Píratar næst stærstir en margir í kringum 11 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með fjórð­ungs fylgi í nýrri könnun MMR. Píratar mæl­ast nú næst stærstir með 13,5 pró­sent fylgi, pró­sentu­stigi meira en Fram­sókn­ar­flokkur.

Píratar næst stærstir en margir í kringum 11 prósent
Þing­heimur Kosið verður til Alþingis í sept­em­ber á þessu ári. Mynd: GEIRIX/PHOTOGRAPHER.IS

Píratar mæl­ast næst stærsti flokk­ur­inn með 13,5 pró­senta fylgi í nýrri könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærstur, með tæp­lega fjórð­ungs fylgi.

Fram­sókn­ar­flokkur mælist litlu minni en Píratar, með 12,5 pró­sent. Vinstri græn, Viðreisn og Sam­fylk­ing mæl­ast öll í kringum 11 pró­sent.

Mið­flokkur og Sós­í­alista­flokkur eru minnstir þeirra sem rjúfa fimm pró­senta þrösk­uld­inn, með 6,5 pró­sent og 5,6 pró­sent. Flokkur fólks­ins, sem náði inn á þing í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með 2,8 pró­senta fylgi.

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir þrír 48,2 pró­senta fylgi.  Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er þó örlítið meiri en fylgi stjórn­ar­flokk­anna; 50,2 pró­sent. Það er tæp­lega þremur pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu könnun.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á þingi mæl­ast sam­an­lagt með 44,7 pró­sent.

Fylgi flokkaNið­ur­stöður MMR-könn­un­ar­innar sem fram­kvæmd var dag­ana 25. maí til 1. júní.

Könnunin var fram­kvæmd á tíma­bil­inu 25. maí til 1. júní. Úrtakið voru ein­stak­lingar sem valdir voru handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. Þeir eru valdir úr Þjóðskrá með hlið­sjón af lýð­fræði­legri sam­setn­ingu þjóð­ar­innar á hverjum tíma­punkti. Svar­fjöldi var 951 ein­stak­lingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár