Útfararstjóri Íslands: Siggi hakkari játar að hafa svikið tugi milljóna króna úr íslenskum fyrirtækjum

Sigurður Þórð­ar­son, eða Siggi hakk­ari eins og hann er kall­aður, hefur und­an­farin ár náð að svíkja út tugi millj­óna úr íslenskum fyr­ir­tækjum. Sigurður er skráður fyrir fjöld­ann af hluta­fé­lögum og félaga­sam­tökum sem hann not­ast við. Í við­tali við Stundina játar hann svik og skjala­fals­anir.

<span>Útfararstjóri Íslands:</span> Siggi hakkari játar að hafa svikið tugi milljóna króna úr íslenskum fyrirtækjum

Sigurður Ingi Þórð­ar­son er klæddur í bláa úlpu og stutt­buxur, þótt úti sé næð­ingur, kalt í veðri og snjó­koma. Hann er aðeins 28 ára gam­all en það er komið að ögur­stundu, hann ætlar að játa. Að baki er löng slóð svika. Í upp­hafi við­tals­ins þvertók Sigurður Ingi fyrir að hafa gert nokkuð rangt, en loks játar hann allt. Segir það rétt að hann hafi haft í hyggju að svíkja fólk, hafa af því fé og stinga í eigin vasa. 

Þrátt fyrir ungan aldur er Sigurður Ingi bæði þekktur og afkasta­mik­ill glæpa­maður. Á ekki lengri tíma en tíu árum hefur hann stolið tugum millj­óna í pen­ingum, svikið út glæsi­kerrur, sofið á hót­elum, borðað safa­ríkan skyndi­bita og ferð­ast til útlanda án þess að greiða krónu fyrir. Nú þegar hefur hann verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn níu piltum. Fleiri kærðu. Einn framdi sjálfs­víg.

Nú játar hann svika­myllu. „Eini til­gangur þess­ara félaga er að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár