Sóðaleg saga dekkja á Íslandi heldur áfram

Lýsing Úrvinnslu­sjóðs á afdrifum hjól­barða er ekki í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. Bannað er að urða fólks­bíla­dekk, en þau enda engu að síður lang­flest á urð­un­ar­stað Sorpu og er það kallað „end­ur­nýt­ing“ í umhverfis­töl­fræð­inni. End­ur­teknir dekkja­brunar eru á urð­un­ar­staðnum. Úrvinnslu­gjald á inn­flutta hjól­barða hefur ekki verið hækkað síðan 2010 og sér­stakur hjól­barða­sjóður býr yfir hálfum millj­arði króna í eigið fé.

Ísland situr í þriðja sæti yfir þau ríki sem hafa flest öku­tæki á hvern íbúa, en alls voru 315.294 öku­tæki skráð á Íslandi árið 2020. Það þýðir að 866 öku­tæki eru á hverja þús­und íbúa. Öll þessi öku­tæki þurfa hjól­barða. Árlega eru flutt inn til lands­ins þús­undir tonna af hjól­börðum. Þessir hjól­barðar, hvort sem negldir eða ónegldir, eyð­ast og þarf reglu­lega að skipta um þá eins og flestir þekkja. En hvað verður um alla þessa tugi þús­unda hjól­barða? Flestir telja að þeir fari beint í end­ur­vinnslu, en sú er ekki raunin.

Raunin er sú að langstærstur hluti hjól­barða hafa verið urð­aðir í stað þess að hafa verið sendir í end­ur­vinnslu. Þar hafa þeir skapað mikla elds­hættu og kvikn­aði síð­ast á þessu ári í miklu magni af hjól­börðum á urð­un­ar­stað Sorpu. Svo mik­ill var reyk­ur­inn og meng­unin að íbúar í grennd við urð­un­ar­stað­inn voru beðnir um að loka öllum gluggum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár