Vilborg Frið­riks­dóttir Varð hrædd þegar hún fann fyrsta skalla­blett­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Elskar sjálfa sig meira eftir að hún missti hárið

Vilborg Frið­riks­dóttir er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alapecia areata sem veldur því að hún fær skalla­bletti. Áhyggj­urnar og van­líð­anin var mikil vegna þessa en hún segir að sér hafi farið að líða betur eftir að hún rak­aði af sér hárið.

„Ég fann fyrsta skalla­blett­inn í lok októ­ber í fyrra. Hann var pínu­lít­ill; eins og fimm­kall,“ segir Vilborg Frið­riks­dóttir, sem hringdi í heilsu­gæsl­una dag­inn eftir að hún sá fyrsta blett­inn, fékk að tala við hjúkr­un­ar­fræð­ing og síðan fékk hún tíma hjá heim­il­is­lækn­inum.

„Fyrsta hugs­unin var að ég væri með ein­hvern ólækn­andi sjúk­dóm af því að ég var að missa hárið og ég hélt ég væri að deyja. Ég var ofboðs­lega hrædd. Ég hef í gegnum tíð­ina verið með fal­legt og sítt hár og hef aldrei þurft að nota efni í það að ráði og fékk oft hrós út á hárið. Þannig að hárið var stór hluti af mér. Ég hef gengið í gegnum ýmis­legt og hárið er það eina við mig sem mér hefur alltaf þótt vænt um.“

Lækn­ir­inn vissi ekki hvað olli hár­miss­inum, en full­vis­aði Vilborgu um að hún myndi lifa af.

„Hann sagði að ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Konur sem missa hárið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár