498. spurningaþraut: Við hvað starfar þessi kona?

Auka­spurning númer eitt:

Við hvað starfar konan á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvaða ríki tilheyrir eyjan Samos?

2.  Benedikt Bogason gegnir um þessar mundir virðulegu embætti og hefur gert frá 2020. Hvaða embætti er það — nákvæmlega?

3.  Í námunda við hvaða stóran jökul er Eiríks­jökull?

4.  Hver var að sögn Eiríkur sá sem jökullinn er kenndur við?

5.  Hvers konar fyrirbæri er það sem nefnt er augnfró?

6.  Bandaríska konan Carli Lloyd tilkynnti um daginn að hún væri hér með hætt því sem hún hefur fengist við undan­farinn aldar­fjórðung, en Lloyd er nú 39 ára. Það er ekki hægt að segja annað en Lloyd hafi staðið sína plikt og rúmlega það, því hún hefur unnið öll þau afrek sem hægt er að vinna á ákveðnu sviði. Hvað hefur Lloyd fengist við um ævina?

7.  Í hvaða landi heitir höfuð­borgin Riga?

8.  Hvaða gyðja í norrænni goðafræði geymdi gullepli?

9.  Hvað áttu þessi epli að tryggja guðunum?

10.  Hvað kallast vega­lengdin 100 metrar samkvæmt metra­kerfinu?

***

Síðari auka­spurning:

Útlínur hvers má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Grikk­landi.

2.  Forseti Hæstaréttar. Hæstaréttar­dómari dugar ekki.

3.  Langjökul.

4.  Útilegu­maður, flótta­maður.

5.  Jurt.

6.  Fótbolta.

7.  Lettland.

8.  Iðunn.

9.  Eilífa æsku.

10.  Hektómetri.

***

Svör við auka­spurningum:

Konan á efri myndinni er japönsk geisha. „Vændis­kona“ er ekki rétt svar, því geishur eru það ekki endilega, þótt sumar þeirra kunni að vera það jafnframt því að vera geishur.

Á neðri myndinni má sjá útlínur Afganistans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár