Fyrrverandi framkvæmdastjóri SFS vill verða ráðuneytisstjóri sjávarútvegsmála

Kolbeinn Árnason er einn 13 umsækjenda um starf ráðuneytis­stjóra í atvinnu- og nýsköpunar­ráðuneytinu. Árin 2013 til 2016 var hann framkvæmda­stjóri LÍÚ sem í dag heitir SFS.

Vill verða ráðuneytisstjóri
Vill verða ráðu­neyt­is­stjóri Kolbeinn Árnason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri SFS, vill verða ráðu­neyt­is­stjóri í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Mynd: mbl/Golli

Fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi (SFS), Kolbeinn Árnason, er meðal umsækjenda um starf ráðuneytis­stjóra í atvinnu- og nýsköpunar­ráðuneytinu. Þrettán umsækjendur eru um starfið og mun Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs­ráðherra skipa í það frá og með 1. júlí. Kolbeinn var framkvæmda­stjóri SFS, sem áður hét LÍÚ, á árunum 2013 til 2016 en nafna­breytingin á samtökunum áttii sér stað í nóvember 2014. 

Við stofnun SFS sagði Kolbeinn meðal annars að hann vildi ríkari sátt um sjávar­útveg á Íslandi: „Sjávar­útvegur spannar óravítt svið. Við rekstur sjávar­útvegs­fyrirtækja verður að taka tillit til ótal þátta og mismun­andi hagsmuna. Mismun­andi hagsmunir togast oft á en það er ósk mín að með sameiningu hagmuna­samtaka í sjávar­útvegi verði hægt að taka ákvarðanir á breiðari grunni, skapast geti ríkari sátt um þessa mikilvægu atvinnu­grein svo hún geti áfram staðist alþjóð­lega samkeppni.“

Í október í fyrra var Kolbeinn nýr skrif­stofustjóri matvæla­öryggis og fiskeldis í ráðuneytinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár