Aðeins börn fædd 2015 og síðar undanþegin fjöldatakmörkunum

Sam­komu­tak­mark­anir fara úr 20 manns niður í 10. Íþrótta­starf verður lagt niður og grímu­skylda aukin. „Við verðum núna að bíta á jaxl­inn og snúa vörn í sókn,“ segir heil­brigð­is­ráð­herra. Sjá má upp­töku af kynn­ing­ar­fundi rík­is­stjórn­ar­innar um hertar aðgerðir vegna Covid-19 í frétt­inni.

Aðeins börn fædd 2015 og síðar verða und­an­skilin grímu­skyldu, fjölda­tak­mörk­unum og fjar­lægð­ar­mörkum. Fjölda­tak­mark­anir verða færðar úr 20 manns og niður í 10, grímu­skylda verður aukin, áfram verða tveggja metra fjar­lægð­ar­tak­mar­anir í gildi og íþrótta­starf mun leggj­ast af. Þá verða sviðs­listir óheim­ilar. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar um hertar aðgerðir vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins nú fyrir skemmstu. Hertar aðgerðir taka gildi á morgun, laug­ar­dag­inn 31. októ­ber.

Í mat­vöru­versl­unum og apó­tekum munu gilda rýmri fjölda­tak­mark­anir, 50 manns, umræddur 10 manna fjöldi gildir hins vegar í öðrum versl­unum. Krár og skemmti­staðir verða áfram lokuð, veit­inga­húsum skal loka klukkan 21:00 á kvöldin.  Aðgerð­irnar munu gilda um allt land. 

„Þetta er besti kost­ur­inn í erf­iðri og flók­inni stöðu. Það er ekki tími til að bíða og sjá til og vona það besta,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Það væri von hennar að með aðgerð­unum yrði hægt að ná tökum á far­aldr­inum á tveimur vikum. Undir það tóku aðrir fund­ar­menn og Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir einnig í við­tali eftir fund­inn. 

Í til­kynn­ingu um aðgerð­irnar kemur fram að fjölda­tak­mark­anir gildi ekki um störf rík­is­stjórn­ar­innar, rík­is­ráðs, Alþingis og dóm­stóla. Þá gilda fjölda­tak­mark­anir ekki um almenn­ingassam­göngur, hóp­ferða­bif­reiðar, inn­an­lands­flug eða störf við­bragðs­að­ila. 

Í einu til­felli var brugðið út frá til­lögu Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra. Sótt­varn­ar­læknir lagði til að fjölda­tak­mark­anir í útförum mið­uð­ust við 20 manns en heil­brigð­is­ráð­herra ákvað að miða skyldi við 30 manns. Þó verður miðað við 10 manna hámarks­fjölda í erfi­drykkjum. 

Þá greindi Katrín frá því að á fundi rík­is­stjórn­ar­innar hefði verið unnið að því að útfæra frek­ari efna­hags­legan stuðn­ing vegna afleið­inga far­ald­urs­ins og yrðu þær til­lögur kynntar síðar í dag. 

Spurð hvort rík­is­stjórnin sé að hvetja fólk til að halda sig heima svar­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra því til að regl­urnar væru skýrar en fólk væri hvatt til að njóta úti­veru og nátt­úr­unnar. Katrín hvatti börn til að halda sig heima við og fara ekki í nammi­leið­angra nú á hrekkja­vök­unni. Þá minnti hún á að aðventan væri fram undan og jólin. Vissu­lega væri það dimmasti tími árs­ins en síðan færi dag­inn að lengja og hún væri þess full­viss um að þær aðgerðir sem grípa ætti til núna yrðu til þess að hægt yrði að njóta aðvent­unnar og jól­anna. Svandís tók undir þetta með for­sæt­is­ráð­herra. „Ef við tökum á þessu af sam­stöðu og afli getum leyft okkur að hlakka til jóla, vissu­lega óhefð­bund­inna jóla.“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði að annað hefði ekki verið í stöð­unni. „Við stóðum frammi fyrir því að hafa regl­urnar óbreyttar, sem ekki var að virka, og hefði staðið í lengri tíma, eða fara í hertar aðgerðir til skemmri tíma.“ Hún þakk­aði jafn­framt lands­mönnum fyrir þol­gæði og hvernig það hefði tekið því hversu hert hefði verið að dag­legu lífi, það væri ekki sjálf­sagt. Sömu­leiðis minnti hún á að hlúð væri að börnum en dag­legt líf þeirra myndi verða fyrir veru­lega raski með aðgerð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár