Namibíska lögreglan bað Interpol að hafa uppi á nýráðnum fjármálastjóra Orkusölunnar

Elísabet Ýr Sveins­dóttir kom að milli­færslum Sam­herj­a­fé­laga á Kýpur inn á leyni­reikn­ing James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Fishcor, í Dúbaí. Tilkynnt var í dag um ráðn­ingu hennar í starf fjár­mála­stjóra Orku­söl­unnar, sem er að fullu í eigu íslenska rík­is­ins.

Namibíska lögreglan bað Interpol að hafa uppi á nýráðnum fjármálastjóra Orkusölunnar
Í ork­una Elísabet Ýr hefur und­an­farin ár starfað fyrir Samherja í Evrópu og kom sem slík að greiðslum til aflands­fé­lags­ins Tunda­vala Invest­ment. Greiðsl­urnar eru rann­sak­aðar sem mútur og hefur við­tak­andi þeirra verið fang­els­aður í Namibíu. Mynd: Orkusalan

Nýráðinn fjár­mála­stjóri Orku­söl­unnar, Elísa­bet Ýr Sveins­dótt­ir, var meðal þeirra Íslend­inga sem namibíska lög­reglan freist­aði að hafa uppi á með aðstoð alþjóða­lög­regl­unnar Interpol. Þetta sýna gögn sem lögð hafa verið fram fyrir namibískum dóm­stólum. Í beiðn­inni til Interpol, sem lögð var fram síð­ast­liðið sumar, sagð­ist lög­reglan gruna hana og níu aðra nafn­greinda starfs­menn Samherja um lög­brot. Hún er þó ekki meðal þeirra þriggja sem sak­sókn­ari í Namibíu hefur viljað ákæra í því máli sem nú er til með­ferðar fyrir dóm­stólum. 

Tilkynnt var um ráðn­ingu Elísa­betar Ýrar til Orku­söl­unnar í dag. Það er fyr­ir­tæki sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins í gegnum opin­bera hluta­fé­lagið Rarik. 

Elísabet Ýr var um ára­bil starfs­maður Samherja í Evrópu og kom sem slík að milli­færslum frá kýp­verskum dótt­ur­fé­lögum útgerð­ar­innar til Dúbaí-félags­ins Tunda­vala Invest­ment, félags í eigu James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­manns namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fischor. Nafn hennar hefur lítið sem ekk­ert verið nefnt í fréttum af Namib­íu­mál­inu, en hún hefur engu að síður verið einn af lyk­il­starfs­mönnum Samherja um ára­bil. 

Í gögnum sem lögð voru fyrir dóm í Namibíu á síð­asta ári kemur fram að hún hafi sam­þykkt milli­færslur til Dúbaí-félags­ins ásamt Ingvari Júl­í­us­syni, fjár­mála­stjóra Samherja á Kýpur. Hann er einn þriggja Íslend­inga og Sam­herj­a­manna sem namibíski sak­sókn­ar­innar hefur sagst vilja ákæra. Sak­sókn­ar­inn hefur farið fram á að hann verði fram­seldur til Namibíu svo hægt sé að birta honum ákæruna og rétta yfir honum. 

Í yfir­lýs­ingu sem Ingvar sendi dómnum í síð­asta mán­uði vís­aði hann allri ábyrgð á milli­færsl­unum á Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ara Namib­íu­máls­ins. Milli­færsl­urnar sem um ræðir voru þó á milli félaga sem Jóhannes stýrði ekki og af reikn­ingum sem hann hafði ekki aðgang að. Stór hluti milli­færsln­anna átti sér líka stað eftir að Jóhannes hætti störfum hjá Samherja árið 2016. Til að mynda þær greiðslur sem Elísabet Ýr sam­þykkti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár