„Leið vaxtar er farsælasta leiðin fram á við“

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, telur að besta leiðin til að auka gæði lands­manna til lengri tíma sé að bæta rekstr­ar­skil­yrði núver­andi atvinnu­greina og byggja upp fyrir nýjan iðnað.

„Leið vaxtar er farsælasta leiðin fram á við“
Þörf á fleiri störfum í einka­geir­anum Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, segir að til þurfi 29 þús­und fleiri störf á einka­mark­að­inum á næstu fjórum árum og auka þarf útflutn­ing um 300 millj­arða króna til að búa til sömu lífs­gæði og réðu ríkjum fyrir Covid-19 far­ald­ur­inn.

Stundin ræddi við leið­toga atvinnu­lífs­ins og stétt­ar­fé­lag­anna og lagði fyrir þá spurn­ingar um hvernig sam­fé­lag þeir vildu sjá og berj­ast fyrir eftir að land­inu tekst að kom­ast í gegnum Covid-19 far­ald­ur­inn.

Hvernig telur þú að sé æski­legt að end­ur­reisa vinnu­mark­að­inn og koma land­inu úr krepp­unni eftir að búið er að ná stjórn á Covid-19 far­aldr­inum?

„Á næstu tólf mán­uðum verða teknar ákvarð­anir sem munu ráða miklu um efna­hags­lega fram­tíð á Íslandi næstu ár og ára­tugi. Kólnun hag­kerf­is­ins var stað­reynd fyrir heims­far­aldur kór­óna­veiru. Viðbrögð við heims­far­aldr­inum hafa reynst hinu opin­bera mjög kostn­að­ar­söm og nemur aukn­ing skulda hátt í millj­arði króna á hverjum virkum degi. Eftir skyn­sama hag­stjórn und­an­far­inna ára er rík­is­sjóður vel í stakk búinn að taka á sig auknar byrðar en að lokum kemur að skulda­dögum. Leið vaxtar – að veita atvinnu­líf­inu svig­rúm til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Framtíðin sem þau vilja

ViðtalFramtíðin sem þau vilja

Hlutverk atvinnu­rek­enda að sýna „auð­mýkt og sann­girni“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir að staða félags­manna sé mjög veik. Þar ríki mikið atvinnu­leysi og um helm­ingur hafi neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu síð­ustu sex mán­uði, tæp­lega helm­ingur Efl­ing­ar­kvenna eigi erfitt með að ná endum saman og fjórð­ungur karla hefur varla tekið sum­ar­frí í fimm ár. Nú þurfi að hverfa frá grimmri stefnu og inn­leiða auð­mýkt og sann­girni á vinnu­mark­aði.

Mest lesið undanfarið ár