Óttastjórnunin var verst

Gígja Skúla­dóttir seg­ist hafa áttað sig á því fyrsta dag­inn í Varp­holti að þar væri ofríki for­stöðu­manns­ins algjört og hún gjör­sam­lega valda­laus. Hún var ein þeirra sem lét Umboðs­mann barna vita af ástand­inu á heim­il­inu árið 2001. Hún segir sárt að hugsa til þess að málið hafi ekki verið rann­sakað ofan í kjöl­inn á þeim tíma og vill að það verði stofnuð rann­sókn­ar­nefnd sem fer yfir ung­linga­heim­ili sem voru starf­rækt eftir árið 1996.

Óttastjórnunin var verst
Gígja Skúla­dóttir Gígja Skúla­dóttir seg­ist hafa ákveðið að stíga fram og segja frá ofbeldi sem við­gekkst á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti, síðar Lauga­landi fyrir þær konur sem voru með henni þar og séu enn mikið veikar. ,,Mér finnst að þær sem ekki hafa náð bata eigi skilið að ég segi mína sögu." Mynd: Heiða Helgadóttir

„Í störfum mínum í gegnum tíð­ina með ein­stak­lingum sem glíma við þungan vímu­efna­vanda, hef ég stundum hitt konur sem voru á sama tíma og ég í Varp­holti og Lauga­landi. Þær voru og eru enn mjög mikið veikar. Mér finnst að þær sem ekki hafa náð bata eigi skilið að ég segi mína sögu. Vegna þeirra ákvað ég að stíga fram og segja frá ofbeld­inu sem við vorum beittar á með­ferð­ar­heim­il­inu.“

Þetta segir Gígja Skúla­dóttir sem er 36 ára hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem starfar í sam­fé­lags­geðteymi geðsviðs Land­spít­al­ans. Gígja var 14 ára þegar hún var send á með­ferð­ar­heim­ilið Varpholt. „Það var í jan­úar árið 1999. Ég hafði verið á Stuðlum þar sem mér leið vel. Það var auð­vitað stofnun en þar var þrepa­kerfi AA og engin ógn. Bara heil­brigt með­ferð­ar­starf,“ segir Gígja.

Hún segir að ofbeldið hafi byrjað dag­inn sem hún kom …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár