Flutn­ings­getan alltof lítil Byggða­línan, hring­teng­ing raf­orku­flutn­inga um landið, annar aðeins 100 MW. Afleið­ingin er sú að þó til sé nægt afl í land­inu er ekki hægt að miðla því þangað sem þörf er á á hverjum tíma. Mynd: RARIK

Fimmtíu ára gömul byggðalína myndar flöskuháls

Ástæða raf­orku­skorts á vissum tímum á ákveðnum svæðum skrif­ast á ónæga flutn­ings­getu raf­orku­kerf­is­ins. Upp­bygg­ing nýrrar byggða­línu er hafin en langt er í að þeim fram­kvæmdum ljúki. Á meðan streymir vatn á yfir­falli yfir virkj­anir sem hægt væri að nýta til raf­orku­fram­leiðslu á sama tíma og raf­magn vantar ann­ars staðar á land­inu.

Raf­orku­fram­leiðsla á Íslandi gerir gott betur en að upp­fylla þá orku­þörf sem til staðar er á þessum tíma­punkti, hvað sem síðar kann að verða með orku­skiptum eða annarri raf­orku­þörf til fram­tíðar. Það er hins vegar ekki nóg að fram­leiða raf­magn heldur þarf að flytja það frá virkj­unum, milli lands­hluta. Eins og staðan er í dag annar flutn­ings­kerfi raf­orku um landið alls ekki þeim flutn­ingum sem þörf er á, og raunar fjarri því.

Raforka er flutt með háspennu­línum sem eru ann­ars vegar loft­línur og hins vegar jarð­strengir. En loft­lína er ekki bara loft­lína og jarð­strengur ekki bara jarð­strengur. Til að koma raf­magni frá upp­runa­stað og þangað sem hún er notuð er not­ast við tvenns konar kerfi, flutn­ings­kerfi raf­orku og dreifi­kerfi raf­orku.

Þegar talað er um flutn­ings­kerfi raf­orku er átt við það kerfi sem sér um að flytja raf­orku frá virkj­unum til ann­ars vegar stórnot­enda, sem eru til að mynda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • AHJ
    Auður Hallgrímsdóttir JSÓ skrifaði
    Mjög góð grein sem allir ættu að lesa
    0
    • PG
      Palli Garðarsson skrifaði
      Það sem ég les út úr henni er að sæstrengur til meginlandsins sé tæknilega óraunhæfur þar sem lítið sem ekkert kæmi út um hinn enda hans.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár