„Afkomuöryggi er leiðin út úr kreppunni“

Drífa Snædal for­seti ASÍ hefur staðið í ströngu und­an­farna mán­uði í svipti­vindum á vinnu­mark­aði. Covid-kreppan hefur valdið því að fram­leiðni hefur dreg­ist saman um hund­ruð millj­arða og útlit er fyrir nokkur hund­ruð millj­arða króna minni fram­leiðni á næsta ári heldur en gert hafði verið ráð fyrir. Atvinnu­leysi hefur náð hæstu hæðum og mik­ill þrýst­ingur hefur verið á launa­fólk að taka á sig kjara- og rétt­inda­skerð­ingar. Hún varar við því að stjórn­völd geri mis­tök út frá hag­fræði­kenn­ingum atvinnu­rek­enda.

„Afkomuöryggi er leiðin út úr kreppunni“

Drífa tók á móti blaða­manni á hús­næði Alþýðu­sam­bands Íslands á fal­legum haust­morgni. Þetta var í miðri deilu ASÍ og SA. Samtök atvinnu­lífs­ins höfðu haft uppi stór orð um for­sendu­brest og mögu­lega upp­sögn lífs­kjara­samn­ing­anna. Drífa átti þátt í gerð samn­ing­anna sem þóttu marka tíma­mót í vinnu­mark­aðs­málum á Íslandi meðal ann­ars vegna umfangs þeirra, aðkomu stjórn­valda og þess að þeir bein­ast fyrst og fremst að lág­tekju­fólki. 

Ekki var annað að sjá en að Drífa væri sall­ar­ó­leg þrátt fyrir mold­viðrið sem deilan hafði skapað í fjöl­miðlum. Síðar átti eftir að koma í ljós að ekk­ert varð úr stóru orð­unum. Kannski sér Drífa lengra en nef hennar nær.

Við komum við á kaffi­stof­unni og helltum eld­heitu kaffi í krúsir. Drífa notar alltaf sama boll­ann, eins og þeir sem hafa horft á kvöld­fréttir að und­an­förnu hafa eflaust tekið eftir. Rauðan múmín­bolla með mynd af Míu litlu. Í dag var engin und­an­tekn­ing á því. Fyrsta spurn­ingin var því óhefð­bundin og úr sam­hengi við allt.

Drífa, ertu aðdá­andi múmín­fjöl­skyld­unnar? 

Drífa hlær „Já, það er reyndar saga að segja frá þessum bolla. Þannig var að þegar ég bauð mig fram sem for­seta ASÍ þá var ég teiknuð sem Mía litla af skop­mynda­teikn­ara Morg­un­blaðs­ins og fékk þennan bolla að gjöf frá vini mínum í kjöl­farið. Þessi bolli hefur fylgt mér mína for­seta­tíð. Þetta er bara minn bolli hérna á skrif­stof­unni.“ segir hún sposk. 

Fyrir þá sem hafa ekki sett sig inn í  múmín­póli­tík­ina er vert að geta að Mía litla er lág­vaxin, stjórn­söm og ákveðin. Henni tekst nær alltaf að fá fólk á sitt band og oftar en ekki kemur í ljós að aðferðir hennar, sem virka stundum öfga­fullar á yfir­borð­inu eru þær áhrifa­rík­ustu.  

Við komum okkur fyrir í þægi­legum sófa á skrif­stof­unni hennar og snúum okkur að stóru mál­unum. 

„Róttækasti vettvangurinn í dag“

Hvers vegna vald­irðu að starfa að verka­lýðs­málum?  

„Þetta er bara ein­hvern veg­inn mest spenn­andi vett­vang­ur­inn, rót­tæk­asti vett­vang­ur­inn í dag. Þetta er vett­vang­ur­inn þar sem hlut­irnir eru að ger­ast og mögu­leiki er á að hreyfa við hlutum, hafa áhrif og bæta kjör fólks. Mér finnst það vera mest spenn­andi bar­átta sem hægt er að heyja,“ segir Drífa. „Ég held líka að upp­eldið hafi haft mikið að segja. Afi minn var vara­for­seti ASÍ þannig að ég óst upp við miklar umræður um verka­lýðs­mál. Ég fór snemma að taka þátt í póli­tík sjálf, varð til dæmis for­maður Iðn­nema­sam­bands­ins í tvö ár á tíunda ára­tugnum. Síðan hef ég bara alltaf dottið niður í vinnu­mark­aðs­mál, bæði þegar ég fór í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, en þá end­aði ég á að skrifa loka­rit­gerð um kjara­samn­ings­gerð og svo þegar ég fór í meist­ara­nám í vinnu­mark­aðs­fræði.“

„Afi minn var vara­for­seti ASÍ þannig að ég óst upp við miklar umræður um verka­lýðs­mál“

Hvað mein­arðu með því að verka­lýðs­bar­átta sé rót­tæk­asti vett­vang­ur­inn í dag?

„Það er hægt að koma á miklu rót­tæk­ari breyt­ingum í gegnum verka­lýðs­hreyf­ing­una sem þrýsti­afl heldur en að vera að dund­ast í ein­hverjum stjórn­mála­flokki. Sagan kennir okkur að öll þessi kerfi, þessi örygg­is­kerfi og sú vel­ferð sem við höfum byggt upp hefur orðið, meira eða minna vegna þrýst­ings vinn­andi fólks og verka­lýðs­hreyf­inga, það er bara þannig. Hvort sem við erum að tala um líf­eyr­inn okkar, sjúkra­trygg­ingar, fæð­ing­ar­or­lofið eða hvað sem við erum að tala um.“

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefur sagt að of miklar launa­hækk­anir valdi verð­bólgu eða auknu atvinnu­leysi. Hann segir að þetta sé ein af þeim stað­reyndum eða lög­málum sem ekki er lengur deilt um.

Hafnar þú því að launa­hækk­anir nú leiði til verð­bólgu eða auk­ins atvinnu­leysis?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár