Lífsóður fjallamannsins sem „bjó með tveimur konum“

Lista­mað­ur­inn Guð­mundur Ein­ars­son frá Miðdal var einn af for­víg­is­mönnum fjalla­mennsku á Íslandi og hefur bók hans Fjalla­menn nú verið end­ur­út­gefin. Verkið er inn­blás­inn og háfleygur óður til úti­vistar þar sem ung­menna­fé­lags­and­inn svífur yfir text­anum. Guð­mundur var faðir Ara Trausta Guð­munds­sonar sem ræðir um bók­ina, ást föður síns á fjall­göngum, óhefð­bundið fjöl­skyldu­mynstur sitt í æsku og dramat­íska fjöl­skyldu­sögu í við­tali við Stundina.

Bók

Fjalla­menn

Höfundur Guðmundur Einarsson frá Miðdal
Salka
400 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Hvað man maður langt aftur? Þar til maður er fjög­urra ára, fimm ára. Hann deyr þegar ég er fjórtán ára þannig að þetta eru 10 ár sem ég get sagt að ég muni eftir honum,“ segir Ari Trausti Guð­munds­son, sonur lista- og fjalla­manns­ins Guð­mundar Ein­ars­sonar frá Miðdal, aðspurður um hvaða minn­ingar hann eigi helst um pabba sinn. 

Ari Trausti er lands­þekktur jarð­fræð­ingur, leið­sögu­maður, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður VG sem bauð sig meðal ann­ars fram í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012. Líkt og faðir sinn hefur Ari líka skrifað bækur um fjöll og fjall­göngur sem margir þekkja, meðal ann­ars bók­ina Fólk á fjöllum: Göngu­leiðir á 101 tind þar sem er að finna leið­ar­lýs­ingar á mörg þekkt fjöll á Íslandi. 

Bók Guð­mundar frá Miðdal, Fjalla­menn, hefur nú verið end­ur­út­gefin í fyrsta sinn frá því að bókin kom út árið 1946. Ari Trausti, sem er fæddur 1948, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    4,5 stjörnur af 5
    Þetta er afar merkileg grein. Ég verð reyndar að segja að mér er meinilla við orðið helför sem íslendinger eru farnir að nota um holocaust sem er notað í mörgum málum og er víst komið úr hebresku. Orðið helför er þekkt t. d. um helför Galdra-Lofts . Það er til þess fallið að gefa í skin að þessir atburðir séu ekki einstakir og að fela orsakavaldana. Við meigum aldrei gleyma því að holocaust er einstakt í sögunni og það var framkvæmt næstum eingöngu af þjóðverjum en það voru ekki allir þjóðverjar sekir. Því meigum við ekki álasa þjóðverjum nútímans, þeir hafa tekið á sig ábyrgðina en á Íslandi gerðust ýmisir ljótir hlutir varðandi gyðinga á fjórða áratugnum og við höfum ekki tekið ábyrgð á þeim.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    5 stjörnur af 5
    Gott viðtal við Ara. Takk fyrir.
    0
  • Bubbi Morthens skrifaði
    þessi bók er algjör demantur
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár