499. spurningaþraut: Hvaða Harry Potter-bók hefur (ekki enn) verið skrifuð?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvern má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kína, Indland, Banda­ríkin, Indónesía, Brasilía, Nígería, Bangla­desj, Rússland og Mexíkó. Þetta eru tíu fjöl­menn­ustu ríki heims­ins. Nema þau eru aðeins níu, því það vantar eitt. Hvaða fjöl­menna ríki vantar í þessa upp­taln­ingu?

2.  Og fyrst hug­anum er vikið að mann­fjölda: Hvað er fjöl­menn­asta ríkið í Eyjaálfu?

3.  En það næst­fjöl­menn­asta í þeirri álfu?

4.  Hér eru nöfn á fimm Harry Potter-bókum: 1) Harry Potter og visku­steinn­inn, 2) Harry Potter og fang­inn frá Azkaban, 3) Harry Potter og leynd­ar­mál gula skugg­ans, 4) Harry Potter og eld­bik­ar­inn, 5) Harry Potter og dauða­djásnin. Ein af þessum bókum er þó til­bún­ingur minn. Hver þeirra er það?

5.  Hvaða Íslend­ingur var um tíma stjórn­andi stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem nefnd­ist UN Women í Afganistan?

6.  Hvað heitir höf­uð­borg Afganist­ans?

7.  Hvar eru Gríms­staðir?

8.  Hver gaf út á Bret­landi rit­gerð­ina Sér­her­bergi árið 1929?

9.  Við hvað er kennt þrí­hyrn­ings­laga haf­svæði þar sem sagt er að óvenju mörg skip og flug­vélar hafi horfið?

10.  Í hvaða landi fellur Mekong-fljót til sjávar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar var sú kirkja sem sést á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pakistan (er í fimmta sæti).

2.  Ástralía.

3.  Papúa-Nýja Gínea.

4.  Harry Potter og leynd­ar­mál gula skugg­ans hefur ekki enn verið skrifuð!

5.  Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

6.  Kabúl.

7.  Á Fjöllum.

8.  Virginia Woolf.

9.  Bermúda.

10.  Víetnam.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Björk Guð­munds­dóttir.

Þessi ljós­mynd prýddi albú­mið á plöt­unni Debut á sínum tíma.

Kirkjan á neðri mynd­inni stóð hins vegar í Skál­holti.

***

Svo er hér að neðan hlekkur á fyrri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár