Úr mynda­safni Sviðsett mynd. Mynd: Shutterstock

Kæruferlið hjá lögreglu gerði ofbeldisupplifunina verri

Kona sem kærði fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann sinn fyrir að beita sig alvar­legu ofbeldi á heim­ili þeirra segir að kæru­ferlið hjá lög­regl­unni hafi gert ofbeld­is­upp­lifun­ina erf­ið­ari. Hún segir vinnu­brögð lög­reglu hingað til hafa verið eitt alls­herjar klúður; gögn hafi týnst, neyð­ar­hnappar ekki virkað og þegar hún kærði hafi henni verið sagt að rann­sókn lyki eftir þrjá mán­uði, síðan sé liðið rúmt ár og málið sé enn á borði lög­reglu.

Eitt þeirra tæp­lega 500 heim­il­is­of­beld­is­mála sem nú eru í vinnslu hjá lög­reglu varðar árás karl­manns á kærust­una sína. Konan kærði árás­ina fyrir tæpum tveimur árum og er afar ósátt við vinnu­brögð lög­reglu. Stundin ræddi við kon­una sem vill ekki koma fram undir nafni. Hún seg­ist samt vilja segja frá því hvernig lög­regla hafi hingað til með­höndlað hennar mál í þeirri von að vinnu­brögðin verði end­ur­skoðuð og löguð í fram­hald­inu. 

„Kæru­ferlið hjá lög­reglu er búið að gera upp­lifun mína af ofbeld­inu miklu verri, ég kemst ekki frá atburð­inum þótt rúm tvö ár séu liðin og næ ekki að halda almenni­lega áfram með líf mitt. Mér líður eins og ég sé í vinnu fyrir kerfið en ekki öfugt. Ég hélt að lög­reglan ætti að passa mig en ég hef upp­lifað mikið örygg­is­leysi eftir að ég kærði,“ segir hún.

Flúði íbúðina

Árásin sem hún kærði hafi átt sér stað að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    I. kafli. Hlutverk lögreglu o.fl.
    1. gr. Hlutverk.
    1. Ríkið heldur uppi starfsemi lögreglu.
    2. Hlutverk lögreglu er:
    a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi,
    b. að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins,
    c. að vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð [sakamála] 1) eða öðrum lögum,
    d. að greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að,
    e. að veita yfirvöldum vernd eða aðstoð við framkvæmd starfa sinna samkvæmt fyrirmælum laga eða venju eftir því sem þörf er á,
    f. að starfa í samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir sem hafa með höndum verkefni sem tengjast starfssviði lögreglu,
    g. að sinna öðrum verkefnum sem henni eru falin í lögum eða leiðir af venju.
    1)L. 88/2008, 234. gr.
    2. gr. Tengsl við þjóðarétt.
    Lögregla skal í störfum sínum hafa í heiðri þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.
    3. gr. Lögreglumenn.
    Til lögreglumanna teljast þeir sem skipaðir eru eða settir til lögreglustarfs skv. [4. mgr.] 1) 28. gr. eða ráðnir tímabundið skv. [5. mgr.] 1) 28. gr.
    1)L. 51/2014, 1. gr.

    II. kafli. Skipulag lögreglu og æðsta stjórn.
    4. gr. Æðsta stjórn lögreglu.
    [Ráðherra] 1) er æðsti yfirmaður lögreglunnar í landinu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár