Mynd: BULENT KILIC / AFP

Frosið stríð í fjalllendi

Armenar og Aserar hafa und­ir­búið stríð við hvora aðra í ald­ar­fjórð­ung.

Það má segja að Kákasus­hér­aðið sé nokk­urs konar Balkanskagi Rúss­lands, óstýri­látt fjall­lendi sem er svo tor­sótt að nán­ast hver dalur hefur ræktað með sér eigin mál­lýsku. Og rétt eins og nokkur skot á Balkanskaga boð­uðu fall Aust­ur­ríska heims­veld­is­ins, þá voru það átök í Kákasus sem mörk­uðu upp­hafið að enda­lokum Sov­ét­ríkj­anna. 

Rússar komu fyrst til Kákasus undir lok 18. aldar. Kon­ungs­ríkið Georgía greip tæki­færið og mynd­aði við þá banda­lag gegn fjendum sínum Persum. En rúss­nesku her­menn­irnir voru kall­aðir heim og skildu vini sína eftir í súp­unni, eins og þekk­ist meðal stór­velda í seinni tíma sögu. Eftir að Rúss­arnir fóru komu Pers­arnir og jöfn­uðu Tíblisi við jörðu, íbú­arnir voru drepnir nema þeir ungu og hraust­ustu sem voru leiddir í þræl­dóm. Fram­ferði Persa gerði það svo aftur að verkum að Rússar töldu sig hafa ærið til­efni til að leggja undir sig allt svæðið. Fram­kvæmdin tók rúma hálfa öld og í hugum rúss­neskra skálda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár