Fordæma ritskoðunartilburði fordómafulls ráðherra í Færeyjum

Evr­ópskir, græn­lenskir og danskir kvik­mynda­gerð­ar­menn for­dæma fram­göngu fær­eyska mennta­mála­ráð­herr­ans Jenisar av Rana. Ráð­herr­ann aft­ur­kall­aði styrk sem þegar var búið að veita fær­eyskri kvik­mynd, að því er virð­ist vegna per­sónu­legra skoð­ana sinna á því að hún bryti gegn vel­sæmi.

Fordæma ritskoðunartilburði fordómafulls ráðherra í Færeyjum
Sagður stunda póli­tíska rit­skoðun Jenis av Rana hefur áður kom­ist í frétt­irnar fyrir for­pok­aðar skoð­anir sínar. Mynd: Johannes Janson

Félag evr­ópskra kvik­mynda­leik­stjóra hefur, ásamt félagi græn­lenskra kvik­mynda­gerð­ar­manna, sam­tökum lista­manna í Danmörku og félagi danskra kvik­mynda­leik­stjóra, sent sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu til utan­ríkis- og mennta­mála­ráðu­neytis Færeyja þar sem rit­skoð­un­ar­til­burðum ráð­herr­ans Jenis av Rana er harð­lega mót­mælt.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að ráð­herr­ann hafi nú í tvígang aft­ur­kallað stuðn­ing til kvik­mynda, sem fær­eyski kvik­mynda­sjóð­ur­inn hafði áður sam­þykkt að veita styrk. Það hafi gerst í des­em­ber síð­ast­liðnum þegar hann hafi neitað að styrkja gerð teikni­mynd­ar­innar Skúla Scam og svo aftur nú. Í þetta skipti hafi Jenis av Rana neitað stuðn­ingi við gerð kvik­mynd­ar­innar Sælu eftir leik­stjór­ann Katrin Joensen-Næs. Við­fangs­efni kvik­mynd­ar­innar er kyn­lífs­fíkn kvenna.

„Við erum hneyksluð yfir því að þetta ger­ist á nýjan leik því hér er um að ræða aðför að list­rænu frelsi. Einkum á það við þegar höfnun á stuðn­ingi bygg­ist á per­sónu­legri túlkun ráð­herr­ans á vel­sæmi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þar segir enn fremur að lýst sé fullum stuðn­ingi við fær­eyskt kvik­mynd­ar­gerð­ar­fólk og kallað eftir því að stuðn­ingur við listir fái vernd gegn póli­tískri rit­skoðun. End­ur­tekin afskipti stjórn­mála­manna komi í veg fyrir sam­starf fær­eyskra kvik­mynda­gerð­ar­manna við erlenda aðila.

Jenis av Rana er for­maður Mið­flokks­ins í Færeyjum, sem meðal ann­ars leggur áherslu á kristi­leg gildi og hefur barist gegn rétt­indum hinsegin fólks. Jenis av Rana hefur áður vakið athygli fyrir for­dóma­fullar skoð­anir sínar, byggðar á hans kristi­legu heim­sýn. Þannig neit­aði hann að árið 2010 að sitja kvöld­verð­ar­boð lög­manns Færeyja árið 2012 sem haldið var til heið­urs Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Jónínu Leós­dóttur eig­in­konu hennar. Jóhanna var þá í opin­berri heim­sókn í Færeyjum. Lýsti Jenis av Rana því að heim­sókn Jóhönnu væri hrein ögrun og ekki í sam­ræmi við boð­skap Bibl­í­unnar. Þar af leið­andi léti hann sér ekki til hugar koma að sitja kvöld­verð­ar­boðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár