Þrír í haldi lögreglu eftir aðgerð sérsveitarinnar í Reykjavík í dag

Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð að Mánatúni í nótt og að Hverf­is­götu skömmu fyrir hádegi. Lögregla sendi frá sér til­kynn­ingu rétt í þessu þar sem segir að þrír séu í haldi vegna grun­sam­legs hlutar sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í morgun.

Þrír í haldi lögreglu eftir aðgerð sérsveitarinnar í Reykjavík í dag
Úr mynda­safni Mynd: Pressphotos.biz

Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð út tví­vegis í Reykja­vík í dag.  Fyrst að Mánatúni en þar var tölu­verður við­bún­aður lög­reglu og götum lokað. Þrír voru síðan hand­teknir í tengslum við málið í dag. 

Morg­un­blaðið greindi fyrst frá því að aðgerðir hefðu staðið yfir í Mánatúni.  Um hádeg­is­bil var sér­sveitin að störfum við Hverf­is­götu. Stundin hefur haft sam­band við lög­reglu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­lög­reglu­stjóra í dag og fékk stað­fest að sér­sveitin hafi verið með við­búnað við Mánatún snemma í morgun en varð­ist að öðru leyti allra fregna af mál­inu.

Frétta­til­kynn­ing var svo send á fjöl­miðla um hálf fjögur þar sem segir að þrír séu í haldi Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir að grun­sam­legur hlutur fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykja­vík á fjórða tím­anum í nótt. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra hafi verið kölluð til aðstoðar vegna máls­ins. Ekki kemur fram í til­kynn­ing­unni hvort aðgerðir sér­sveit­ar­innar á Hverf­is­götu um hádeg­is­bil teng­ist mál­inu.  Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni verða ekki veittar frek­ari upp­lýs­ingar í dag en lög­regla von­ast til að geta tjáð sig meira um málið á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár