Fjórar stjörnur frá Íslendingum

Flestir Íslendingar sem hafa séð Kötlu, Netflix-seríu Baltasars Kormáks, telja þættina góða.

Netflix-þættirnir Katla, úr smiðju Baltasars Kormáks, mælist vel fyrir hjá Íslendingum samkvæmt könnun fyrir­tækisins Prósent. Samkvæmt henni hafa 36 prósent séð alla þættina og 20 prósent til viðbótar eru búnir að sjá hluta þáttaraðarinnar.

Meirihlutinn taldi þættina góða. Alls 78 prósent þeirra sem höfðu séð þá sögðu þá góða en fimmtán prósent sögðu þá vera hvorki góða né slæma. Um það bil sjö prósent sögðu þá hins vegar slæma. Prósent segir Íslendinga hafa gefið þáttunum samanlagt fjórar stjörnur af fimm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár