„Stærra bótakerfi tekur ekki á vandanum“

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir stærra bóta­kerfi ekki leysa neinn vanda heldur þurfi að fjölga störfum til að stoppa í fjár­lagagatið.

Vill ýta undir atvinnusköpun
Vill ýta undir atvinnu­sköpun Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, telur að með réttri for­gangs­röðun yfir­valda sé hægt að ýta undir atvinnu­sköpun og forða starfs­fólki frá lang­tíma áhrifum atvinnu­leysis. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin ræddi við leið­toga atvinnu­lífs­ins og stétt­ar­fé­lag­anna og lagði fyrir þá spurn­ingar um hvernig sam­fé­lag þeir vildu sjá og berj­ast fyrir eftir að land­inu tekst að kom­ast í gegnum Covid-19 far­ald­ur­inn.

Hvernig telur þú æski­legt að end­ur­reisa vinnu­mark­að­inn og koma sam­fé­lag­inu út úr krepp­unni þegar tök hafa náðst á heims­far­aldr­inum?

„Ég held að það þurfi að leggja lang­mestu áherslu á að koma atvinnu­lausu fólki aftur í vinnu eins hratt og hægt er. Það er hægt að gera það á ýmsa vegu, en fók­us­inn á þeim aðferðum sem verða not­aðar þarf að vera á að taka á vand­anum en ekki bara ein­kenn­unum. Þegar menn nálg­ast atvinnu­leysi sem vanda­mál þá horfa þeir oft í tvær áttir hvernig hægt er að takast á við það. Það er ann­ars vegar að auka eða hækka ýmsar bætur eða þétta vel­ferð­ar­net …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Framtíðin sem þau vilja

ViðtalFramtíðin sem þau vilja

Hlutverk atvinnu­rek­enda að sýna „auð­mýkt og sann­girni“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir að staða félags­manna sé mjög veik. Þar ríki mikið atvinnu­leysi og um helm­ingur hafi neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu síð­ustu sex mán­uði, tæp­lega helm­ingur Efl­ing­ar­kvenna eigi erfitt með að ná endum saman og fjórð­ungur karla hefur varla tekið sum­ar­frí í fimm ár. Nú þurfi að hverfa frá grimmri stefnu og inn­leiða auð­mýkt og sann­girni á vinnu­mark­aði.

Mest lesið undanfarið ár