„Okkur vantar atvinnustefnu“

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir ekki nóg að treysta á að allt komi upp í hend­urnar á okkur, hvort sem það sé síldin, loðnan eða túrist­inn. Nú þurfi að ein­blína á fjöl­breytt­ari tæki­færi, bæði í nýsköpun, land­bún­aði, grænum störfum og fleira.

„Okkur vantar atvinnustefnu“
Þörf á atvinnu­stefnu til fram­tíðar Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að Ísland hafi of lengi reitt sig á lukku sína til að takast á við vanda­mál líð­andi stundar. Þess í stað leggur hún til að sett verði atvinnu­stefna til fram­tíðar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin ræddi við leið­toga atvinnu­lífs­ins og stétt­ar­fé­lag­anna og lagði fyrir þá spurn­ingar um hvernig sam­fé­lag þeir vildu sjá og berj­ast fyrir eftir að land­inu tekst að kom­ast í gegnum Covid-19 far­ald­ur­inn.

Hvernig telur þú æski­legt að end­ur­reisa vinnu­mark­að­inn og koma sam­fé­lag­inu út úr krepp­unni þegar tök hafa náðst á heims­far­aldr­inum?

„Það spilar heim og saman við það sem er að ger­ast í heim­inum líka, græn umskipti og tækni­breyt­ingar, og svo fram­vegis. Okkur vantar atvinnu­stefnu; það er ekki nóg að við séum að treysta alltaf á að allt komi upp í hend­urnar á okkur, hvort sem það er síldin eða loðnan eða túrist­inn. Við þurfum að vera með betra plan. Við þurfum að fara að ein­beita okkur að fjöl­breytt­ari tæki­færum, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Framtíðin sem þau vilja

ViðtalFramtíðin sem þau vilja

Hlutverk atvinnu­rek­enda að sýna „auð­mýkt og sann­girni“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir að staða félags­manna sé mjög veik. Þar ríki mikið atvinnu­leysi og um helm­ingur hafi neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu síð­ustu sex mán­uði, tæp­lega helm­ingur Efl­ing­ar­kvenna eigi erfitt með að ná endum saman og fjórð­ungur karla hefur varla tekið sum­ar­frí í fimm ár. Nú þurfi að hverfa frá grimmri stefnu og inn­leiða auð­mýkt og sann­girni á vinnu­mark­aði.

Mest lesið undanfarið ár