Myndhöggvarar öskuillir

Mynd­höggvara­félagið í Reykjavík er mjög ósátt við niður­stöðu samkeppni um útlistaverk í Vesturbæ. Ástæðan er sú að sigurveg­ararnir eru ekki starfandi myndlistar­menn heldur arkitektar og rithöf­und­urinn Andri Snær Magnason. Til skoðunar er að kæra samkeppnina.

Sjávarmál
Sjáv­ar­mál Mynd­höggv­arar eru ósáttir við að verkið sem bara sigur úr býtum sé ekki eftir mynd­list­ar­menn. Mynd: Listasafn Reykjavíkur

Mynd­höggvarar eru mjög ósáttir við framkvæmd og niður­stöðu samkeppni um nýtt útilistaverk í Vesturbæ Reykja­víkur. Mynd­höggvara­félagið í Reykjavík vill meina að brotið hafi verið gegn samkeppnis­reglum Sambands íslenskra myndlistar­manna (SÍM) við framkvæmd samkeppninnar. Þá hafi Listasafn Reykja­víkur brugðist hrapalega faglega og SÍM hafi brugðist eftirlits­hlutverki sínu.

Ástæðan fyrir reiði mynd­höggvara er sú að þeir sem báru sigur úr býtum í samkeppninni voru ekki starfandi mynd­höggvarar eða myndlistar­menn, heldur arkitektar og rithöfundar. Sigur­tillagan, lista­verkið Sjávarmál, er eftir arkitektana Baldur Helga Snorrason og David Hugo Cabo, unnin í samstarfi við Andra Snæ Magnason rithöfund. Baldur Helgi segir að sér þyki leitt að mynd­höggvarar séu ósáttir en þeir félagar hafi tekið þátt í samræmi við þær reglur sem settar voru um samkeppnina.

Reykja­víkurborg auglýsti eftir tillögum að útilistaverki sem setja skyldi upp í Vestur­bænum í apríl á þessu ár, í framhaldi af íbúa­kosningu á síðasta ári. Í auglýsingu á vef borgarinnar kom fram að samkeppnin yrði haldin samkvæmt samkeppnis­reglum SÍM og myndi dómnefnd skipuð fulltrúum Reykja­víkurborgar, íbúaráðs Vestur­bæjar, Lista­safns Reykja­víkur og SÍM velja úr innsendum hugmyndum. Jafnframt kom fram að þátttaka færi fram á grund­velli nafn­leyndar og að samkeppnin væri öllum opin.

Segja reglur hafa verið margbrotnar

Við þetta hafa mynd­höggvarar ýmislegt að athuga.

Telja reglur brotnarLogi segir að mynd­höggv­ara ósátta með að ekki hafi verið farið eftir sem­keppn­is­reglum SÍM.

Í tölvu­pósti sem Logi Bjarnason, formaður Mynd­höggvarar­félags Reykja­víkur, sendi Stundinni kemur fram að mynd­höggvarar telji að samkeppnis­reglur SÍM hafi verið marg­brotnar í samkeppninni, þrátt fyrir að hafa verið lagðar til grund­vallar þegar í upphafi. Mest fer fyrir brjóstið á Mynd­höggvara­félaginu sú staðreynd að sigurveg­arar samkeppninnar séu ekki starfandi, og hafi aldrei starfað sem, myndlistar­menn. Fyrirsögn póstsins er enda „Arkitektar gera nú myndlistar­verk“.

„Það þýðir hinhvegar ekki að starfið myndlistar­maður sé ekki til“

Í samkeppnis­reglum SÍM segir um tilhögun samkeppna að almenn samkeppni sé opin öllum myndlistar­mönnum. Hins vegar segir í sömu reglum að í keppnis­lýsingu skuli koma fram hverjir rétt hafi á þátttöku. Þrátt fyrir að í auglýsingu keppninnar hafi komið fram að samkeppnin væri öllum opin túlka mynd­höggvarar það svo að þar sem vísað hafi verið til samkeppnis­reglnanna hafi verið átt við að hún væri opin öllum starfandi myndlistar­mönnum, en ekki hverjum sem er úti í bæ.

Skilgreiningar ættu ekki að vefjast fyrir neinum

Samkeppnis­reglur SÍM skilgreina ekki hver telst myndlistar­maður, enda er starf­heitið ekki verndað. „Það þýðir hinhvegar ekki að starfið myndlistar­maður sé ekki til og vefst skilgreiningin ekki fyrir neinum í öðru faglegu samhengi eins og við úthlutun listamanna­launa, við úthlutanir styrkja úr Myndlistar­sjóði, ráðningar til kennslu í myndlist á efri stigum, etc. ÞAR skiptir nám og star­ferill innan fagsins öllu máli,“ segir í svari Olgu Bergmann, ritara Mynd­höggvara­félagsins við fyrir­spurn Stundarinnar um málið.

Mynd­höggvarar eru sérlega ósáttir við niður­stöðu samkeppninnar í ljósi þess að um sé að ræða verkefni sem sé sjaldséð í íslenska myndlistar­geiranum og „langt er á milli slíkra atvinnu­tækifæra,“ eins og segir í svari Olgu. Þá séu samkeppnir af þessu tagi, þar sem öllum myndlistar­mönnum bjóðist að senda inn tillögur án forvals séu enn fátíðari og því ljóst að um mikið hagsmunamál sé að ræða fyrir stéttina.

„Popúlísk útgáfa myndlistarsamkeppni“

Stjórn Mynd­höggvara­félagið segir SÍM hafa brugðist eftirlits­hlutverki sínu og hefur SÍM játað upp á sig sökina. Stjórn SÍM hefur beðið Mynd­höggvara­félagið velvirðingar á sinni aðkomu að málinu í erindi sem stjórn Mynd­höggvara­félagsins var send og „harmar það hvernig samkeppnis­reglur SÍM um gerð lista­verka voru túlkaðar nýverið í auglýsingu um samkeppni um listaverk í almanna­rými í Vestur­bænum, nánar tiltekið að „öllum“ væri heimil þátttaka, en ekki einungis myndlistar­mönnum eins og samkeppnis­reglur kveða á um.“ Ljóst sé að stjórn SÍM beri að nokkru leyti ábyrgð á útkomu málsins, þar eð bæði stjórnin og trúnaðar­maður SÍM í tengslum við samkeppnina hefðu samþykkt keppnis­lýsinguna „án þess að taka eftir að búið var að breyta skilgreiningu á því hverjir mættu taka þátt.“ Reykja­víkurborg hafi hins vegar gert sterka kröfu um að samkeppnin væri opin öllum.

Ljóst er að mynd­höggvarar eru öskuillir yfir málinu öllu. Þannig segir í svari Olgu Bergmann við fyrir­spurn Stundarinnar að þegar ítrekað sé fullyrt að fara eigi eftir samkeppnis­reglum SÍM reikni starfandi myndlistar­menn með því að um faglega samkeppni sé að ræða en ekki „ populíska útgáfu „myndlistar­samkeppni“ þar sem faglegur bakgrunnur keppenda skiptir ekki máli.“

„Það er voða leiðinlegt að mynd­höggvarar séu ósáttir“

Beðið hafi verið um ítarlega ferilskrá sem fylgdi tillögum í lokuðu umslagi. Það skilja mynd­höggvarar ekki fyrst keppnin hafi í raun verið galopin fyrir almenningi og engu máli hafi skipt hvort höfundar ættu nokkurn myndlistar­feril að baki. Hins vegar er sú krafa í samræmi við umræddar samkeppnis­reglur SÍM.

Mynd­höggvara­félagið segir enn fremur ámælis­vert að ein helsta myndlistar­stofnun landsins, Listasafn Reykja­víkur, bregðist myndlistar­mönnum „svo hrapalega í þessari samkeppni um útilistaverk Starfsemi Lista­safns Reykja­víkur snýst fyrst og fremst um að sýna verk íslenskra og erlendra myndlistar­manna en ekki afurðir “skapandi einstaklinga og hópa.“

Stjórn Mynd­höggvara­félagsins hefur leitað álits hjá lögfræðingi Myndstefs og telur hann ástæðu til að kæra niður­stöðu samkeppninnar til kæru­nefndar útboðs­mála, þar eð Reykja­víkurborg, sem stóð fyrir samkeppninni, sé opinber aðili.

Sjáv­ar­málÞeir Andri Snær og Baldur Helgi sjást hér með Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra þegar nið­ur­staða dóm­nefndar var kynnt í ágúst síð­ast­liðnum.

Tóku þátt út frá gefnum forsendum

Baldur Helgi Snorrason, einn þeirra sem átti vinnings­tillöguna, segist í samtali við Stundina ekki hafa heyrt af málinu fyrr. Baldur Helgi segir að hann og samstarfs­menn hans hafi tekið þátt í samkeppninni á þeim forsendum sem gefnar voru, að hún væri öllum opin. „Það er oft spurning hvar arkitektur hættir og mynd­listin byrjar. Það er alveg hægt að líta á þetta sem arkitekt­ónískt verk í umhverfi. Það er ákveðin fúnksjón þarna, þetta er bekkur og svo er þarna veggur með hljóð­eiginleikum í. Þetta getur verið á gráu svæði, hvað á að kalla arkitektúr og hvað myndlist.

Baldur Helgi segir að honum þyki leitt að deilur ætli að rísa um verkið. „Það er voða leiðinlegt að mynd­höggvarar séu ósáttir en við tókum auðvitað þátt í samkeppninni út frá þeim forsendum sem gefnar voru, að þetta væri opið öllum. Við stöndum bara með verkinu út frá þeim forsendum sem voru gefnar. Ég get auðvitað skilið þeirra afstöðu að einhverju leyti, svona verkefni eru af skornum skammti fyrir mynd­höggvara og myndlistar­menn. Ég skil þetta alveg en mér finnst þetta mjög leiðinlegt.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár