558. spurningaþraut: Heimsmetið í 100 metra hlaupi karla

558. spurningaþraut: Heimsmetið í 100 metra hlaupi karla

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða kvik­mynd lék þessi roskni Suzuki-bíll?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Usain Bolt á heims­metið í 100 metra hlaupi karla. Frá hvaða landi er hann?

2.  En hvað er heims­metið hans? Hér dugar einn auka­stafur.

3.  Í fornum grískum þjóð­sögum er greint frá viður­eign hetj­unnar Heraklesar við ætt­flokk hinna her­skáu Amasóna. Hvað þótti óvenju­legt við þann flokk?

4.  Í sömu grísku þjóð­sögum og goð­sögum er og sagt frá kentárum svo­nefndum. Hvernig voru kentárar útlits?

5.  Gljúfurár­jök­ull, Teig­ar­jök­ull, Búr­fells­jök­ull og Kvar­nár­jök­ull eru fjórir litlir jöklar, sem ekki eru ýkja þekktir. En hvar eru þeir?

6.  Hvaða ríki réð­ist inn í Pólland 17. sept­em­ber 1939?

7.  Alec Baldwin er banda­rískur leik­ari eins og menn vita. Hann hefur und­an­farin ár fengið tölu­vert lof fyrir hlut­verk sitt sem ákveð­inn valda­maður í gam­an­þátt­unum Saturday Night Live. Hvaða valda­maður?

8.  Hvar í Reykja­vík hafa hin svo­nefndu sjálf­stæðu leik­hús aðsetur?

9.  Hvað er stærsta úthaf Jarðar?

10.  Brúðu­heim­ilið, Fröken Júlía, Hedda Gabler, Pétur Gautur, Villiöndin og Þjóð­níð­ingur — þetta eru allt leik­rit skrifuð rétt fyrir alda­mótin 1900 af norska leik­rita­höf­und­inum Henrik Ibsen. Og þó. Eitt þess­ara sex leik­rita er eftir sænska leik­rita­skáldið August Strind­berg. Og það er ... ?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða ríkis má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jamaica.

2.  9,5.

3.  Hermenn Amasóna voru konur.

4.  Kentárar voru menn niður að mitti en hestar þar fyrir neðan.

5.  Á Trölla­skaga, milli Skaga­fjarðar og Eyja­fjarðar. 

6.  Sov­ét­ríkin.

7.  Donald Trump.

8.  Tjarn­ar­bíó.

9.  Kyrra­hafið.

10.  Fröken Júlía.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er skjá­skot úr kvik­mynd­inni Agnes Joy.

Á neðri mynd­inni má sjá útlínur Kúbu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár