Vilja koma á gjaldtöku við eldgosið sem fyrst

Fjöl­breyttur hópur vill rukka fyrir bíla­stæði við gos­s­töðvar á Reykja­nesi. „Gerum þetta nú endi­lega ekki að enn einu mál­inu þar sem verður tiplað árum saman í kringum spurn­ing­una um gjald­töku, skellum henni bara á strax,“ skrifar fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.

Vilja koma á gjaldtöku við eldgosið sem fyrst
Vilja gjald­töku Hvatt er til þess að gjald­taka verði tekin upp á bíla­stæðum við gos­s­töðv­arnar.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, kallar eftir gjald­töku fyrir bíla­stæði við gos­s­töðvar á Reykja­nesi til þess að fjár­magna fram­kvæmdir og gæslu á svæð­inu. Hug­myndin hefur mætt stuðn­ingi fjöl­breytts hóps.

Björn Teitsson, kynn­ing­ar­stjóri og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl, vakti máls á þessu í Morg­un­blað­inu í dag. Sagði hann bíla­stæða­mál í ólestri, fimm kíló­metra langa röð af bílum og engin laus stæði við gos­s­töðv­arnar. „Grinda­vík­ur­bær gæti strax byrjað að rukka 1.000 kall í stæði og það myndi þýða svona 5-10 millj­ónir á dag, sem væri hægt að nota í þjón­ustu. Nú er eng­inn að borga neitt nema frjáls fram­lög til björg­un­ar­sveita, sem er gott og blessað, en það munar engan um að borga líka 1.000 kall í stæði og allir eru til í það.“

Ólafur studdi hug­mynd Björns í færslu á Facebook í morgun. „Það blasir við hverjum sem leggur leið sína þangað að gera þarf meiri ráð­staf­anir til að taka við þessum gríð­ar­lega fjölda sem vill skoða gosið,“ skrifar Ólafur. „Ég er svo hjart­an­lega sam­mála því sem Björn Teitsson leggur til og blaðið segir frá, að rukkað verði fyrir bíla­stæði á svæð­inu, þús­und­kall á bíl og þá eru strax komnar nokkrar millj­ónir á dag til að setja í stíga­gerð, merk­ingar, gæzlu o.s.frv. Gerum þetta nú endi­lega ekki að enn einu mál­inu þar sem verður tiplað árum saman í kringum spurn­ing­una um gjald­töku, skellum henni bara á strax. Allir borga glaðir. Ég lagði inn á björg­un­ar­sveit­ina Þorbjörn fyrst ég fékk ekki að borga inn á svæðið.“

„Allir borga glaðir“

Fjöldi fólks styður til­lög­una í athuga­semdum við færslu Ólafs. „Skyn­sam­leg til­laga,“ skrifar Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor við Háskóla Íslands. „Eðal­hug­mynd hjá þér,“ segir Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri á Akureyri, um hug­mynd Björns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár