Tengingin við náttúruna hjálpaði mér mikið

Nadia Katrín Banine eyðir ekki of miklum tíma í að velta sér upp úr smá­at­riðum sem engu máli skipta. Hún ákvað að nota sínar aðferðir til að finna ham­ingj­una eftir að hún greind­ist með brjóstakrabba­mein.

Tengingin við náttúruna hjálpaði mér mikið

Lífið getur verið eins og hafið, lygnt eða stór­streymi. Því fékk Nadia Katrín Banine að kynn­ast þegar hún greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2010. Í kjöl­farið vann hún hörðum höndum að því að láta sér líða betur. Finna ham­ingju­til­finn­ing­una.

„Ég man þegar ég heyrði að ég væri með þennan sjúk­dóm, mér fannst ég ein­hvern veg­inn fara úr lík­am­anum og horfa á sjálfa mig. Mér fannst þetta ekki geta komið fyrir mig, maður hugsar alltaf að svona komi fyrir aðra. Fyrsta vikan var mjög erfið og fór ég í aðgerð um tveimur vikum eftir grein­ing­una. Ég hugs­aði með mér á tíma­bili að ég væri að deyja og myndi ekki sjá börnin mín vaxa úr grasi. Ég las mér mikið til um þetta og var ótrú­lega heppin að eiga góða að sem ég gat leitað ráða hjá. Hún Lukka hjá Happ er ein­stök perla í sam­fé­lagi okkar en ég þekki hana og ég fékk mikið af ráðum hjá henni varð­andi matar­æði, sem og hjá Jóhönnu Vil­hjálms­dóttur en bæk­urnar hennar eru ítar­leg sam­an­tekt um rann­sóknir sem vekja mann til umhugs­unar um ýmsar leiðir til að hjálpa sér að kom­ast í gegnum þetta erf­iða tíma­bil.

Ég átti auð­vitað tíma­bil þar sem ég hélt ég væri að deyja eins og sagði en svo ákvað ég að gefa mér ekki nema tvo daga á ári á meðan ég var í þessu ferli, en þetta var sex ára ferli, til að leyfa mér að detta í eitt­hvað smá­þung­lyndi, grenja og vor­kenna sjálfri mér en svo væri það bara búið. Svo tæki við nýr dagur og ég hugs­aði með mér að það þýddi ekk­ert að vera að velta sér upp úr sjúk­dómnum; ég var upp­tekin af því að gera það sem ég gæti sjálf gert til að hjálpa mér. Ég breytti heil­miklu í mínu lífi en ég tengi það kvíða, streitu og skiln­aði að ég veikt­ist. Ég tók ekki þann pól í hæð­ina að hugsa sem svo að ég ætl­aði ekki að láta þetta stjórna mér og ætl­aði að halda mínu striki, ég fór alveg í öfuga átt við það og hugs­aði með mér að það væri ein­hver ástæða fyrir því að þetta gerð­ist og það væri eitt­hvað sem ég þyrfti að breyta og þar með senni­lega hug­ar­far­inu, svo sem að vera ekki með stans­lausar kröfur á mig sjálfa og að finn­ast ég þurfa alltaf að vera full­komin. Ég gerði einu sinni dans­verk um hvað mér fannst álagið á íslenskar konur vera mikið, það verða allir að vera ofboðs­lega sætir og fínir, vel mennt­aðir og heim­ilið þarf að vera full­komið og börnin frá­bær. Raun­veru­leik­inn er ekki svona. Og við bug­umst bara undan þessu. Það er kannski lær­dóm­ur­inn sem ég dró af þessu og hjálp­aði mér við að ná sátt og gera ekki of miklar kröfur á sjálfa mig sem og að finn­ast vera í lagi ef hlut­irnir eru ekki alltaf full­komnir.“

Hún tók jákvæðn­ina á þetta.

„Ég ákvað að vera ekki að velta mér upp úr sjúk­dómnum og ég held að slíkt sé engum hollt. Ég reyndi að hægja á öllu í lífi mínu. Ég flutti til dæmis upp í sveit með dætur mínar þar sem ég bjó í tvö ár og var í hluta­starfi sem flug­freyja hjá Icelandair og vann bara um helgar. Ég horfði á Eyja­fjalla­jökul út um svefn­her­berg­is­glugg­ann og Vest­manna­eyjar blöstu við frá pall­inum fyrir framan húsið og ég stúss­að­ist í hest­unum. Þetta hjálp­aði mér til að hægja á. Ég þurfti til dæmis ekki að vera að keyra stelp­urnar og sækja og fara í búð­ina á hverjum degi. Þarna var ég bara heima alla virka daga og þessi teng­ing við nátt­úr­una hjálp­aði mér mikið við að finna ró, gleð­ina og jákvæðn­ina. Manni getur liðið illa og fund­ist allt vera glatað og ómögu­legt en þá þarf maður að rífa í hnakka­drambið á sjálfum sér. Það er þessi gamli frasi sem skiptir máli: Horfa á glasið sitt hálf­fullt en ekki hálf­tómt.“

Nadia Katrín nefnir núvit­und, þakk­læti fyrir það sem hún hefur, þakk­læti fyrir hvern ein­asta dag og að reyna að minnka kröf­urnar sem hún gerir hvað varðar sjálfa sig og aðra. „Og það á að njóta augna­bliks­ins. Við vitum aldrei hvenær okkur er kippt í burtu. Það er svo margt sem gerir mann ham­ingju­saman. Ég held að leynd­ar­dóm­ur­inn sé að finna ham­ingj­una í litlu hlut­unum, vera sáttur í núinu og vera sáttur við sitt. Og ef maður er ekki sáttur við sitt, þá þarf að reyna að breyta því, hvort sem það er til dæmis búseta, atvinna eða sam­band. Það þarf að reyna að finna þetta hug­rekki til að breyta þá aðstæðum sínum og vera sáttur.“

Og ham­ingju­samur.

Sátt við eigin stöðu

„Að mínu viti felst ham­ingjan í því að vera sáttur við hvar maður er í líf­inu, leyfa sér að njóta litlu augna­blikanna og sjá feg­urð­ina í þessu hvers­dags­lega. Ég reyni að vakna með þá hugsun að hver dagur verði frá­bær og verk­efnin fram undan séu bara spenn­andi og skemmti­leg,“ segir Nadia Katrín, sem starfar sem fast­eigna­sali, og bætir við: „Að vera við góða heilsu bæði lík­am­lega og and­lega, vera jákvæður og sjá glasið alltaf hálf­fullt en ekki hálf­tómt tel ég skipta miklu máli og það að eyða ekki of miklum tíma í að velta sér upp úr ein­hverjum smá­at­riðum sem skipta engu máli í stóra sam­heng­inu. Ég á það reyndar til að vera með full­komn­un­ar­áráttu sem ég er alltaf að vinna í.“

Sumarið. Já, blessað sum­arið sem á næstu vikum víkur fyrir haustinu sem tekur við með sinni feg­urð. Nadia Katrín segir að það sé oft nóg að sjá sól­ina til að finna ham­ingj­una. Sum­ar­sól­ina. Það að vera úti í nátt­úr­unni veitir Nadiu Katrínu oft ham­ingju; úti­veran. Ferska loftið. Vind­ur­inn. Fugla­söng­ur­inn. Og auð­vitað nátt­úru­feg­urðin.

„Það gefur manni svo­lítið frelsi þegar maður fer í frí. Það ein­hvern veg­inn léttir yfir manni þegar ekið er út úr borg­inni og maður er á leið­inni út í nátt­úr­una. Ég held að það sé eitt­hvað sem gleður alla. Við Íslend­ingar erum svo góðu vön að vera víða með mikið útsýni og nátt­úru­feg­urðin er svo mikil. Ég er búin að gera fullt af skemmti­legum hlutum í sumar inn­an­lands; fara í nokkrar hesta­ferðir með frá­bæru fólki, gista á hót­el­inu við Bláa lónið, sem er ógleym­an­legt, fara í þyrlu­flug yfir eld­gosið og fram undan er svo veiði­ferð. Svo keyptum við hjónin okkur pall­hýsi sem ég gerði upp og erum að ferð­ast með um landið.“

Maður og hestur

Nadia Katrín á tvær dætur og stjúp­dóttur og hún talar um ham­ingj­una sem fylgir því að vera for­eldri. „Maður upp­lifir svo­lítið ham­ingju í gegnum börnin sín, eins og maður upp­lifir líka óham­ingju í gegnum börnin sín ef þeim vegnar ekki vel eða ef þeim líður illa. Ég held að það upp­lifi allir sem verða for­eldrar að það stjórnar líka ham­ingj­unni.“

Hún er líka mikil hesta­kona og segir hesta­mennsk­una gefa sér mikið. „Þetta er svo­lítið magnað og það er eig­in­lega ólýs­an­legt augna­blik þegar maður og hestur tengj­ast saman úti í nátt­úr­unni. Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að vera á góðum gæð­ingi á fal­legu tölti. Ég hugsa að fólk sem er mikið í göngum og fer í stór­brotna nátt­úr­una í óbyggðum upp­lifi örugg­lega líka þesssa til­finn­ingu; teng­ing­una við nátt­úr­una. Ég held að hesta­menn eigi þessa sömu til­finn­ingu en kannski aðeins í öðru veldi af því að það er líka teng­ingin við skepn­una.“

Hún rifjar upp nokkur augna­blik þar sem hún og hest­ur­inn þeytt­ust áfram.

„Ég man þegar ég var einu sinni á hest­baki í stillu og snjó og hlust­aði á and­ar­drátt­inn í hest­inum og brakið í snjónum. Það var ham­ingju­augna­blik. Ég á annað ham­ingju­augna­blik tengt hesta­mennsk­unni. Ég var þá að ríða í háu grasi á hryss­unni minni, sem er ofsa­lega fal­leg og fax­mikil, og var með hund­inn hlaup­andi við hlið­ina. Bara vá; er eitt­hvert annað augna­blik en þetta sem maður þarf í líf­inu?“

Nadia Katrín og eig­in­maður hennar eiga jörð á Snæ­fells­nesi og þangað fara þau oft. Þar eru hest­arnir þeirra og segir hún að á Snæ­fells­nesi séu fal­leg­ustu fjörur á land­inu. „Margir segja að það sé eins og para­dís hesta­manns­ins og það sé eins og þeir séu dánir og farnir til himna þegar þeir eru á góðum gæð­ingi á Löngu­fjörum. Þá ríður maður út í sand­inum og Snæ­fells­jök­ull blasir við. Það eru ótrú­legar stundir sem maður á í þessu sporti.“

Þetta veitir henni ham­ingju.

Hún talar líka um dans­inn. Tón­list­ina.

„Ég starf­aði sem nútíma­dans­ari erlendis áður fyrr og hafði verið með dans­flokki á löngu sýn­ing­ar­ferða­lagi í Ástralíu og síðan fengum við viku­langt frí og var milli­lent í Taílandi. Við fórum nokkur út í litla eyju og ég man þegar ég dró gamlan sól­stól niður að sjónum og sett­ist svo á hann og var með fæt­urna í sjónum.“

Þá upp­lifði hún ham­ingju.

„Mér finnst tón­list stjórna til­finn­ingum og ham­ingju mjög mikið. Það er alltaf verið að túlka til­finn­ingar með tón­list og hún er mjög ráð­andi í mínu lífi. Þegar ég var ung­lingur þurfti ég ekki nema eitt hresst lag til að kom­ast í geggjað stuð; það á nátt­úr­lega enn við. Maður getur rifið sig upp úr ein­hverri ládeyðu með því að spila fal­lega tón­list.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár