Bubbi skrifaði sig frá sjálfsvígshugsununum

Þrátt fyrir að líf Bubba Morthens hafi verið rús­sí­ban­areið með áföllum, mis­tökum og ótal vondum hlutum sér hann ekki eftir neinu. Fengi hann tæki­færi til að end­ur­lifa líf sitt myndi hann vilja að það yrði nákvæm­lega eins. Orðin og mús­íkin urðu hans höf­uð­lausn og hans bjarg­ráð á úrslita­stundum í líf­inu.

Bubbi skrifaði sig frá sjálfsvígshugsununum
Innri ró og ham­ingju það sem er eft­ir­sókn­ar­verð­ast „Stóra spurn­ingin er alltaf hvað sé eft­ir­sókn­ar­verð­ast í líf­inu? Jú, innri ró og ham­ingja. Það eina sem getur gert þig ham­ingju­saman er að vera algjör­lega frjáls í eigin skinni, og til þess þarf mikla vinnu,“ segir Bubbi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það hefur verið ákveðið end­ur­lit í gangi hjá Bubba Morthens síð­ustu miss­eri. Þess verður vart í skrifum hans á sam­fé­lags­miðlum, með sýn­ing­unni Níu líf sem sett var upp í Borg­ar­leik­hús­inu áður en Covid-far­ald­ur­inn skall á og á að hefja sýn­ingar á nýjan leik í jan­úar, og síð­ast með nýjum mynd­list­ar­verkum hans þar sem gömul texta­brot frá ýmsum tímum fá að njóta sín. Endurlit kallar á skoðun á líf­inu, á því hver við erum, hvaða slóð við höfum fetað og hvernig okkur líður í dag með allt það í fartesk­inu sem lífið hefur fært okkur.

Þrátt fyrir að lífið hafi hent ýmsu í Bubba, góðu og vondu, seg­ist hann ekki sjá eftir neinu. „Mér líður fyrst og fremst eins og ég sé lif­andi. Við fáum alltaf öðru hvoru öldur til að sörfa, lista­menn, ástin, lífið allt. Eins og þegar ég kom fram á sjón­ar­sviðið þá fann ég mér öldu, risa­stóra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár