526. spurningaþraut: Rússakeisari og forsetafrúr

526. spurningaþraut: Rússakeisari og forsetafrúr

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und eru hvutt­arnir tveir á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét síð­asti keis­ari Rússa­veldis? Hér verður að hafa númer rétt.

2.  Af hvaða ætt var hann?

3.  Hve mörg börn átti hann?

4.  Hver skrif­aði bók­ina Engla alheims­ins?

5.  Önnur spurn­ing úr bók­menntum: „Sálu­messa eftir nunnu“ hét skáld­saga eftir banda­ríska Nóbels­höf­und­inn frá 1949, William Faulkner. Annar Nóbels­höf­undur (1957), sem var franskur, skrif­aði leik­rit eftir sög­unni. Hvað hét hann?

6.  Jill Biden for­seta­frú Banda­ríkj­unum er hámenntuð og ber meðal ann­ars dokt­ors­gráðu í ... hvaða fagi?

7.  Fyr­ir­renn­ari hennar sem for­seta­frú, Melania Trump, hóf háskóla­nám í hönnun og arki­tektúr en hætti eftir eitt ár til að ein­beita sér að ferli sínum sem ...?

8.  Melania hafði stúd­erað þetta ár við stærsta háskól­ann í heima­landi sínu. Það land er ...?

9.  Háskól­inn heitir eftir höf­uð­borg­inni, þar sem hann er stað­settur. Hvað heitir sú höf­uð­borg?

10.  Sú for­seta­frú sem kom á undan Melaniu Trump var hins vegar spreng­lærð í ... hvaða fagi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sá öku­mann leggja upp í öku­ferð. Hann virkar nokkuð gljá­andi til augn­anna. Hvern vantar á mynd­ina?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Nikulás 2.

2.  Romanov.

3.  Fimm.

4.  Einar Már.

5.  Albert Camus.

6.  Kennslu­fræðum.

7.  Fyr­ir­sæta.

8.  Slóvenía. Athugið að Slóvakía er allt annað land.

9.  Lju­blj­ana.

10.  Lögfræði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru hundar af teg­und­inni Síberíu-Huskí. Eig­in­lega ekk­ert annað svar getur talist rétt. Sleða­hundur er til dæmis ekki nóg og Síbería verður að koma fyrir.

Á neðri mynd­ina vantar bæði Díönu prinsessu í aft­ur­sæt­inu og svo líf­vörð­inn Trevor Rees-Jones við hlið bíl­stjór­ans Henri Paul, sem var ölv­aður undir stýri. En það er nóg að nefna Díönu til að fá stig!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár