Alvarlegt að ekki sé vitað hvar íslenskt plast endar

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra svarar fyrir mis­bresti í end­ur­vinnslu plasts og glers á Íslandi. Hann kallar eftir ítar­legri skoðun á end­ur­nýt­ingu og end­ur­vinnslu plasts í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar sem sýnir ágalla á töl­fræði um end­ur­vinnslu og vill­andi upp­lýs­ingar um afdrif plasts. „Ég tel að það þurfi umbylt­ingu í úrgangs­málum á Íslandi,“ segir hann.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson Umhverfisráðherra vill gera byltingu í úrgangsmálum, en ráðuneytið hefur ekki staðið við hækkun skilagjalds á drykkjarumbúðum.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra hefur óskað eftir fundi með for­manni og fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs, til þess að ræða afdrif íslensks plasts, end­ur­vinnslu og önnur mál­efni sjóðs­ins, í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar. Þá hefur hann ákveðið að end­ur­skoða sér­samn­ing við sjáv­ar­út­veg­inn sem veitir und­an­þágur frá kröfum um end­ur­vinnslu.

Hvað verður um allt plastið?

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar var fjallað um að íslensk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki senda mikið magn af plasti til sænska fyr­ir­tæk­is­ins Swerec. Það fyr­ir­tæki hefur verið undir rann­sókn hjá lög­reglu­emb­ættum í þremur ríkjum ásamt því að tengj­ast einu stærsta umhverf­isslysi í sögu Lett­lands þegar yfir 23 þús­und tonn af plasti brunni á ólög­mætu geymslu­svæði. Þá þurfti fyr­ir­tækið einnig að greiða háar skaða­bætur vegna eins stærsta svindls í sögu end­ur­vinnslu í Svíþjóð, en fyr­ir­tækið sagð­ist vera að end­ur­vinna allt að 80% af öllu plasti sem það fékk til sín. Raunin var hins vegar allt önnur og kom í ljós eftir rann­sókn norska skila­kerf­is­ins, að ein­göngu um 20% af plasti sem fyr­ir­tækið tók við var end­ur­unnið. Hitt var sent til brennslu, meðal ann­ars í sem­ents­verk­smiðju. Fyr­ir­tækið sendi einnig plast frá íslenskum neyt­endum á geymslu­svæði í Svíþjóð þar sem það er búið að standa í yfir þrjú ár og verður það plast aldrei end­ur­unnið.

Alvarlegt að vita ekki

Blaða­maður Stund­ar­innar hitti Guðmund Inga Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra til að ræða við hann um stöð­una um end­ur­vinnslu á Íslandi. Aðspurður um fyrstu við­brögð vegna umfjöll­unar Stund­ar­innar segir Guð­mundur að það sé mjög alvar­legt að ekki sé vitað nákvæm­lega hvað verður um það plast sem sent er frá Íslandi. 

„Mín við­brögð eru þau að í fyrsta lagi þá finnst mér alvar­leg­ast að við vitum ekki nákvæm­lega hvað verður um úrgang­inn sem við flytjum úr landi. Það finnst mér alvar­legt og það er eitt­hvað sem ég hef tekið upp í ráðu­neyt­inu að við þurfum að skoða betur. Ábyrgðin er Úrvinnslu­sjóðs að koma þessum hlutum til end­ur­vinnslu eða þeirrar með­höndl­unar sem við á. Þess vegna þarf að mínu mati að skoða hvort það sé eitt­hvað í lagaum­hverf­inu sem þarf að laga til þess að hægt sé að gera þetta, eða er þetta eitt­hvað sem að nú í dag, eða nú þegar á að liggja ljóst fyrir. En það er alveg ljóst að það þarf að fara fram ein­hvers konar könnun á því í hverju og einu til­felli, hvert hann er að fara.“

Nú sér Umhverf­is­stofnun um eft­ir­lit með öllum útflutn­ingi á úrgangi. Samkvæmt þeim geta þeir ekki í raun haft eft­ir­lit með honum þar sem þeir fá ekki papp­írana til sín fyrr en búið er að flytja úrgang­inn úr landi. Er það ekki ákveðið vanda­mál?

„Kannski bæði, hvað er verið að flytja út og ekki síður hvar endar það? Miðað við þá rann­sókn­ar­vinnu sem Stundin hefur lagt í varð­andi þessar leiðir í Svíþjóð sér­stak­lega að þar erum við að sjá að ef þetta allt saman er rétt, sem ég er ekk­ert að efast um, að þá í raun­inni er of lítið af plasti að fara til end­ur­vinnslu. Í ljósi þess þarf líka að skoða, eins og maður hefur séð að hafi verið gert í Noregi og Svíþjóð, hvaða áhrif þetta er að hafa á þær tölur og töl­fræði sem við höfum verið að vinna með. Það er vinna sem er í gangi núna hjá Umhverf­is­stofnun, að skoða þetta. Þannig að við viljum bara gera vel. Það er alla­vega mark­mið mitt og það sem ég hef lagt ríka áherslu á og hef verið að vinna að und­an­farin tvö ár, að end­ur­skoða úrgangs­lög­gjöf­ina og úrgangs­málin út frá því að við séum að horfa til þess að við séum að inn­leiða hringrás­ar­hag­kerfi sem er rauði þráð­ur­inn í þeirri stefnu sem ég hef lagt á áherslu á.“

Tölfræðin án stoðar

Talandi um töl­fræð­ina. Nú sýnir hún að við séum að end­ur­vinna ansi mikið af plasti. Þetta eru meðal ann­ars tölur sem koma frá Úrvinnslu­sjóði, þar segir að við séum að end­ur­vinna allt að 56% af plasti. Ég tal­aði við Umhverf­is­stofnun og þeir segja að þessar tölur eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Telur þú að almenn­ingur geti treyst því að töl­fræðin sé rétt varð­andi hvernig okkur gengur þegar kemur að end­ur­vinnslu?

„Traust þeirra er það allra mik­il­væg­asta sem þarf að vera uppi í svona málum og við höfum alveg gömul dæmi um það að fólki fannst traustið brotið, traustið var brotið. Þess vegna segi ég að það er lyk­il­at­riði að vita hvert sá úrgangur fer sem fluttur er úr landi. Þannig að mínu viti þurfum við að koma þessum málum á þann stað að við getum svarað þess­ari spurn­ingu. Ég get ekki svarað henni í dag hvort þetta sé rétt eða rangt. Það er sú vinna sem er í gangi núna. Ég tel hana mjög mik­il­væga því þetta er lyk­il­at­riði upp á það að halda trausti eða þá að end­ur­heimta það og ávinna sér það áfram. Þess vegna er þetta eitt af þeim málum sem við nátt­úr­lega að sjálf­sögðu erum að skoða.“

Í sam­tali mínu við Ólaf Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs, segir hann að hans eigin tölur stemmi ekki og ein­hver villa hljóti að vera þarna. Ef Úrvinnslu­sjóður er að senda frá sér í mörg ár vit­lausar tölur til Umhverf­is­stofn­unar, hvað telur þú eig­in­lega að sé í gangi inni í Úrvinnslu­sjóði? 

„Eins og ég segi, ég lít bara á þetta alvar­legum augum og þetta virð­ist vera mat Ólafs að svona sé og auð­vitað hef ég óskað eftir fundi með for­manni og fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs til að ræða þessi mál og mál­efni Úrvinnslu­sjóðs almennt. Ég get svo sem ekki úttalað mig um það núna nákvæm­lega hvernig við getum leyst þetta, það þarf bara að leysa þetta mál. Það er þar sem ég hef það að mark­miði að við ætlum að ná úrgangs­mál­unum á þann stað að þau séu okkur Íslend­ingum til sóma. Ég tel að það þurfi umbylt­ingu í úrgangs­málum á Íslandi, það er sú umbylt­ing sem ég hef verið að vinna að á síð­ustu tveimur árum. Sumt af því er maður að koma til fram­kvæmdar, en annað er núna von­andi að fara fyrir þingið í jan­úar eða febr­úar.“

Meirihluti stjórnar Úrvinnslusjóðs skipuð af atvinnulífinu

Í stjórn Úrvinnslu­sjóðs sitja sjö full­trúar, fjórir af þessum full­trúum koma frá atvinnu­líf­inu en ein­göngu þrír frá hinu opin­bera. Það þýðir að allar til­lögur frá full­trúum hins opin­bera, sem teknar eru innan sjóðs­ins, þurfa að vera sam­þykktar af full­trúum atvinnu­lífs­ins. Sem dæmi um ákvarð­anir er verð­skrá sjóðs­ins, en sú verð­skrá ákvarðar hversu mikið fyr­ir­tæki þurfa að borga í úrvinnslu­gjald. Loka­á­kvörðun um verð­skrána er tekin af fjár­mála­ráð­herra, en aldrei í sögu sjóðs­ins hefur ráð­herra farið gegn ákvörðun stjórn sjóðs­ins um hversu mikil gjöldin skulu vera. Aðspurður hvort það sé skyn­sam­legt að atvinnu­lífið sé með meiri­hluta stjórn­ar­manna í sjóðnum segir Guð­mundur að það megi alveg gagn­rýna þetta fyr­ir­komu­lag. 

„Við getum alveg rætt það hvorum megin meiri­hlut­inn á að liggja“

„Þetta er nátt­úr­lega sam­spil af því hvað er kveðið á í um lögum, það er að segja á hvaða vörur gjald á að fara og svo fram­vegis. Ég tel að fram­leið­anda­á­byrgðin sé gríð­ar­lega mik­il­væg. Því ábyrgðin á ekki bara að vera á neyt­endum. Það tel ég mjög mik­il­vægt. Þess vegna er það í raun­inni sú lög­gjöf sem við höfum sett okkur sem setur ábyrgð­ina á inn­flytj­endur og fram­leið­endur á vörum, ekki bara plasti heldur ýmsu öðru. Ég tel hana mjög mik­il­væga. Fyr­ir­komu­lagið er þannig að fjórir af sjö full­trúum eru úr atvinnu­líf­inu, eða frá inn­flytj­endum, og þrír af hendi hins opin­bera. Það má alveg gagn­rýna það fyr­ir­komu­lag, það er alls ekki hafið yfir gagn­rýni. En ég tel hins vegar mik­il­vægt að full­trúar þess­ara aðila séu samt sem áður inni í stjórn sjóðs­ins, vegna þess að ábyrgðin er þeirra á þessum málum. En við getum alveg rætt það hvorum megin meiri­hlut­inn á að liggja og þá líka ef við skoðum þá þætti hvaða árangri Úrvinnslu­sjóður hefur náð, ef við förum bara í gegnum það. Hann hefur náð árangri á sumum sviðum, kannski minni árangri á öðrum. Þá finnst mér að það þurfi bara að fara yfir það, ef það leiðir til þess að þetta sé ekki talið heppi­legt fyr­ir­komu­lag þá þarf að ræða það.“

Ætlar að endurskoða sérsamning sjávarútvegsins

Einn af stjórn­ar­mönnum Úrvinnslu­sjóðs er frá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Í stað þess að sjáv­ar­út­veg­ur­inn borgi úrvinnslu­gjald af veið­ar­færum úr plasti, gerðu sam­tökin sér­samn­ing við sjóð­inn um að sam­tökin sjálf muni bera ábyrgð á veið­ar­færum úr plasti. Sá samn­ingur var gerður árið 2005 og hefur ekk­ert breyst síðan þar sem SFS getur ein­göngu sagt honum upp. Guð­mundur segir að hann skilji ekki samn­inga sem séu óupp­segj­an­legir. 

„Ég vil bara taka það skýrt fram að þetta með veið­ar­færin er nátt­úr­lega eitt­hvað sem við erum að skoða núna í end­ur­skoðun á lög­gjöf­inni, alveg klár­lega. Það er hrein­lega kveðið á um það líka í Evr­óputil­skipun að veið­ar­færi sem eru með plasti í, að þau þurfi að falla undir þetta og að það þurfi þá nátt­úr­lega að koma gjald á það. Ég myndi svara þess­ari spurn­ingu þannig að ég er að sjálf­sögðu að skoða þessi mál er varða gjald­tök­una. Að mínu viti þá skil ég ekki samn­inga sem eru óupp­segj­an­legir, eins og er í ykkar ágætu umfjöllun í Stund­inni, þetta er bara eitt af þeim atriðum sem ég mun krefja Úrvinnslu­sjóð svara um. Því að mínu viti þá snýst þetta fyr­ir­komu­lag sem við erum með í dag um það að setja gjöld til þess að búa til hvata til þess að end­ur­vinna. Ef að það er ekki til­fellið í ein­hverjum þáttum, þá er það eitt­hvað sem þarf að skoða sér­stak­lega.“

Segja meðlimum að urða veiðarfæri úr plasti

Á heima­síðu SFS eru leið­bein­ingar til fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hvernig eigi að flokka veið­ar­færa­úr­gang. Þar beinir SFS því til sinna fyr­ir­tækja að urða hluta af veið­ar­færum úr plasti. Blaða­maður sýndi umhverf­is­ráð­herra þessar leið­bein­ingar og spurði hann hvort hann teldi að þarna væri SFS að brjóta samn­ing­inn. Sagði ráð­herra að hann hafi ekki séð samn­ing­inn og ætti því erfitt með að tjá sig um það. 

„Ég hef ekki séð samn­ing­inn sjálfur, það er því erfitt að segja það hér einn, tveir og þrír. En ef það er brot á þessum samn­ingi þá er það eitt­hvað sem þarf að skoða og gengur ekki upp. Því að við hljótum öll, bæði atvinnu­lífið og stjórn­völd, að ná árangri þegar kemur að þessum málum líkt og öðrum. Ég þekki þetta nú bara ágæt­lega frá því að maður var að vinna við það að, í sjálf­boða­vinnu, að tína upp rusl við strandir lands­ins, sem ég gerði tals­vert af og geri nú öðru hvoru. Eitt af því sem hefur verið bætt úr eru merk­ingar á veið­ar­færum, sem er jákvætt. En ég held að næsta skref sé klár­lega að þetta komi inn í fram­leið­enda­á­byrgð­ina með þeim hætti að við séum að setja gjöld þar á. Þannið að það er mín skoðun.“

Markmiðum um pappír náð

Telur þú að atvinnu­lífið sé hæft til að stýra aðgerðum til að ná þeim mark­miðum sem við höfum skuld­bundið okkur að ná sam­kvæmt lögum, miðað við umfjöllun okkar hér á Stund­inni?

„Ég vil fyrst segja það að Úrvinnslu­sjóður er að upp­fylla mark­miðin í sumum af þeim vöru­flokkum sem þeir bera ábyrgð á. Þar má nefna pappír og pappa, þar sem við erum reyndar búin að ná mark­miðum fyrir 2030, eins og það hefur verið sett, sem er bara mjög jákvætt. Úrsér­gengin öku­tæki er annað dæmi. Við getum horft síðaná  plastið sem er það sem við erum mest að ræða hér. Þar eru nátt­úr­lega drykkj­ar­vör­urnar, við stöndum okkur ágæt­lega þar. Þær eru undir End­ur­vinnsl­unni hf. En við eigum erfitt með að svara spurn­ing­unni varð­andi plastið. Við höfum verið yfir með­al­tal­inu eins og gögnin hafa verið að sýna okkur.“

En eins og Umhverf­is­stofnun segir þá eiga þessar tölur sér enga stoð í raun­veru­leik­anum?

„Þess vegna er ég að segja það, við eigum í vand­ræðum með að geta svarað þeirri spurn­ingu akkúrat núna. Það er þar sem við þurfum að taka okkur á og það er Úrvinnslu­sjóður, það er líka umhverf­is­ráðu­neytið og líka Umhverf­is­stofnun. Þær breyt­ingar sem ég er að reyna að vinna að núna varð­andi end­ur­bætur á lög­gjöf­inni vil ég meina að muni styrkja þetta. Það þarf að ríkja traust á milli hins opin­bera og full­trúa atvinnu­lífs­ins inni í stjórn­inni. For­mað­ur­inn er skip­aður af umhverf­is­ráð­herra og það er mjög mik­il­vægt. Ef við sjáum fram á það að það sé pottur brot­inn, þá þarf bara að skoða þau mál. En ég get ekki sagt til um það akkúrat núna. Ég vil fyrst fá tæki­færi til að hitta for­mann stjórnar og fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs og ræða þessi mál við þau.“

Lagaskyldu um hækkun skilagjalds ekki fylgt

End­ur­vinnslan ehf. er fyr­ir­tæki sem er í meiri­hluta­eigu fyr­ir­tækja sem nota lang­mest af plast­um­búðum á Íslandi. Meiri­hluta­eig­endur eru meðal ann­ars Coca-Cola European Partners á Íslandi, Ölgerðin, Elkem á Íslandi og Rio Tinto Iceland. Minni­hluta­eig­endur eru meðal ann­ars íslenska ríkið og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga. Eins og í Úrvinnslu­sjóði er hið opin­bera með minni­hluta í stjórn og getur ekki tekið neinar ákvarð­anir þegar kemur að öllum drykkj­ar­um­búðum á land­inu, án stuðn­ings ein­hverra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. 

Samkvæmt lögum um ráð­staf­anir gegn umhverf­is­mengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkj­ar­vörur er skila­gjald ákvarðað. Það er á ábyrgð umhverf­is­ráð­herra að hækka skila­gjald á flöskum og dósum í sam­ræmi við breyt­ingar á vísi­tölu neyslu­verðs frá síð­ustu hækkun skila­gjalds­ins. Síðasta hækkun átti sér stað þann 1. jan­úar 2015. Frá þeim tíma hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 16,15% og ættu því neyt­endur í raun að fá 18,5 krónur á hverja dós sem skilað er en ekki 16 krónur. Þegar litið er á krón­umun­inn þá virð­ist hann ekki mik­ill. Hins vegar þegar litið er á þær hund­ruð millj­óna umbúða sem fram­leiddar eru hér á landi eða fluttar inn til lands­ins, þá er aug­ljóst að fram­leið­endur og inn­flytj­endur á drykkj­ar­vörum eru búnir að spara sér mörg hund­ruð millj­óna króna við það eitt að ráð­herra sé ekki búinn að hækka skila­gjald á umbúðum til neyt­enda, eins og lög kveða á um. Umhverf­is­ráð­herra hefur nú lagt fram frum­varp þess efnis að hækka skila­gjald á umbúðum, um sex árum eftir að síð­asta laga­breyt­ing átti sér stað. Guð­mundur seg­ist ekki geta útskýrt þennan seina­gang innan ráðu­neyt­is­ins.

„Ég er ekki ánægður með það að við séum í 0% end­ur­vinnslu á gleri þegar við eigum að vera í 60%“

„Þetta er um 18,5 krónur sem við­miðið er. Ég er búinn að fara í gegnum þetta með mínu fólki hér í umhverf­is­ráðu­neyt­inu og hækk­unin verður hærri en gert er ráð fyrir í frum­varp­inu sem fór í sam­ráðs­gátt­ina. Þar komu meðal ann­ars fram athuga­semdir akkúrat við þetta atriði. Þarna komum við líka að gler­inu sem þið hafið verið að fjalla um í Stund­inni. Þar mun ég leggja til í þessu frum­varpi að við hækkum umsýslu­gjaldið með þeim hætti að End­ur­vinnsl­unni verði gert kleift að taka gler til end­ur­vinnslu. Ég er ekki ánægður með það að við séum í 0% end­ur­vinnslu á gleri þegar við eigum að vera í 60%. Ég hef því lagt áherslu á það að við lögum þetta núna í þeim und­ir­bún­ingi sem hefur átt sér stað. Bæði breyt­ingar á úrgangs­lög­gjöf­inni um úrgang, úrvinnslu­gjaldið og lög­gjöf­ina um drykkj­ar­vör­unar. Það er bara þannig að ég mun fara hærra með þetta gjald, þannig að við getum sett inn þá hvata sem þurfa að vera til þess að við stöndum okkur vel í þessu. Þarna er nátt­úr­lega glerið sem æpir á mann. Það hefur verið notað til end­ur­nýt­ingar, því hefur verið safnað saman í slíkt.“

Meðal ann­ars í rottu­fælni á rusla­haugum sem umhverf­is­stofnun Noregs og Sví­þjóðar töldu hæpið að gæti flokk­ast sem end­ur­nýt­ing.

„Maður rifjar upp frá æsku sinni þegar maður var að skila inn gler­inu. Maður vissi að það yrði þvegið, hreinsað og notað aftur. Þessu var hætt fyrir um tíu árum eða svo. Ég geri mér fylli­lega grein fyrir því að þarna erum við ekki að upp­fylla þær kröfur sem settar hafa verið fram til okkar. En ég ætla líka að bæta það.“

Þannig að þú ætlar að hækka skil­gjaldið á dósum sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs?

„Ég á von á því að skila­gjaldið fari upp í 18 krónur. Við erum enn þá að skoða þetta aðeins betur. Það er ekki talið æski­legt að maður sé með komma 5. Þannig að við þurfum að finna ein­hverja leið til þess að vera alla­vega sem næst því.“

Ég ræddi við fram­kvæmda­stjóra End­ur­vinnsl­unnar og hann tjáði mér að það hafi verið komið sam­komu­lag á milli ráðu­neyt­is­ins og End­ur­vinnsl­unnar að hækka bara um 1 krónu, eða í 17 krónur, þrátt fyrir að lögin væru skýr að það ætti alla­vega að hækka upp í 18 krónur.

„Ég kann­ast ekki við neitt sam­komu­lag. Þegar laga­smíði er í gangi er sam­ráð við aðila, en það er ekki gert sam­komu­lag, ég get ekki gert sam­komu­lag við aðila eins og End­ur­vinnsl­una um hvernig fyr­ir­komu­lagið á að vera. Ég legg fram frum­varp á Alþingi, það er síðan Alþingis að ákveða það end­an­lega með hvaða hætti það er.“

Í lög­unum um skila­gjald á flöskum stendur það bara skýrt að það eigi að hækka skila­gjaldið sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs. Var ein­hver önnur ástæða fyrir því að í drög­unum er sagt 17 krónur?

„Þegar frum­varpið kemur í mínar hendur, áður en það fer í sam­ráðs­gátt­ina, þá sagði ég: Látum þetta fara í sam­ráðs­gátt­ina, en ég vil skoða betur það sem snýr að þessum upp­hæðum. Þegar það kemur til baka úr sam­ráðs­gátt­inni, þá tek ég þá ákvörðun að við hækkum þetta, það er það sem skiptir máli vegna þess að ég vil ná árangri í umhverf­is­málum.“

En þá líka tíma­setn­ingin. Nú er árið 2020. Síðasta hækkun var 2015, vísi­tala neyslu­verðs hefur hækkað á þessum árum. Það ætti að vera löngu búið að setja þessa hækkun. Samkvæmt mínum útreikn­ingum þá er í raun og veru þeir, sem eru að skila dósum, búnir að tapað mörg hund­ruð millj­ónum króna vegna þessa. Hvernig útskýrir þú þennan seina­gang innan ráðu­neyt­is­ins að hafa ekki hækkað gjaldið?

„Við ætl­uðum að fara fram með þetta í fyrra, en það tafð­ist.“

„Við ætl­uðum að fara fram með þetta í fyrra, en það tafð­ist. Núna er farið fram með þetta, þannig það er í raun­inni svarið sem ég hef. Því miður þá bara tafð­ist það. Ég ætl­aði að fara fram með þetta í fyrra en það kemur núna.“

Þrátt fyrir að þetta hafi bara verið ein tala sem þurfti að breyta í lög­unum?

„Já, ég bara hef ekki frek­ari útskýr­ingar á því. En núna er þetta að koma og ég er bara mjög ánægður með það.“

Ekkert gler endurunnið á Íslandi í yfir 30 ár þrátt fyrir loforð

Í yfir 30 ár hefur ekk­ert gler verið end­ur­unnið á Íslandi, þrátt fyrir að mark­mið Íslands sé að end­ur­vinna gler. Árið 2012 sagði umhverf­is­ráðu­neytið, þá undir stjórn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, að frum­varp þess efnis að end­ur­vinnsla á gleri myndi hefj­ast á Íslandi yrði lagt fram það ár. Það frum­varp var aldrei lagt fram. Blaða­maður spurði því Guðmund hvort almenn­ingur geti treyst orðum hans um að nú, eftir 30 ára bið, muni koma fram frum­varp þess efnis að end­ur­vinnsla á gleri muni hefj­ast. 

„Ég mun leggja slíkt frum­varp fram á Alþingi, já. Það er að segja frum­varp sem gerir End­ur­vinnsl­unni hf. kleift að ráð­ast í það. Að hún muni hafa nægi­lega mikið í umsýslu­gjald til þess að geta ráð­ist í það. Þannig að þess vegna, ef að frum­varpið verður sam­þykkt á Alþingi, þá ætti það að ganga eftir.“

Lítill hvati til endurvinnslu

Í verð­skrá Úrvinnslu­sjóðs er lít­ill sem eng­inn hvati fyrir að úrgangur sé end­urunn­inn á Íslandi, hvað þá plast. Á Íslandi er eitt fyr­ir­tæki sem end­ur­vinnur plast, það er Pure North Recycling í Hvera­gerði. Aðspurður hvers vegna Ísland end­ur­vinni lítið sem ekk­ert af sínum eigin úrgangi segir ráð­herra að áhersla hans sé að það eigi að end­ur­vinna eins mikið og hægt sé á Íslandi.

„Þetta er bara svo miklu skyn­sam­legra að öllu leyti.“

„Mín áhersla er sú að við eigum að end­ur­vinna eins mikið hér heima eins og við getum. Ég hef fullan skiln­ing á því að við getum ekki end­ur­unnið allt hér heima eins og staðan er núna. Það er bein­línis þannig í Evr­óputil­skipun að það er mælst til þess að það sé end­ur­unnið næst þeim stað þar sem úrgang­ur­inn verður til. Ég er að vinna eftir því og þær laga­breyt­ingar sem við erum með í gangi, eða í und­ir­bún­ingi, að þar erum við akkúrat að skoða þessi atriði. Hvernig hægt er að hafa hvatana í kerf­inu þannig að við gerum þetta með þessum hætti. Því þetta er bæði atvinnu­skap­andi, þetta býr til það sem við getum kallað græn störf. Þetta er bara svo miklu skyn­sam­legra að öllu leyti. Ég hef líka átt fund með Pure North Recycling í Hvera­gerði, ég mun óska eftir sam­tali við Úrvinnslu­sjóð til að skilja betur þeirra hlið á mál­inu, en sá fundur hefur ekki enn þá farið fram. Mér skilst að það hafi verið ein­hverjar hækk­anir gerðar núna ekki fyrir svo löngu síðan hjá Úrvinnslu­sjóði, sem hafi ekki nýst Pure North Recycling. Þetta snýst líka um hversu mikið er borgað fyrir til dæmis heyrúlluplastið, eftir því hvar þú ert á land­inu, og svo fram­vegis. Þetta eru bara atriði sem ég þarf að fá nán­ari skýr­ingar á hjá Úrvinnslu­sjóði, því ég er á þeirri skoðun að við eigum að reyna nýta okkur þá hvata í kerf­inu til þess að stuðla frekar að end­ur­vinnslu hérna heima.“

Þú segir að Úrvinnslu­sjóður eigi að skapa hvata, fjár­hags­legan hvata, til end­ur­vinnslu. Af hverju, eftir 15 ára sögu Úrvinnslu­sjóðs, telur þú að þessir hvatar séu ekki til staðar? Að við séum að reyna að end­ur­vinna plast hér á Íslandi?

„Þú verður að spyrja Úrvinnslu­sjóð að því. Það er sama spurn­ing og ég hef fyrir þau. En við skulum bara spyrja að því hvort við getum ekki lagað það kerfi, því ég tel það mjög mik­il­vægt. Úrvinnslu­fyr­ir­tæki á Íslandi hafa alveg verið nokkur í gegnum tíð­ina, hafa svo­lítið komið og farið. En bara með til­liti til hringrás­ar­hag­kerf­is­ins og inn­leið­ingu þess, þá er þetta bara atriði sem ég legg áherslu á.“

Telur þú að plast, sem er erfitt að end­ur­vinna, eigi heima í hringrás­ar­hag­kerf­inu, þar sem mikið af því fer í brennslu?

„Hringrás­ar­hag­kerfið gengur nátt­úr­lega ekki síst út á það að draga úr notkun. Það er alveg lyk­il­at­riði þar. Við eigum stefnu frá 2016 sem var sett í tíð hennar Sigrúnar Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra, sem heitir „saman gegn sóun“, sem kveður á um með hvaða hætti eigi að draga úr myndun úrgangs. Það eru áherslu­at­riði á tveggja ára fresti. Það sem ég hef gert varð­andi stefn­una saman gegn sóun, er að taka þessa þætti sem hafa verið til áherslu, það er mat­ar­sóun, það er plast og núna er fyrsta árið í textíl. Það dýpkar í raun­inni umfjöll­un­ina um það hvernig við tök­umst á við þessa þætti þegar kemur að því að draga úr, auka end­ur­vinnslu og svo fram­vegis. Ég hef sett fram plast­að­gerð­ar­á­ætlun, sem er fjár­mögnuð. Mat­ar­só­un­ar­á­ætlun sem er á loka­stigum, búin að fara í sam­ráð. Hún verður líka fjár­mögnuð. Aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum er líka fjár­mögnuð. Það sem ég er að reyna að segja er að þær áætl­anir sem eru settar í minni tíð að þeim fylgi fjár­magn og alvara. Það er nátt­úr­lega stór hluti af hringrás­ar­hag­kerf­inu að reyna að draga úr myndun úrgangs, alveg lyk­il­at­riði. Að því leyt­inu til fellur plast þar undir, að sjálf­sögðu, líkt og önnur vara. Ég hef líka tekið skref í þá átt að draga úr notkun einnota plasts á Íslandi, með því að fá sam­þykkt lög á þingi. Bæði til þess að banna burð­ar­plast­poka og mark­aðs­setn­ingu á ýmissi einnota vöru. Þetta er eitt­hvað sem verið er að gera ann­ars staðar í Evr­ópu­sam­band­inu. Ég er algjör­lega þeirrar skoð­unar að við þurfum að skoða miklu fleiri þætti einnota plasts en þarna er komið. En ein­hvers staðar verður maður að byrja og þetta eru skref sem tekin hafa verið í þessa átt. Ég tel að það sé betra að plastið sé hluti af hringrás­ar­hag­kerf­inu heldur en að það verði utan þess, en það er kannski ekki spurn­ingin þín. Við þurfum að draga úr myndun þess og við þurfum að passa upp á það að sem allra mest af plast­inu, sem verður að úrgangi, fari þá í réttar leiðir. Sér­stak­lega end­ur­vinnslu, en svo er nátt­úr­lega plast mis­gott til end­ur­vinnslu eins og við þekkjum.“

Talandi um að fara rétta leið. Nú hafa íslensk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki sent ítrekað plast á fyr­ir­tæki sem heitir Swerec. Það hefur verið undir lög­reglu­rann­sókn í þremur ríkjum. Það hefur fund­ist íslenskt plast í sænskum sveitum og er tengt einu stærsta umhverf­isslysi í sögu Lett­lands. Fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs vissi af því að þeir hefðu tekið þátt í einu stærsta end­ur­vinnslu­svindli í sögu Sví­þjóðar, en Úrvinnslu­sjóður leyfir íslenskum fyr­ir­tækjum samt áfram að senda plast á þá. Hvað finnst þér um að íslensk fyr­ir­tæki séu að senda plast á þetta fyr­ir­tæki?

„Ég mundi viljat að við tækjum ekki þátt í svona lög­uðu. Ég las í þinni ágætu umfjöllun í Stund­inni að það var leið sem bæði Svíar og Norðmenn fóru. Norðmenn fóru meira að segja þá leið að athuga með þá aftur, hvort þetta hafi orðið betra, en voru ekki ánægðir. Þetta er að sjálf­sögðu eitt­hvað sem ég mun taka upp, það er alveg á hreinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár