Þorsteinn Már kannast ekki við orð og aðstæður sem eru teknar nánast beint upp úr raunveruleikanum

Þor­steinn Már Bald­vins­son, stofn­andi og for­stjóri Samherja, seg­ist ekki kann­ast við þær aðstæður sem Verbúðin dregur upp. Í þátt­unum er vitnað nán­ast orð­rétt í hans eigin ummæli og aðstæður sem komu upp þegar Samherja keypti togar­ann Guð­björg­ina, eða Gugguna, árið 1997.

Þorsteinn Már kannast ekki við orð og aðstæður sem eru teknar nánast beint upp úr raunveruleikanum
Þor­steinn Már og Gunnar Már Þeir Þor­steinn Már hjá Samherja og Gunnar Már í Ver­búð­inni segja nán­ast sömu hlut­ina þegar þeir rétt­læta við­skipti sín með afla­tog­ar­ana Guð­björg­ina og Þor­björg­ina á Vest­fjörðum. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Þor­steinn Már Bald­vins­son, stofn­andi og for­stjóri Samherja, seg­ist ekki kann­ast við þær aðstæður í sjáv­ar­út­vegi sem sýndar eru í sjón­varps­þátta­röð­inni Ver­búð­inni. Í þátt­unum er dregin upp mynd sem svipar mjög til við­skipta Samherja með sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Hrönn á Ísafirði og tog­ara þessa, Guð­björg­ina eða Gugguna, árið 1997.

Þetta gerð­ist vegna þess að frjálst fram­sal og veð­setn­ing fisk­veiði­heim­ilda var heim­ilað á Íslandi, eins og rakið er í þátt­unum með dramat­ískum hætti. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­irt­kjum var þá heim­ilað að flytja kvóta til og frá byggð­ar­lögum eftir eigin henti­semi og gera út og landa fiski þar sem þeim hugn­að­ist.  

Í við­tali við Frétta­blaðið segir Þor­steinn Már um Ver­búð­ina: „Ég ætla bara að segja að ég hef tengst sjó­mennsku í ára­tugi, lengi. Og hef tekið þátt í þessu sem atvinnu­rek­andi frá ’83. Ég kann­ast ekki við þessa mynd sem er verið að draga upp.“ 

„Þor­björgin verður áfram gul og gerð út frá Vest­fjörðum“
Gunnar Már í Ver­búð­inni

Guðbjörgin og Þorbjörgin, Ísafjörður og Vestfirðir

Í síð­asta þætti Ver­búð­ar­innar er, nán­ast orð­rétt, vitnað ítrekað í orð sem Þor­steinn Már lét frá sér fara í tengslum við kaup og síðar sölu á tog­ar­anum Guð­björg­inni, eða Guggunni, á árunum 1997 og 1999. Samherji keypti þá útgerð­ina Hrönn á Ísafirði sem átti Guð­björg­ina. Þor­steinn Már sagði þá hina fleygu setn­ingu: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Í Ver­búð­inni heitir tog­ar­inn sem um ræðir Þor­björgin. 

Í þátt­unum er per­sóna sem heitir Gunnar Már sem kaupir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið á Vest­fjörðum sem Verbúðin fjallar um. Þessi karakter, sem leik­inn er af Hilmari Guð­jóns­syni, segir meðal ann­ars á fundi þar sem salan á Þor­björg­inni er kynnt: „Þor­björgin verður áfram gul og gerð út frá Vest­fjörðum.“

Þor­steinn Már og Gunnar Már í við­tölumÞor­steinn Már í við­tali við RÚV í Lands­rétti í gær þar sem hann sagð­ist ekki kann­ast við aðstæð­urnar í Ver­búð­inni. Gunnar Már í við­tali í Ver­búð­inni þar sem hann rétt­lætir söl­una á Þor­björg­inni.

Samkomulagið milli Samherja og Hrannar

Í Ver­búð­inni er sena þar sem bæj­ar­stjór­inn í þorp­inu, eig­andi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins, Harpa (Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir), og Gunnar Már kynna söl­una á skipum og kvóta útgerð­ar­innar fyrir íbú­unum. Þar gefur Gunnar Már fögur fyr­ir­heit um að útgerðin muni áfram gera út frá pláss­inu og talar Gunnar Már meðal ann­ars um mann­kosti Hörpu og að hún myndi ekki selja útgerð­ina nema að tryggt væri að hún yrði áfram gerð út frá Vest­fjörðum. „Við höfum ávallt haft það að leið­ar­ljósi að styrkja upp­bygg­ingu og inn­viði þess­ara fyr­ir­tækja á hverjum stað fyrir sig. [...] Bæj­ar­búar ættu að þekkja Hörpu Sig­urð­ar­dóttur það vel að það er henni mikið í mun að tryggja fram­tíð Þor­bjarg­ar­innar og bæj­ar­ins. [...] Það ætti þó að vera mönnum alveg ljóst að hún myndi aldrei íhuga að selja aðilum með áform sem end­ur­spegla ekki hennar eigin. Þor­björgin verður áfram gul og hún verður gerð út frá Ves­fjörðum. “

Þegar Samherji keypti Hrönn og Gugguna árið 1997 var með sam­bæri­legum hætti haft eftir Þor­steini Má að Ísfirð­ingar ættu nú að þekkja eig­endur Hrannar það vel að þeir ættu að vita að þeir beri hag bæj­ar­ins fyrir brjósti.  Í blað­inu Bæjarins Besta árið 1997 var haft eftir Þor­steini Má, og var þetta kvót endu­birt í bók­inni Ekkert að fela: Á slóð Samherja í Afríku: „Ég held að Ísfirð­ingar eigi nú að þekkja þá Guðmund Guð­munds­son og Ásgeir Guð­bjarts­son það vel að þeir ættu að átta sig á hvað vakir fyrir þeim, og því sem þeir eru að gera, en það er ein­fald­lega að tryggja að Guð­björgin verði á Ísafirði áfram.“

Ásgeir Guð­bjarts­son var einn af eig­endum Hrannar. Sonur Ásgeirs, Guð­bjartur Ásgeirs­son, var skip­stjóri á Guð­björg­inni. Eftir söl­una hóf hann störf fyrir Samherja og vann hjá fyr­ir­tæk­inu allt til árs­ins 2012. 

Þegar Samherji keypti Hrönn árið 1997 var meðal ann­ars und­ir­rituð sér­stök yfir­lýs­ing þess efnis að Guð­björgin yrði áfram gerð út frá Ísafirði. Kristinn Gunn­ars­son, rit­stjóri og fyrr­ver­andi þing­maður, birti þessa yfir­lýs­ingu á blogg­svæði sínu árið 2018. Þar sagði: „Hlut­hafar Samherja h.f. Akureyri og Hrannar h.h. Ísafirði hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um að sam­eina þessi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Sam­komu­lag er um að útgerð Guð­bjargar ÍS verði óbreytt frá því sem verið hefur á Ísafirði.“ 

Undir yfir­lýs­ing­una skrif­uðu Þor­steinn Már og Ásgeir Guð­bjarts­son. 

Í báðum til­fellum, í raun­veru­leik­anum og í Ver­búð­inni, und­ir­strik­uðu þeir Þor­steinn Már og Gunnar Már að selj­endur útgerð­anna myndu aldrei selja nema tryggt væri að Guð­björgin og Þor­björgin yrðu áfram gerð út frá við­kom­andi plássum á Vest­fjörðum. 

Eftir söl­una á útgerð­unum var það hins vegar ekki lengur í höndum eig­enda þeirra hvað yrði um þær. Þetta var ákvörðun sem nýr eig­andi útgerð­anna hafði í hendi sér, það er að segja Þor­steinn Már hjá Samherja og Gunnar Már í Ver­búð­ar­þátt­unum. 

Orð um síbreytilegan sjó og pólitík

Í til­felli Ver­búð­ar­þátt­anna hættir Þor­björgin strax að gera út frá þorp­inu á Vest­fjörðum en skip­inu er snúið við þegar það er á sigl­ingu inn fjörð­inn. 

„Starf­semi fisk­veiða er eins og sjór­inn sjálfur; tekur stöð­ugum breyt­ingum“
Gunnar Már í þátt­unum Verð­búð­inni árið 2022

Í þátt­unum útskýrir Gunnar Már þá ákvörðun sína að efna ekki lof­orð sitt um að gera Þor­björg­ina út frá pláss­inu með eft­ir­far­andi orðum: „Starf­semi fisk­veiða er eins og sjór­inn sjálfur; tekur stöð­ugum breyt­ingum. [...] Við getum ekki tamið fisk­inn og þess vegna þurfum við að elta hann þangað sem hann er að finna. Það er alveg óháð því úr hvaða byggð er siglt.“ Þegar Gunnar Már er spurður að því hvort þetta sé ekki þvert á gefin lof­orð segir hann: „Ég er ekki stjórn­mála­maður. Ég lof­aði aldrei nokkrum hlut. Það má kannski hafa á því skoðun að orða­valið hafi verið óheppi­legt.“

„Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er eins og sjór­inn, síbreyti­legur“
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, árið 1999

Í til­felli Samherja og Guð­bjarg­ar­innar var ferlið hæg­ara. Skipið hélt áfram að gera út frá Ísafirði til árs­ins 1999 þegar það var selt til dótt­ur­fé­lags Samherja í Þýska­landi og skipti um nafn yfir í Hannover. Þegar þessi sala var kynnt um sum­arið 1999 sagði Þor­steinn Már að yfir­lýs­ingin um Gugguna hefði verið „mis­tök“, eins og sagði í frétt Moggans. Svo fylgdi kvótið í Þorstein Má sem er nán­ast birt orð­rétt í Ver­búð­inni „Aðstæður í sjáv­ar­út­vegi eru það breyti­legar að það verður að við­ur­kenn­ast. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er eins og sjór­inn, síbreyti­legur,“ sagði hann.

Þor­steinn Már sagði við Moggann að ekki hafi verið um „bind­andi lof­orð“ að ræða rétt eins Gunnar Már segir í þátt­unum að hann hafi ekki „lofað neinu“:  „Ég bara sagði þetta og það hafði ekk­ert með póli­tík eða bæj­ar­stjórn að gera,“ sagði Þor­steinn Már í við­tal­inu við Moggann. 

Gagn­rýndi SamherjaHalldór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri á Ísafirði, gagn­rýndi Samherja þegar Guð­björgin var seld úr bænum árið 1999.

Reiðin á Ísafirði

Salan á Guð­björg­inni vakti mikla reiði á Ísafirði og sagði þáver­andi bæj­ar­stjóri, Halldór Hall­dórs­son, meðal ann­ars: „Þeir gáfu þá yfir­lýs­ingu á fundi með full­trúa bæj­ar­stjórnar á sínum tíma, og það kom í heima­fjöl­miðlum að engin breyt­ing yrði. Guð­björgin yrði áfram Guð­björgin og gerð út frá Ísafirði, eða eins og þeir sögðu: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Það gleymd­ist að taka það fram að hún myndi heita Hannover, gerð út frá Þýska­landi og yrði lengd um 18 metra.“

Halldór hafði orðið bæj­ar­stjóri skömmu áður og tók hann þá við af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sem varð bæj­ar­stjóri á Akureyri.  Kristján Þór hafði áður verið stjórn­ar­for­maður Samherja. Hann spil­aði stórt hlut­verk í því sem bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar að tryggja það að við­skiptin með Hrönn og Guð­björg­ina gætu gengið í gegn. Líkt og í þátt­unum þá átti Ísa­fjarð­ar­bær for­kaups­rétt að hluta­bréf­unum í Hrönn, for­kaups­rétt sem sveit­ar­fé­lagið nýtti sér ekki. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tóti Steingríms skrifaði
    Alzheimer?
    1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Það hefur allf verði heilagt á ílandi að standa ekki við orð sín .
    Og lýgin riður ekki einteiming þegar kemur að því að ljúga að fólki til að erignast ódýrt auðaefi þess.
    Í augum fasista er svat orðið hvítt og fasistin trúir því .
    Sem sagt ekkert mark takandi á fasistum og allra síst á alþigi okkar þar sem virðist svo að þar ráði orðið sanfaering fasistana .
    Og það versta er að stór hluti þjóðarinnar trúir raepuni sem vellur Úr munni fasistANA OG Á STUNDUM RASGATINU .
    ENDA FLÍTUR DRULLAN VÍÐA UM LAND.
    Maður heldur stundum að maður lifi í landi þar sem allir reinast þroskaheftir ,með allri virðingu fyrir þrosdkahöftum, því þeir hafa sama rétt og við sem ekki erum þroskaheft
    0
  • Jóhann Gíslason skrifaði
    Þorsteinn Már kannast ekki við það sem kemur fram í Verbúðin í. Kallast þetta ekki"að vera VERULEIKAFIRRTUR?"
    2
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hilmar Guðjónsson átti stjörnu leik í hlutverki Gunnars Más,hroki yfirlætið og ísköld manvonskan stirnir af manninum ,manni verður illa við persónuna.
    6
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skil vel að Þorsteinn Már geti ekki tengt við þetta, enda hét skipið Guðbjörg en ekki Þorbjörg. Líka skemmtileg brella hjá Akureyrarlögga að kalla blaðamenn til yfirheyrslu í beinu framhaldi af Verbúðinni. Varla er það út af hvarfi á farsíma fyrir margt löngu.
    4
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Frábær grein.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár