Fjórir af hverjum tíu föngum inni fyrir fíkniefnabrot

Pró­fessor í félags­fræði segir þungar refs­ingar ekki draga úr vanda vegna fíkni­efna og riðla sam­ræmi þegar kemur að ofbeldis- og kyn­ferð­is­brotum. End­ur­skoða þurfi fleiri refs­ingar en aðeins vegna vörslu­skammta.

Fjórir af hverjum tíu föngum inni fyrir fíkniefnabrot
Helgi Gunn­laugs­son Pró­fessor í félags­fræði segir upp­nám í sam­fé­lag­inu vegna til­komu e-pill­unnar hafa valdið þungum dómum í fíkni­efna­málum.

Fjórir af hverjum tíu föngum á Íslandi sitja inni vegna fíkni­efna­brota. Í lok síð­ustu aldar var hlut­fallið einn af hverjum tíu. Rann­sóknir sýna að þungar refs­ingar dragi ekki úr sam­fé­lags­legum vanda vegna fíkni­efna.

Þetta segir Helgi Gunn­laugs­son, pró­fessor í félags­fræði, í grein í Morg­un­blað­inu í dag. Helgi sat í starfs­hópi Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra til að stytta boð­un­ar­lista Fang­els­is­mála­stofn­unar til afplán­unar refs­inga. Í grein­inni kemur fram að list­inn hafi lengst mjög á síð­ustu árum og skipti nú hund­ruðum dóm­þola. Boð­un­ar­list­inn feli að stórum hluta í sér væg­ari refs­ingar á meðan dóm­þolar fyrir alvar­leg brot hefja afplánun í fang­elsi að jafn­aði fljótt.

„Aukin sam­fé­lags­þjón­usta, rýmkaðar heim­ildir til sátta­miðl­unar og fulln­usta dóma með sér­skil­yrðum eins og vímu­efna­með­ferð í stað vistar í fang­elsi, voru örfáar leiðir sem við lögðum til,“ skrifar Helgi. „Rann­sóknir sýna að vist í fang­elsi hefur óveru­leg varn­að­ar­á­hrif [...]. Aftur á móti bendir ýmis­legt til að aðrir afplán­un­ar­kostir en vist í fang­elsi geti dregið úr ítrekun brota fyrir utan að fela jafn­framt í sér minni kostnað fyrir sam­fé­lagið.“

Hópurinn hafi því lagt til rýmri heim­ildir við aðra afplán­un­ar­kosti en vistun í fang­elsi fyrir væg­ari brot. Engar breyt­ingar hafi verið lagðar til varð­andi afplánun alvar­leg­ustu brot­anna, svo sem ofbeld­is­glæpa, nauð­gana og morða. Ekki hafi þó náðst sátt um til­lögu sem heim­ili reynslu­lausn vegna alvar­leg­ustu fíkni­efna­brot­anna.

„Í lok síð­ustu aldar sátu ein­ungis innan við tíu pró­sent fanga í fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot“

„Hlutfall fanga fyrir fíkni­efna­brot hefur vaxið mjög í fang­elsum lands­ins á síð­ustu árum,“ skrifar Helgi. „Árið 2019 var hlut­fallið komið í 40 pró­sent allra fanga og vel á annað hund­rað afplán­aði dóm fyrir brot af því tagi. Í lok síð­ustu aldar sátu ein­ungis innan við tíu pró­sent fanga í fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot. Rekja má vax­andi hlut­fall fíkni­fanga til þess upp­náms sem varð í sam­fé­lag­inu með til­komu e-pill­unnar á tíunda ára­tugnum. Þungir dómar féllu í kjöl­farið sem ekki hefur tek­ist að vinda ofan af eftir því sem málum hefur fjölgað og magn efna auk­ist. Þungir dómar fyrir fíkni­efna­brot hafa óneit­an­lega átt þátt í að riðla sam­ræmi í mati á refs­ingum milli ólíkra brota­teg­unda. Kröfur um hertar refs­ingar fyrir ofbeldis- og kyn­ferð­is­brot á síð­ustu árum verða meðal ann­ars að skoð­ast í ljósi þró­unar dóma í fíkni­efna­málum.“

Helgi segir rann­sóknir sýna að fíkni­efna­vand­inn sé að stórum hluta félags- og heil­brigð­is­mál og að þungar refs­ingar dragi ekki úr vand­anum. „End­ur­skoðun refsi­lög­gjaf­ar­innar í fíkni­efna­málum þarf því án vafa að taka til fleiri þátta en ein­ungis afnáms refs­inga við vörslu á fíkni­efnum til eigin nota,“ skrifar hann og bætir því við að það fyr­ir­komu­lag sem nú er á, að Fang­els­is­mála­stofnun geti tekið ákvörðun um að breyta óskil­orðs­bundnum dómum í sam­fé­lags­þjón­ustu hafi reynst vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár