Stjórn Hinsegin daga sigaði lögreglu á hinsegin aktívista

Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir var hand­tekin af lög­reglu á leið á gleði­göng­una í fyrra. Ári síðar biðst stjórn Sam­tak­anna '78 afsök­unar á því að hafa ekki brugð­ist rétt við með afdrátt­ar­lausum stuðn­ingi við Elín­borgu.

Stjórn Hinsegin daga sigaði lögreglu á hinsegin aktívista
Gleði­gangan Elínborg var hand­tekin í göng­unni í fyrra. Mynd: MBL / Freyja Gylfa

„Við hefðum átt að standa með henni algjör­lega og afdrátt­ar­laust – þess í stað gáfum við út yfir­lýs­ingu sem var útvötnuð.“ Þetta segir Þorbjörg Þor­valds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna ‘78, um hand­töku á hinsegin aktí­vista í Gleði­göng­unni í fyrra. Stjórn sam­tak­anna hefur beðist afsök­unar á slökum við­brögðum sínum. „Hún var hand­tekin fyrir það sem hún er og fyrir það sem hún stendur,“ segir Þorbjörg. „Hún var „prófíluð“.“

Fjallað var um hand­tök­una á sínum tíma, en þá var ekki vitað að hand­takan væri til­komin vegna ábend­ingar stjórnar Hinsegin daga til lög­reglu. Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir, sem var hand­tekin, greindi frá því á Facebook í vik­unni að skýrsla eft­ir­lits­nefndar með störfum lög­reglu, sem hún hefur undir höndum, varpi nýju ljósi á atburða­rás­ina og hlut­verk stjórn­ar­innar í ofbeldi gagn­vart hinsegin fólki.

Stjórnir Sam­tak­anna ‘78 og Trans Íslands sendu sam­dæg­urs afsök­un­ar­beiðnir á við­brögðum sínum. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár