Veiran nú meira smitandi - Aðgerðir verði hertar

Alma Möller land­lækn­ir og Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir ásamt Víði Reyn­is­syni yf­ir­lög­reglu­þjóni fóru yf­ir stöðu mála vegna Covid-19.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir greindi frá því á nýyf­ir­stöðnum upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna að sam­fé­lags­smit covid-19 væri enn að fær­ast í vöxt, þrátt fyrir að vonir hefðu staðið til að þeim fækk­aði. Stórar hóp­sýk­ingar tengdar Landa­kots­spít­ala og Öldusels­skóla hafa þar áhrif, en einnig er fjöldi smærri hóp­sýk­inga tengdur veislum, vina­hópum, fjöl­skyldum, íþrótta­iðkun og vinnu­stöðum. „Það er ákveðið áhyggju­efni,“ sagði Þórólfur. Um fimm­tíu klasar sýk­inga hafa greinst í sam­fé­lag­inu und­an­farið.

Hann mun leggja til að aðgerðir verði hertar, í tvær til þrjár vikur. Fyr­ir­liggj­andi er áætlun um til­slak­anir ef vel gengur. Hluti af lausn­inni er, að sögn Þórólfs, að „allir gæti vel að því að þeir mæti ekki veikir í vinn­una“ og „allir gæti vel að sínum ein­stak­lings­bundnu sýk­inga­vörnum og forð­ist hvers konar óþarfa hópa­myndun.“

Fólki er ráð­lagt að vera dug­legt að þrífa hand­rið, hand­föng og hurð­ar­húna í stiga­göngum. Sem og að sleppa því að hafa hend­urnar í and­lit­inu, svo veiran ber­ist ekki um munn, nef eða augu.

Meira smitandi

Alma Möller land­læknir sagði að svo virt­ist sem það afbrigði kór­óna­veirunnar, sem nú fer um sam­fé­lagið, sé meira smit­andi en fyrri afbrigði. „Það virð­ist sem að þetta afbrigði veirunnar, sem við erum að fást við núna, kunni að vera meira smit­andi en þau sem við höfum áður feng­ist við. Ég verð eig­in­lega að segja, hvernig mætti eig­in­lega annað vera miðað við hvernig við sjáum þróun far­ald­urs­ins. Og smit­stuð­ull­inn hefur verið hærri. Eins benda rað­grein­ing­ar­upp­lýs­ingar erlendis frá í þessa átt.“

Þá segir hún hins vegar að færri fari á gjör­gæslu og færri hafi lát­ist en í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vor. 

„Staðan á Land­spít­ala er gríð­ar­lega snúin og þar er mikið álag,“ sagði Alma.

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, gat ekki mætt á upp­lýs­inga­fund­inn. Alma hefur eftir Páli að starfið á covid-göngu­deildum og -legu­deildum gangi þó vel. „Staðan á Landa­koti er áfram þung en gengur betur. En þar er ótrú­lega krefj­andi staða. Það eru skila­boð og hvatn­ing til hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða um að lið­sinna Landa­koti. Það væri mjög vel þegið. Hvort heldur er í gegnum bak­varða­sveit eða hafa sam­band beint við Land­spít­ala í net­fangið monnunarteymi@landspitali.is,“ sagði Alma.

Samfélagssmit á uppleið

42 ein­stak­lingar greindust inn­an­lands í gær með Covid-19, þar af helm­ingur ekki í sótt­kví. Áhrif hefur að færri sýni voru tekin en und­an­farna daga, eða um tvö þús­und.

„Kúrva sam­fé­lags­smita er upp­á­við, sem er heldur óæski­leg þróun,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði hærra nýgengi sjúk­dóms­ins gæti skýrst af því að sam­fé­lagið hefði ekki hægt á sér með sama hætti og í fyrri bylgju far­ald­urs­ins. „En við sjáum líka hvað við höfum verið að gera. Við vorum með mis­vísandi skila­boð og þau draga auð­vitað úr trú­verð­ug­leika og rugla fólk.“ Hann sagði að breyt­ingar til­mæla síð­ustu 12 vikur hafi verið um 14 til 17 tals­ins, sem sé rugl­andi og hafi áhrif á þátt­töku fólks.

Víðir sagði að mark­miðin væru þrí­þætt, byggð á því sem dugði til að kveða niður fyrstu bylgj­una: „Það er í fyrsta lagi að verja heil­brigð­is­kerfið, það er í öðru lagi að tak­marka inn­flæði veirunnar við landa­mæri, og í þriðja lagi að hefta sam­fé­lags­leg smit, þannig að hægt sé að hafa sem opn­asta sam­fé­lagið með minnstu tak­mörk­unum.“

Hann sagði mark­miðin skýr og þau sömu og höfð hefðu verið allan tím­ann, en umræð­una fara um víðan völl. „Umræður um veiru­frítt sam­fé­lag eða að láta veiruna flæða hér um eru ekki frá okkur komin,“ sagði hann.

62 eru nú á spít­ala smit­aðir af covid-19, þar af tveir á gjör­gæslu og einn í önd­un­ar­vél. Einn ein­stak­lingur á níræð­is­aldri lést í gær á Land­spít­alnum í Fossvogi.

Nokkur stór hópsmit hafa orðið, sem hækka hlut­falls­lega fjölda fólks í við­kvæmum hópum með covid-smit.

Hópsýkingar víða

Und­an­farna daga hefur mátt rekja 140 til­felli til Landa­kots­smits­ins svo­kall­aða. Þar af eru um 90 til­felli á öldr­un­ar­lækn­inga­deild­inni á Landa­koti, sjö á Reykja­lundi og 24 á Sól­völlum. Auk þess eru 21 með óbein tengsl. „Það er kannski það sem við höfum haft tölu­verðar áhyggjur af, að þau smit fari að dreifast og kom­ast út í sam­fé­lagið,“ sagði Þórólfur.

44 til­felli hafa greinst tengt Öldusels­skóla, þar af flestir nem­endur, auk tengsla út fyrir skól­ann.

Auk þess­ara smita hafa litlar hóp­sýk­ingar greinst víða, sem tengj­ast fjöl­skyldum, veislum, vina­hópum, vinnu­stöðum og jafn­vel íþróttum. „Við erum áfram með litlar hóp­sýk­ingar víða og það vekur áhyggjur af því að við séum ekki að ná tökum á þessu sam­fé­lags­lega smiti,“ sagði Þórólfur.

Hann sagði mik­il­vægt að standa saman þar til „gott og öruggt bólu­efni kemur á mark­að­inn“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár