Kalla eftir breiðfylkingu gegn tilraunum Samherja

Þörf er á breið­fylk­ingu gegn til­raunum Samherja til að grafa undan sam­fé­lags­sátt­mál­anum og þeim gildum sem hann byggir á, að mati Íslands­deildar Transparency International. Tilefnið er afhjúpun á „skæru­liða­deild“ útgerð­ar­innar.

Kalla eftir breiðfylkingu gegn tilraunum Samherja

Í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin birtu í dag er kallað eftir breið­fylk­ingu almenn­ings, félaga­sam­taka, stétt­ar­fé­laga, sam­taka upp­ljóstr­ara, fræða­sam­fé­lags, stjórn­mál­anna og allra þeirra sem vett­lingi gegn þessum til­raunum útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins. 

Tilefni til­kynn­ing­ar­innar er umfjöllun Stund­ar­innar og Kjarnans um „skæru­liða­deild“ Samherja. Þar kom meðal ann­ars fram að almanna­teng­ill á snærum Samherja og inn­an­hús­lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi notað skip­stjóra til að leppa skrif sem birst hafa til varnar fyr­ir­tæk­is­ins á síð­ustu mán­uðum. Skrif sem hafa haft þann meg­in­til­gang að grafa undan trú­verð­ug­leika þeirra blaða­manna sem fjallað hafa um Sam­herj­a­skjölin svoköll­uðu.

„Skæru­lið­arnir“ beindu sjónum sínum líka að þeim sem gagn­rýnt höfðu fyr­ir­tækið. Svo sem Íslands­deild Transparency International, sem áður hefur birt harð­orðar yfir­lýs­ingar vegna fram­ferðis Samherja. 

Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um almanna­hag þurfa ekki „skæru­liða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“
Íslands­deild Transparency International

„Fyr­ir­tæki sem hafa ekk­ert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu sam­fé­lagi og almanna­heill. Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um almanna­hag þurfa ekki „skæru­liða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“,“ segir í yfir­lýs­ingu Transparency International, þar sem vitnað er til sam­skipta Sam­herj­a­fólks sem afhjúpuð voru í Stund­inni síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Samtökin kalla eftir því að stjórn­mála­menn láti í sér heyra. 

„Stjórn­mála­menn og sér­stak­lega stjórn­ar­liðar geta ekki lengur komið sér undan því að takast á við hið póli­tíska og kerf­is­læga umhverfi sem umber svona fram­göngu árum sama,“ segir í yfir­lýs­ing­unni og því bætt við að annað hvort séu stjórn­mála­menn með almenn­ingi í bar­átt­unni gegn spill­ingu eða á móti með þögn, með­virkni, aðgerð­ar­leysi og seina­gangi við að koma upp nútíma­legum spill­ing­ar­vörnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár