Hjördís Guðmundsdóttir er með sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia areata sem veldur því að hún missir hárið. Hún segist fyrst hafa verið mjög brotin og ekki fundist hún eins mikil kona og áður; henni fannst hún missa kvenleikann við að missa hárið. Henni finnst það ekki lengur. Hjördís segir að hún sé sterkari í dag en áður.
„Ég var rosalega brotin fyrst. Og mér fannst ég ekki vera eins mikil kona og áður,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, sem var 25 ára þegar hún fékk fyrsta skallablettinn. Síðan þá hefur hún gengið í gegnum erfiðar tilfinningar sem tengjast sjálfsmynd þeirrar konu sem missir hárið.
„Ég hafði ekkert miklar áhyggjur af þessu; ég var þá búin að eignast þrjú börn og barneignum getur oft fylgt mikið hárlos og það geta alveg komið svona blettir. Ég fór reyndar til læknis út af þessu og fékk steraáburð og þetta gekk til baka. Hárið fór svo að þynnast í hnakkanum þegar ég var 32 ára. Það fóru að koma litlir blettir sem stækkuðu. Svo fór að vaxa hár í þeim og þá fóru að myndast blettir annars staðar. Svona var þetta í mörg ár þar sem kom hver bletturinn á fætur öðrum, þeir stækkuðu, hárið óx aftur í þeim og stundum náðu …
Athugasemdir