Földu loftslagsvandann í áratugi

Sannanir hafa koma fram sem sýna að stjórn­endur stóru olíu­fyr­ir­tækj­anna vissu af nákvæmni í hvað stefndi vegna bruna jarð­efna­elds­neytis.

Földu loftslagsvandann í áratugi
Dauða­dal­ur­inn HItinn náði 54 gráðum í Dauða­dalnum í Kali­forníu, einum heitasta stað jarðar, fyrr í sumar. Mynd: PATRICK T. FALLON / AFP

Skóg­ar­eldar loga víða í Norður-Ameríku og hita­met eru slegin á hverjum degi. Sér­fræð­ingar í lofts­lags­málum ótt­ast að hraði breyt­inga sé nú orð­inn svo mik­ill að óaft­ur­kræfar breyt­ingar eigi sér stað í hringrás sem vart sé hægt að rjúfa úr þessu. Svört­ustu spár eru þegar að ræt­ast án þess að nokkur lausn sé í sjón­máli og sífellt kemur meira í ljós um hvað olíu­fyr­ir­tækin vissu að væri í vændum.

Olíu­fé­lagið Shell hélt lok­aðan fund með helstu stjórn­endum árið 1958. Tilefnið var skýrsla sem einn þeirra, Charles Jones, hafði látið gera um umhverf­is­á­hrif olíu­brennslu til lengri tíma. Henni var síðan deilt skömmu síðar með þrýsti­hópi olíu­iðn­að­ar­ins, American Petr­o­leum Institute. 

Mótmæli vegna lofts­lags­hlýn­unarAktí­visti úr hópnum Extinction Rebellion, eða Uppreisn gegn útdauða, ber merki olíu­fé­lags­ins Shell, sem vissi af áhrifum lofts­lags­breyt­inga strax á sjötta ára­tugnum.

Það sem þeir stjórn­endur vissu strax þá, en fyr­ir­tækin sem þeir stýrðu hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár