Fjölskyldusýning, umbreyting og íslensk ópera

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 21. ágúst - 10. sept­em­ber.

Fjölskyldusýning, umbreyting og íslensk ópera

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu þrjár vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara vegna sam­komu­banns.

Ég kem alltaf aftur

Hvar? Iðnó
Hvenær? 29. & 30. ágúst kl. 16.00 & 18.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Árið 1980 kom pólski leik­stjór­inn Tadeusz heit­inn Kantor til árs­ins og flutti leik­sýn­ing­una Ég kem aldrei aftur á Lista­há­tíð í Reykja­vík. Nú, 30 árum síðar, flytur leik­hóp­ur­inn Reykja­vík Ensemble verkið Ég kem alltaf aftur sem er virð­ing­ar­vottur við Kantor og fram­lag hans til sviðs­lista á 20. öld. Leik­sýn­ingin er sýnd sem verk í vinnslu, en tak­mark hennar er að heiðra list­ræna sýn Kantors og í senn varpa fram spurn­ingum um núver­andi félags­legan raun­veru­leika Pólverja og ann­arra inn­flytj­enda. Reykja­vík Ensemble er alþjóð­legur leik­hópur sem hefur það mark­mið að fagna fjöl­menn­ing­unni sem hefur fest rætur sínar á Íslandi.

Umbreyting

Hvar? Flæði
Hvenær? Til 25. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ástr­alska lista­konan Nara Walker rann­sakar kven­leika á þess­ari list­sýn­ingu. Til sýnis eru olíu­verk sem end­ur­spegla upp­runa, for­tíð, upp­eldi, marg­breyti­leika sjálfs­ins og umbreyt­ingu í tím­ans rás. Einnig verður spilað 20 mín­útna hljóð­verk sem sam­anstendur af upp­töku ell­efu kven­radda um hitt kynið. Öll verkin tala saman til að segja sögu og varpa fram lifðum veru­leika.

Lucy in Blue

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 22. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sæka­del­ísku og hár­prúðu ærsla­belgirnir í Lucy in Blue hafa notið dyggs stuðn­ings í gegnum árin og gáfu út sam­nefnda plötu árið 2016 auk plöt­unnar In Flight 2019. Flutt verður áður óheyrt efni sem kemur út á næstu breið­skífu sveit­ar­innar. Ekki fleiri en 100 manns verður hleypt inn.

Hjartsláttur

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? 22. ágúst–4. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sýningin Hjart­sláttur leiðir saman verk frá rúm­lega fjöru­tíu ára mynd­list­ar­ferli Ástu Ólafs­dóttur, frá náms­árum hennar til dags­ins í dag. Öll end­ur­spegla þau á sinn hátt óþreyt­andi elt­ing­ar­leik Ástu við fjöl­breyttar víddir veru­leik­ans; þögn­ina, tómið, hljóð og til­finn­ingar, en líka vald, jafn­vægi og aðra menn­ing­ar­heima.

Villiblómið

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? 28. ágúst til 25. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Villi­blómið beinir lins­unni að því sem er okkur svo kunn­ug­legt – hinn fín­legi jarð­ar­gróður – eins og hann skýtur rótum í nýjum frá­sögnum. Í gegnum þessa linsu fá áhorf­endur tæki­færi til að virkja sæg flók­inna til­finn­inga og dýpka vit­und sína um hinn við­kvæma heim okkar og stöðu okkar í honum.

Fjörutíu skynfæri

Hvar? Gerð­ar­safn
Hvenær? 29. ágúst til 13. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Á sýn­ing­unni má sjá verk eftir nem­endur sem útskrif­uð­ust úr hönnun og arki­tektúr frá Lista­há­skóla Íslands í júní 2020. Verkin eru loka­punkt­ur­inn á þriggja ára lær­dóms­ferli nem­enda og miðla per­sónu­legri sýn þeirra á við­fangs­efni sem snerta bæði félags­legan veru­leika, til­finn­inga­líf, umhverf­is­mál, iðn­bylt­ingu, óvissu og fram­tíð­ina.

Ekkert er sorglegra en manneskjan

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 6., 10., 13., 19., 21. og 23. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 4.400 kr.

Ham­ingjan, og fálm­kennd leit mann­eskj­unnar að henni, er við­fangs­efni þess­arar nýju íslensku óperu sem er flutt af næstu kyn­slóð af sviðs­lista­fólki. Á sýn­ing­unni ráfa fjórar fígúrur um sviðið, leit­andi að merk­ingu og velta því fyrir sér hvað færir þeim ánægju. 

Af fingrum fram: Björgvin Halldórsson

Hvar? Salurinn
Hvenær? 10. & 11. sept­em­ber kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: Frá 4.950 kr.

Björgvin Hall­dórs­son hefur verið hluti af íslenskri dæg­ur­tón­list í fjölda ára­tuga, en hann var ein af fyrstu popp­stjörnum lands­ins á 7. ára­tugnum. Björgvin er meðal ann­ars þekktur fyrir jóla­lögin sín fjöl­mörgu sem hann aðlag­aði úr eldri ítölskum lögum. Hann mætir í Salinn þar sem hann tekur þátt í spjalltón­leika­röð­inni Af fingrum fram.

Fjölskyldu-myndlistarsýningin Draumar

Hvar? Ófeigur gull­smiðja
Hvenær? Til 12. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Draumar er sam­sýn­ing Huldu Vil­hjálms­dóttur, Valgarðs Braga­sonar og barna þeirra, Nínu Maríu og Braga Þórs. Á þriðja tug verka er til sýnis, en þeir ein­kenn­ast allir af mik­illi lita­dýrð og frjálsri tján­ingu. Meðal verka er eitt stórt mál­verk sem fjöl­skyldan vann saman þar sem mis­mun­andi stíl­teg­undir þeirra bland­ast saman.

VHS biðst forláts

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 11. sept­em­ber kl. 19.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Á þess­ari upp­ist­ands­sýn­ing­u leika þre­menn­ing­arn­ir Vilhelm Neto, Hákon Örn og Stefán Ingvar sér með at­höfn­ina að baki því að biðj­ast af­sök­un­ar. VHS til­heyrir hópi yngri grínista lands­ins sem eru með­vit­aðir um eigin for­rétt­indi og gera fyrst og fremst grín að eigin reynslu eða athug­unum úr nærum­hverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár