Namibísk stjórnvöld krefja Samherjafélög um 2,7 milljarða í skatt

Namibísk stjórn­völd hafa gert 2,7 millj­arða kröfu vegna end­ur­á­lagn­ingar skatta af starf­semi Samherja í land­inu. Þetta kemur fram í ásreikn­ingum Samherja Holding fyrir árin 2019 og 2020 sem hefur nú verið skilað og þeir birtir opin­ber­lega.

Namibísk stjórnvöld krefja Samherjafélög um 2,7 milljarða í skatt

Namibísk stjórn­völd hafa gert nokkrar skatta- og lög­fræði­kröfur á hendur namibískum dótt­ur­fé­lögum Samherja. Þar á meðal er end­ur­á­lagn­ing skatta upp á 18 millj­ónir evra, jafn­virði 2,7 millj­arða króna. Þetta er meðal þess kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Samherja Holding sem fer með eign­ar­hald erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­steypunnar.

„[E]nn er óvissa um áhrif mála­rekst­urs í Namibíu á starf­semi sam­stæð­unnar“
úr árs­reikn­ingi Samherja Holding vegna árs­ins 2020

Í árs­reikn­ing­unum eru margar ábend­ingar og fyr­ir­varar vegna þeirra rann­sókna sem nú standa yfir á starf­semi útgerð­ar­innar og tengdra félaga í Namibíu. Vegna þeirra gerir stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem leidd er af Eiríki S. Jóhanns­syni, sem líka er stjórn­ar­for­maður Samherja á Íslandi, gerir fyr­ir­vara við árs­reikn­ing­ana.

Stjórn og endurskoðendur með fyrirvara

„Stjórn og for­stjóri gera þann fyr­ir­vara við stað­fest­ingu sína að enn er óvissa um áhrif mála­rekst­urs í Namibíu á starf­semi sam­stæð­unnar og ekki hefur tek­ist með full­nægj­andi hætti að sann­reyna skuld­bind­ingar Hermono sam­stæð­unnar sem fór með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Jæja nú tekur Flokkurin til varna undir foristu Fjölmiðlafulltrúa Ríkistjórnar Katrínar Jakobsdóttir í umboði Bjarna Ben
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár