína eigin þröngsýni og hlutdrægni.
    Skömm af svona fúski Stundarinar.
    1
  • ÞI
    Þorsteinn Ingimundarson skrifaði
    Ég geri athugasemdir við Stundina að taka afstöðu með stjórnvöldum í Úkraníu sem eru í liði með CIA og Nato
    -9
  • ÞI
    Þorsteinn Ingimundarson skrifaði
    Ég trúi þessum manni , ekki hinum
    -9
  • Anna L Agnarsdóttir skrifaði
    Málpípa Pútíns🥵
    8
  • Jón Gunnar Guðmundsson skrifaði
    Ja hérna hér, hvaða lyf er frammleit hjá þessum dáinsmanni
    6
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Jónas er að tryggja eigið öryggi. Svo einfalt er það ...
    3
  • April Summer skrifaði
    Nigerians And Other Africans Still Stranded In Ukraine Amidst Worsening Conflict In The Country / SaharaTV
    https://www.youtube.com/watch?v=mYZieB9x_r0
    0
    • April Summer skrifaði
      They are stuck in a war zone because they don't have Ukrainian passports and have not been allowed to safe zones
      0
  • April Summer skrifaði
    https://www.visir.is/g/20222229739d/er-lendum-rikis-borgurum-meinad-ad-flyja-ukrainu
    0
  • Ívar Larsen skrifaði
    Ég býst við meiru af blaðamönnum en að skreppa bara á heimasíðuna hjá usa og taka öllu sem þar stendur sem heilögum sannleika. Það eru misvísandi upplýsingar á báða bóga, Pútin er ekki sá eini sem færir stundum í stílinn, eða skáldar í heilu lagi.
    -7
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Mér virðist þessi Íslenski fjölmiðlafulltrúi Pútins ósköp ómerkilegur líkt og rök hans ÖLL.
    7
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Nasistar eru svo sannarlega til staðar í Úkraínu... og nei nei, það er ekki einhver ,,upplýsingafölsun"

    https://www. jacobinmag. com/2022/01/cia-neo-nazi-training-ukraine-russia-putin-biden-nato

    Og þótt full langt sé gengið að kalla átökin í Donetsk og Lugansk ,,þjóðarmorð," þá eru nú samt sem áður átök þarna, það er engin lygi:

    https://www. mintpressnews. com/under-fire-from-ukraine-everyday-life-in-the-donetsk-peoples-republic/262363/

    https://www. osce. org/special-monitoring-mission-to-ukraine/417620
    1
    • Jón Borgþórsson skrifaði
      Ekkert hægt að staðhæfa annað en að það séu nasistar þarna
      En nasistar lifa líka fínu lífi í Rússlandi. Af hverju helduru annars að Wagner group, sem eru þessir “ráðgjafar” sem Pútín sendir til Úkraínu og annara landa heiti þýsku nafni. Stofnandinn meira að segja með þetta fína nasistatattoo á bringunni. Þannig að ég kaupi það voða lítið að það sé einhver ástæða til innrásar.
      5
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Innrásin er óréttlætanleg með öllu hr. Jón, enda er undirritaður ekki með þessum ummælum að verja ólögmætar hernaðaraðgerðir Rússaveldis, heldur einungis benda á að þarna er ekki um einhverja ,,upplýsingafölsun" að ræða. Nóg um það. Kv
      -4
    • Borgþór Jónsson skrifaði
      Jón minnist hérna á Wagner herdeildina og vísar til þess að þeir séu sennilega Nasistar.
      Wagner málaliðaherinn virðist mér vera einn af þessum herjum sem hafa verið að spretta upp á undanförnum áratugum ,sem eru laustengdir við stjórnvöld í sínu landi.
      Það virðist vera töluvert um þetta og mest kom mér á óvart að lítið land eins og Litháen hefur svona her.
      Tilkoma þessara herja virðist stafa af því að á timum vaxandi mannréttinda og allskonar hamlana á aðgerðir ríkisstjórna þykir orðið nausynlegt að hafa svona her til að framkvæma hluti sem ríkisstjórnir mundu komast illa upp með.
      Þetta virðist vera raunin með Wagner herdeildina.
      Þegar herdeildin lendir svo í vandræðum og er jafnvel stráfelld skapar það engin viðbrögð hjá Rússnesku ríkisstjórninni.

      Það sem mér þótti áhugavert er spurningin hvort Rússneska ríkið væri með Nasista í þjónustu sinni.
      Mér finnst það frekar ólíklegt.
      Þessi herdeild virðist vera hál eins og áll. Hún lætur lítið fyrir sér fara og í raun virðist lítið vitað um hvernig hún er skipulögð.
      Það hafa verið skrifaðar nokkrar opinberar skýrslur um hana og þeim virðist bera frekar illa saman.
      Í flestum skýrslunum er minst á að þeir gætu verið Nasistar og í sumum er það fullyrt.
      En engin af skýrslunum sem ég hef lesið fara neitt nánar út í það ,þó að það hljóti samt a vera töluvert lykilatriði.
      Herdeildin hefur að sjálfsögðu sín merki og orður en ég get ekki séð neina tengingu við Nasisma í því.
      kannski stafar það af því að ég sé ekki nógu kunnugur táknmáli Nasismans
      Tengingin við Þýska tónskáldið og Hitler finnst mér vera mjög veik.

      Þýsku sérsveitirnar voru frábærlega vel heppnaðar stofnanir frá hernaðarlegu sjónarmiði.
      Þó að Wagner hersveitin sýni aðdáun á þeim þarf það ekki endilega að þýða að þeir deili hugmyndafræðinni ,heldur stafi áhuginn af bardagatækni og miskunnarlausri framgöngu þessa þýsku sveita.
      Þýsku sveitirna voru reknar áfam af hugmyndafræðinni um að þeir væru af yfirburða stofni og þörfinni til að hreinsa út óæskilega einstaklinga og hópa sem stóðu í vegi þeirra eða voru ónauðsynlegir.
      Ég fæ á hinn bóginn ekki séð að Wagner hafi neina hugmyndafæði

      Ég get ekki séð annað en að Wagner stjórnist aðeins af gróðasjónarmiðum og óeðlilega miklum áhuga á hernaði.
      Ég fæ ekki séð að þeir geri neinn mannamun . Hver sem er getur orðið vinnuveitandi þeirra ,svo lengi sem hann borgar.
      Þó að Rússneska ríkið sé væntanlega stærsti vinnuveitandi þeirra þá virðast herdeildin ekki einskorða sig við þau viðskifti.
      Eðlilega vinna þeir samt aldrei gegn Rússneska ríkinu.
      Þeir eru líka undir hælnum á ríkinu af því að samtökin eru ólögleg samkvæmt Rússneskum lögum.
      Rússneska ríkið lætur einfaldlega eins og þeir séu ekki til ,en ef þeir mundu gera eitthvað sem angrar ríkið eru þeir auðveld bráð.
      Mér sýnist því að tengingin við Nasista stafi aðallega af því að Wagner herdeildin er afa brútal og miskunnarlaus herflokkur og vinnubrögð þeirra eru þau sömu og "bestu" Nasistaveitanna.
      En það er ekki hægt að sjá að deildin reki neina pólitík.

      Ef við skoðum svo Úkrainsku Nasistana til samanburðar.
      Það er alveg augljóst af öllu sem að þeim snýr að þeir eru Nasistar.
      Þeir reka samskonar pólitík,fyrirmyndir þeirra eru nafngreindir Nasistar fortíðar og heiðuramerki , deildarmerki þeirra og fánar eru beinlínis komin frá nasískum herdeildum.
      Þeir taka líka virkann þátt í stjórnmálum.
      Þeir eru í raun ekki herdeild eins og Wagner,heldur pólitísk samtök með eigin her.
      Wagner er á hinn bóginn bara her sem er stjórnað af stjórnvöldum að hluta og er í raun upp á náð og miskunn þeirra komin.

      Fyrir nokkrum árum eyddi ég smá tíma í að skoða síður á netinu þar sem Úkrainskir Nasistar voru áberandi.
      Þetta var eftir2014 og það ríkti mikil bjartsýni og sókanrhugur innan grasrótarinnar.
      Þar sem ég er ekki Rússneskumælandi var þetta töluvert vesen en eg held að ég hafi nokkurn veginn náð a fanga andann sem þar ríkti.
      Þó að grasrótin sé oft á tíðum róttækari en þeir sem eru í forystu þá er ég þess fullviss að þetta fók er verulega hættulegt.
      Þær ambissjónir sem voru viðraðar þarna eru afskaplega ófagrar svo ekki sé meira sagt.
      En það er efni í annan pistil.
      -2
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Sem sagt gamli björninn sem lagðist í dvALA 1989 ER VAKNAÐUR AF DVALANUM OG FARINA Á RIMJA
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár