Yfirmenn hjá lögreglu segja að mannekla bitni á þolendum ofbeldis

Yfirmenn hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segja að ef rann­saka eigi kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beldi af mynd­ar­skap þurfi fleiri rann­sak­endur og ákærendur. Fjöldi þeirra hafi staðið í stað þrátt fyrir gríð­ar­lega aukn­ingu til­kynn­inga um brot í kjöl­far Metoo. Álagið sé komið yfir þol­mörk. Þá séu dæmi um að rann­sóknir tefj­ist vegna álags á Land­spít­ala því áverka­vott­orð skili sér seint til lög­reglu. Yfirvöld hvetji fólk til að kæra ofbeldi en láti ógert að styrkja inn­við­ina nægj­an­lega.

Yfirmenn hjá lögreglu segja að mannekla bitni á þolendum ofbeldis
Bitnar verst á þolendum Þeir Grímur Grímsson og Ásgeir Þór Ásgeirs­son segja að á meðan að fjöldi til­kynntra kyn­ferð­is­brota og heim­il­is­of­beld­is­mála hafi marg­fald­ast hafi fjöldi rann­sak­enda og ákærenda staðið í stað. Það komi illa niður á þolendum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í dag eru 523 heim­il­is­of­beld­is­mál og 368 kyn­ferð­is­brota­mál til með­ferðar hjá emb­ætti Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, bæði á rann­sókn­ar­sviðum og ákæru­sviði emb­ætt­is­ins. Á bak við þessar tölur eru fleiri en eitt þús­und þolendur, aðal­lega konur sem bíða þess að máls­með­ferð hjá lög­reglu ljúki. Í umfjöllun Stund­ar­innar um heim­il­is­of­beldi á dög­unum gagn­rýndi ein þeirra kvenna sem bíða eftir að ákveðið verði hvort hennar mál fari fyrir dóm, vinnu­brögð lög­reglu. Konan kærði fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann sinn fyrir að beita sig alvar­legu ofbeldi. 

Konan sagði vinnu­brögð lög­reglu hafa verið eitt alls­herjar klúður og að kæru­ferlið hefði gert ofbeld­is­upp­lifun­ina verri. Lögregla hefði týnt gögnum, neyð­ar­hnappar sem hún fékk sér til verndar hafi ekki virkað og þegar hún kærði hafi henni verið sagt að rann­sókn tæki um þrjá mán­uði en málið er enn hjá lög­reglu rúmum 18 mán­uðum eftir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Ég spyr mig hvaða mál eru þá forgangsmál hjá lögreglunni ef ofbeldismál eru látin sitja á hakanum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár