500. spurningaþraut: Á þessum tímamótum er spurt um spurningakeppnir

500. spurningaþraut: Á þessum tímamótum er spurt um spurningakeppnir

Þetta er 500. spurn­inga­þrautin og því er sjálf­sagt að spyrja um spurn­inga­þrautir.

Fyrri mynda­spurn­ing:

Maðurinn hér að ofan stýrði mjög lengi vin­sælum spurn­inga­þætti á Bret­landi. Hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða skóli hefur oft­ast unnið spurn­inga­keppni fram­halds­skól­anna í sjón­varpi, Gettu betur?

2.  Lengsta sig­ur­ganga þessa skóla taldi ell­efu ár — frá 1993-2003. Hvaða skóli rauf þá loks­ins þá miklu sig­ur­göngu?

3.  Hver hefur oft­ast verið spyrj­andi í Gettu betur?

4.  Hvaða sveit­ar­fé­lag vann oft­ast í Útsvari?

5.  Sagn­fræð­ingur einn hefur víða komið við sögu í spurn­inga­þáttum flestum, sem kepp­andi, spyrj­andi og spurn­inga­höf­undur, auk þess að rekja til dæmis sögu Gettu betur-þátt­anna ítar­lega á Facebook fyrir fáeinum miss­erum. Pöbbkviss ýmis hefur hann og haldið fleiri en tölu verður á komið og ann­ast spurn­inga­keppni fjöl­miðl­anna und­an­farin ár. Hvað heitir hann?

6.  Síð­ast­liðið sumar ann­að­ist Vera Ill­uga­dóttir spurn­inga­þætti á Rás eitt Rík­is­út­varps­ins. Hvað hétu þeir?

7.  Hver sá um Spurn­inga­bomb­una á Stöð 2 í þó nokkur ár?

8.  Veturinn 1987-1988 var geysi­vin­sæll spurn­inga­þáttur í Rík­is­sjón­varp­inu þar sem farið var um landið og sveit­ar­fé­lög og kaup­staðir kepptu. And­rúms­loftið í þátt­unum var létt, en hver stýrði þessum þáttum, sem reyndar hétu Hvað held­urðu?

9.  Auk spurn­inga­keppn­innar sjálfrar varð annað ákveðið fyr­ir­bæri ein­kenni þess­ara þátta. Hvað var það?

10.  Árið 1971 var mynduð ný rík­is­stjórn á Íslandi og þá sett­ist í ráð­herra­stól karl sem hafði til skamms tíma ekki verið þekktur í póli­tík. Stundum var því haldið fram í gamni og alvöru að góð frammi­staða hans í spurn­inga­þætti í útvarp­inu skömmu áður hefði fleytt honum alla leið í ráð­herra­stól­inn. Hvað hét hann?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Úr hvaða vin­sæla spurn­inga­þætti í sjón­varpi er skjá­skotið hér að neðan? Og svo er sér­stakt bað­strand­ar­stig í boði ef þið vitið rétta svarið við spurn­ing­unni úr sjón­varps­þætt­inum: Hvað þýðir nafnið á túrista­staðnum Algarve í Portúgal? — Sól­ar­strönd, Stórsjór, Vestrið eða Sand­strönd. (Ekki er hægt að veita lár­við­ar­stig fyrir svo létta spurn­ingu.)

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mennta­skól­inn í Reykja­vík.

2.  Verzlunarskóli Íslands.

3.  Logi Bergmann.

4.  Fjarða­byggð.

5.  Stefán Pálsson.

6.  Gáfna­ljósið.

7.  Logi Bergmann.

8.  Ómar Ragn­ars­son.

9.  Þar tróðu upp hag­yrð­ingar.

10.  Magnús Torfi Ólafsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn á efri mynd­inni er Magnús Magn­ús­son.

Þátt­ur­inn sem skjá­skotið á neðri mynd­inni er úr heitir Who Wants to be a Milli­onaire? — eða Viltu vinna milljón? eins og íslenska útgáfan var kölluð.

Og nafnið Algarve mun þýða Vestrið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár